Félagsstarfið í Breiðholti eftir sumarfrí, allir velkomnir í Árskóga og Gerðuberg
27.08.2010
Upplestur á frétt 
Þann 23. ágúst var farin fjölmenn hópferð í góðu og björtu veðri um Reykjavík, í lok ferðar voru kaffiveitinar í matsölu stúdenta Háskskóla Íslands sem nefnist Háma og er á Háskólatorgi.
Sú hefð hefur skapast á liðnum árum, að Magnús Sædal Svavarssun byggingafultúi Reykavíkurborgar, hefur veitt leiðsögn í fræðslu og kynnisferð um Reykjavíkurborg sem næst 18. ágúst sem er afmælisdagur borgarinnar. Þessi viðburður markar upphaf að haust- og vetrardagskrá félagsstarfsins í Breiðholti.
Myndina tók Birna Bjarnleifsdóttir.
Gerðubergkórinn er að hefja haust og vetrarstarf, fjölbreyttdagskrá og viðburðir framundan. Æfingar verða á mánudögum og föstudögum stjórnandi Kári Friðriksson. Nýjir félagar velkomnir, möppur, öll aðstaða og stjórn án endurgjalds. Markmið kórfélaga er að gleðjast saman í söng og gleðja aðra með söng. Margar hefðir hafa skapast, kórfélagarkoma fram án endurgjalds, og skapa vinatengsl við félagsstarf í Breiðholti, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Uppl. í Félagsstarfinu í Gerðubergi og s. 5757720.