Fjölmenning í leikskóla

leikið í leikskólaNýta má fjölbreytt verkefni og ólíka reynslu til þess að kenna börnum sem eru að læra íslensku sem annað tungumál, ný orð og hugtök í tengslum við það sem þau eru að gera hverju sinni. Í verkefnum er leitast við að opna leiðir til að vinna með menningu og bakgrunn barna af ólíkum uppruna og jafnframt er námsefnið svo sveigjanlegt að það má aðlaga að aldri og þroska allra barna í hópnum. Rétt er að taka fram að þegar verið er að vinna með bakgrunn og menningu barna skal ávallt starfa í náinni samvinnu við foreldra. Meira um foreldrasamstarf. 

Verkefnin byggja á hugmyndum sem ekki eru endanlegar og bjóða upp á margar úrvinnsluleiðir. Þau má hæglega tengja námssviðum í aðalnámskrá leikskóla og námskrá leikskólans:

Stærðfræði, t.d. þegar notuð eru mynstur frá ólíkum menningarsvæðum eða þegar börnin læra að telja á ýmsum tungumálum.

Tónlist og myndlist, t.d. þegar unnið er með fjölbreyttar hefðir í listsköpun, tónlist eða dansi. Einnig þegar kynnt er tónlist eða önnur list frá ólíkum menningarsvæðum.

Samfélag og náttúra,  t.d. þegar unnið er með heimamenningu barna, hátíðir og uppákomur. Þegar við útvegum okkur raunverulega hluti t.d. búninga, leirtau og myndir frá ólíkum menningarheimum í hlutverkakrók. Einnig þegar unnið er með dýr í ólíkum löndum eða ólíkar tegundir af byggingum.

Málþroski. t.d.þegar verið er að vinna með málörvun og kennslu íslensku sem annars máls hjá þeim börnum se ekki tala íslensku að móðurmáli. Einnig þegar unnið er með sögur og ævintýri frá ólíkum menningarsvæðum, eða  þegar börnin læra lög og texta á öðrum tungumálum. Til þess að auka víðsýni allra barna og tilfinningu þeirra fyrir fjölbreyttum tungumálum er hægt að kenna þeim orð og orð á þeim tungumálum sem töluð eru í leikskólanum.