Barnamenningarhátíðin 2010
11.01.2010
Upplestur á frétt 
Eins og heitið ber með sér er hátíðinni fyrst og fremst ætlað að vera vettvangur fyrir menningu barna og menningu fyrir börn. Markmið barnamenningarhátíðar er ekki síður að efla umræðu um barnamenningu í samfélaginu, fjölmiðlum og á torgum. Í því skyni verður blásið til málþings um barnamenningu á hátíðinni.
Vonast er til að barnamenningarhátíð verði vettvangur fyrir skapandi tilraunastarf og samvinnu í hverfinu. Á barnamenningarhátíð gefst tækifæri fyrir börn til að sýna listrænar afurðir vetrarins og hún mun hvetja börn til dáða á sviðum lista og menningar.
Að skipulagningu hátíðarinnar koma Reykjavíkurborg, grunn- og leikskólar, söfn og aðrar menningarstofnanir, íþrótta- og frístundafélög auk frjórra einstaklinga um alla borg.
Í bígerð er að opna gagnvirkan vef í aðdraganda hátíðarinnar. Honum er ætlað að vera umræðuvettvangur og hugmyndatorg, hafa bæði hagnýtt gildi og vera til skemmtunar og örvunar við undirbúning fyrstu barnamenningarhátíðar Reykjavíkur.
Unnið úr gögnum frá undirbúningshópi Barnamenningarhátíðar Reykjavíkurborgar 2010.
Tengiliður Barnamenningarhátíðar í Breiðholti er: Ágústa H. Gísladóttir frístundaráðgjafi í Þjónustumiðstöð Breiðholts Álfabakka 12 (Mjódd), 109 Reykjavík e-mail: agusta.h.gisladottir@reykjavik.is símar: 411-1328 og GSM 664-7754.