Sendu inn fyrirspurn

Á leikskólasviði starfar Fríða Bjarney Jónsdóttir verkefnastjóri/ráðgjafi vegna fjölmenningar í leikskólum. Netfang hennar er frida.b.jonsdottir@reykjavik.is og síminn er 411-7019.

Meðal verkefna er að:

·Sinna ráðgjöf og fræðslu til leikskóla vegna barna og foreldra af erlendum uppruna. Í því felst m.a. fræðsla og ráðgjöf um íslensku sem annað tungumál, fjölmenningarlega kennslu og hvernig stuðla megi að gagnkvæmri virðingu og jákvæðum samskiptum í fjölbreyttum barna- og foreldrahóp.

-Sjá um úthlutun fjármagns vegna barna af erlendum uppruna í leikskólum borgarinnar.

-Hafa umsjón með Fjölmenningarvef leikskóla www.allirmed.is

-Sjá um þýðingar á upplýsingaefni til foreldra.

-Sinna samstarfi við stofnanir sem hafa með málefni innflytjenda að gera.

-Bjóða upp á námskeið og fræðslufundi fyrir starfsfólk leikskóla um: 

              Fjölmenningarlegt leikskólastarf 

              Viðhorf og samskipti í fjölbreyttum barna- og starfsmannahóp

              Foreldrasamstarf

              Íslensku sem annað mál, mat á málþroska, kennslu og örvun í íslensku

              Persónubrúður

Senda inn fyrirspurn til ráðgjafa Leikskólasviðs um málefni barna af erlendum uppruna