Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Huggulegheit í Café Flóru

15.12.2011

Upplestur á frétt 

Aðventuhelgina 17.-18. desember verður ýmislegt um að vera í Café Flóru í Grasagarðinum. Kaffihúsið og jólabasarinn eru opin frá kl. 12-18. Jólalegar veitingar og ljúfar stundir í fallegu umhverfi.

Á laugardeginum munu jólalögin óma um garðinn þegar kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur syngur fyrir gesti og einnig verða kátir jólasveinar á ferli í Laugardalnum. Á sunnudeginum mæta krakkar úr Skólahljómsveit Austurbæjar og leika jólalög fyrir gesti. Og þau Anton Rafn Gunnarsson, Regí Óðins og hin 13 ára gamla Thelma Svavarsdóttir flytja frumsamin lög og texta með jólaívafi. Á torginu fyrir framan Grasagarðinn munu félagar úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík selja jólatré í svaka jólastemningu alla helgina frá kl. 13.00 til 17.00.

Það verða því sannkölluð huggulegheit í Grasagarðinum um helgina og tilvalið að líta við í Laugardalnum, ganga um garðinn, njóta ljúffengra jólaveitinga á Café Flóru, skoða jólabasarinn og jólatrjáasöluna, hlýða á tónlist í fallegu umhverfi og taka þátt í að skreyta Umhyggjutré til styrktar langveikum börnum.

Dagskrá:

Laugardagur 10. desember
14:00 Kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur syngur
14-17 Kátir jólasveinar verða á ferli í Laugardal
13-17 Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík selur jólatré í svaka jólastemningu á torginu fyrir framan Grasagarðinn

Sunnudagur 11. desember
14:00 Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar leikur jólalög fyrir gesti
15:00 Anton Rafn Gunnarsson, Regí Óðins og hin 13 ára Thelma Svavarsdóttir flytja frumsamin lög og texta með jólaívafi
13-17 Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík selur jólatré í svaka jólastemningu á torginu fyrir framan Grasagarðinn.
Nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni: www.grasagardur.is

Nágrannar Grasagarðsins í jóladalnum Laugardal eru líka með skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna á aðventunni, sjá: www.mu.is og www.skautaholl.is