Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fyrsti íþróttaklúbburinn stofnaður í Breiðholti

23.01.2008

Upplestur á frétt 

Að frumkvæði Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, í samstarfi við Frístundamiðstöðina MiðbergKnattspyrnusamband Íslands, Íþróttafélag Reykjavíkur (ÍR) og Leikni, hefur nú verið stofnaður fyrsti íþróttaklúbburinn i Breiðholti. Markmið með þessu klúbbastarfi er að ná til krakka sem taka lítinn eða engan þátt í skipulögðu íþróttastarfi íþróttafélaganna. Æfingar fara fram á gervigrasvelli Leiknis í Efra-Breiðholti og á ÍR vellinum við Skógarhlíð. Hópstjóri íþróttaklúbbsins verður Björn Bjartmarz, knattspyrnuþjálfari og hverfislögreglumaður í Breiðholti. Fyrsti tíminn verður mánudaginn 28. janúar nk. Meðfylgjandi auglýsingu verður dreift til nemenda grunnskólanna í Breiðholti.

Ithrottaklubbur2