Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Þitt hverfi

Hverfin í Reykjavik

Við mótun nýs aðalskipulagsverður lögð sérstök áhersla á samráð við íbúa borgarinnar. Haldin verða opin hús um skipulag í nærumhverfi íbúanna í hverju hverfi borgarinnar. Það er liður í því að færa stefnumörkun aðalskipulagsins nær íbúum borgarinnar.

Tilgangur opinna húsa er að kalla eftir hugmyndum íbúanna um skipulag í sínu hverfi. Varpað verður fram ýmsum spurningum um framtíð hverfisins. Hvernig sérðu fyrir þér hverfið eftir 20 ár? Hvað þarf helst að bæta? Hvar eru tækifærin? Og hvar eru möguleikar á að breyta skipulagi? Það efni sem safnast saman á hverjum hverfafundi verður vegarnesti í þeirri vinnu sem framundan er, að móta tillögu að nýju aðalskipulagi og einnig við endurskoðun á skipulagi hverfanna almennt.

Aðalskipulag borgarinnar er venjulega sett fram með almennum hætti og gerður einn skipulagsuppdráttur sem nær til alls lands borgarinnar. Í nýju aðalskipulagi er ætlunin að brjóta upp framsetningu þess, þannig að aðalskipulag hvers hverfis verður sett fram á séruppdráttum. Gildandi aðalskipulag hefur verið brotið upp með þessum hætti og er uppdráttur fyrir hvert hverfi aðgengilegur á hverfissíðunum hér til hliðar.