PMT foreldrafærninámskeið hefst 14. apríl 2010
09.04.2010
Upplestur á frétt 
PMT foreldranámskeið fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika
PMT stendur fyrir „Parent Management Training“, sem er aðferð fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi barna og unglinga. PMT stuðlar að góðri aðlögun barna og er því afar mikilvæg aðferð ef börn sýna hegðunarfrávik. PMT er þróað af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. PMT byggir á sterkum grunni rannsókna sem sýna að aðferðin dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum barna og unglinga og skilar mestum árangri ef unnt er að grípa snemma inn í og vinna með vandann á fyrstu stigum.
Meginmarkmið námskeiðanna er að kenna foreldrum að nota styðjandi uppeldisaðferðir. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.
Sjá nánar á heimasíðu www.pmt-foreldrafaerni.is
Næsta námskeið byrjar 14. apríl 2010 og er fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika á yngsta stigi grunnskóla (1. – 4. bekkur)
Dagsetningar: miðvikudagar, vikulega 14. apríl til 26. maí (7 skipti), eftirfylgdartími 9. júní kl. 16:30-19:00
Fræðslan mun fara fram í fundarsal Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Alls átta skipti, 2 ½ klst. í senn.Hrund Þrándardóttir sálfræðingur sér um fræðsluna. Hrund er sérfræðingur í PMT meðferð og kennslu.