Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

ÍR vann alla titla ársins í frjálsum íþróttum

24.08.2010

Upplestur á frétt 

ÍR-ingar urðu um helgina bikarmeistarar í frjálsum íþróttum 16 ára og yngri og kórónuðu þar með ótrúlegt ár. Frjálsíþróttafólk ÍR hefur einfaldlega unnið alla titla sem í boði eru í öllum aldursflokkum, bæði innan- og utanhúss og hefur ekkert félag hér á landi afrekað slíkt áður. Sjá frétt á mbl.is og viðtal við Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfara ÍR í frjálsum íþróttum. Sjá einnig frétt á heimasíðu ÍR. Ástæða er til að óska öllum Breiðhyltingum til hamingju með hið öfluga frjálsíþróttastarf félagsins sem styrkir og eflir mörg börn, unglinga, fullorðna og alla stuðningsmenn ÍR.