Fjölbreyttur barnahópur

Í fjölbreyttum barnahópi er nauðsynlegt að vinna á jákvæðan og markvissan hátt með margbreytileika. Margir segja að engin þörf sé á því að ræða sérkenni eins og litarhátt, tungumál eða annað því börn veiti slíku enga athygli. Það  skipti þau engu máli að vinur þeirra sé ekki eins á litinn. En það þýðir ekki að þau sjái það ekki. Með því ræða og vekja athygli á fjölbreytni mannlífsins er ekki verið að segja að benda eigi hvern einstakan og ræða um hann. Fremur að sýna samfélagslegan fjölbreytileika með vali á bókum sem lesnar eru, myndum á veggjum, leikefni, verkefnum barnanna og öðru. Þannig venjist börn því frá unga aldri að eðlilegt sé og sjálfsagt að enginn sé eins. 
Að vinna á jákvæðan og markvissan hátt með fjölbreytnina í hópnum hvetur börn til að meta menningu hvers annars, tungumál, hæfileika og lífsstíl og að bera virðingu fyrir eigin menningu, útliti o.s.frv. Börn eiga skilið að fá að vera þau sjálf í leikskólanum og þau eiga líka rétt á því að fá að vera stolt af menningararfi sínum og útliti.

Sjálfsmyndir
Börnin teikna eða mála mynd af sjálfum sér. Munið eftir að bjóða börnunum uppá húðliti af öllum gerðum. Þegar börnin biðja um húðlit getum við skapað umræðu um húðlit með því að spyrja hvaða húðlit viltu? Ef við erum að vinna með fjölbreytnina verðum við að bjóða uppá alla flóruna. 

Myndir af öðrum
Börnin teikna eða mála mynd af hvert öðru. Á sama hátt og þegar börnin teikna sjálfsmyndir er mikilvægt að bjóða upp á ólíka húðliti.

Ég og bekkurinn minn

Á heimasíðu Heimilis og skóla má nálgast skemmtilegt verkefni sem kallast ég og bekkurinn minn.

Pappabrúður
Börnin búa til pappabrúður og leika sjálf sig eða hvert annað í leikriti. Þegar pappabrúður eru gerðar er gaman að bjóða upp á hina ýmsu liti og leyfa börnunum að blanda húðliti sjálf. Þetta er auðveldlega hægt að gera án þess að bent sé á ákveðin börn í hópnum. Það gefur verkefnum af þessu tagi aukið gildi ef búið er að skoða með börnunum bækur með myndum af fólki af ólíkum uppruna og opna þannig augu þeirra fyrir ólíkum húðlit

Manneskja úr maskínupappír
Leggið maskínupappír á gólfið og teiknið upp útlínur barnanna, með aðstoð þeirra, eða búið til eina manneskju úr líkamshlutum allra barnanna í hópnum. Gaman getur verið að teikna útlínur allra barnanna í hópnum og líma svo upp á vegg og láta alla leiðast. Þetta verkefni kemur afar vel út í stórum sal þar sem er mikið veggpláss. Börnin skreyta sig sjálf að vild, mála eða líma efni á maskínupappírinn. Þetta verkefni, og önnur af þessu tagi, ýtir undir samkennd og vináttu allra í hópnum og að hver og einn sé mikilvægur hlekkur í barnahópnum.

Manneskja úr tímaritamyndum
Börnin klippa myndir af fólki út úr tímaritum og setja saman í eina manneskju með því að setja saman ólíka líkamshluta.

Manneskja úr ljósmyndum af öllum í hópnum
Kennarinn ljósmyndar öll börnin í hópnum og aðstoðar þau við að búa til klippimynd þar sem notað er lítið brot frá hverju barni.

Skuggamyndir
Með myndvarpa eða annars konar lampa er skugga hvers barns varpað á vegg. Kennarinn, eða önnur börn í hópnum, teikna upp skuggann og útbúa þannig vangamynd allra í hópnum. Þetta má útfæra á ýmsa vegu, gera ýmsar fígúrur, eitt barn eða fleiri saman o.s.fr. Þetta verkefni reynir á samvinnu barnanna og ýtir þannig undir vináttu og samkennd. Úrvinnsla verkefnisins getur verið á ýmsa vegu, börnin  klippa út myndirnar og mála eða skreyta að vild. Myndirnar geta verið hengdar upp á vegg, settar í ferilmöppu eða hvaðeina, allt eftir eðli og stærð listaverkanna sem út úr þessu ferli koma.

Trölladeig/leikdeig
Börnin búa til sig sjálf eða félaga sína úr leir, trölladegi eða leikdegi. Hægt er að mála og skreyta á ýmsan hátt, með ýmis konar litum, andlitslitum af ýmsu tagi eða öðrum litum, glimmeri eða öðru sem sköpunargleðin leyfir. Mikilvægt er að leyfa börnunum sjálfum að búa til leikdegið, eða taka þátt í því, allt eftir aldri barnna. Til þess getur verið gott að útbúa blað með myndrænum lýsingum af uppskriftinni þannig að börnin geti sjálf lært að búa til leir samkvæmt henni. Fyrir börn sem eru að læra íslensku sem annað mál er mjög góð leið að ræða við þau um leið og deigið er búið til um það sem er að gerast en með því aukum við skilninginn á ferlinu. Dæmi um það getur verið, fyrst er deigið þunnt svo verður það þykkt. Fyrst er deigið þurrt, hvað gerist þegar vatninu er blandað við? Hvernig smakkast deigið áður en við setjum saltið út í? Sú aðferð að leyfa börnunum sjálfum að blanda deigið getur einnig verið frábær leið til að auka samvinnuna á milli þeirra. Þau skiptast þá á að blanda efnunum út í skálina og síðan að hræra og hnoða og um leið getur kennarinn rætt um það hvað allt gengur betur þegar börnin hjálpast að. 

Myndræn uppskrift að leikdeigi
Prentið út á stóru blaði, plastið og hengið upp á vegg á því svæði þar sem hægt er að vinna með leirinn, þannig aukum við líkurnar á því að allir starfsmenn geti prófað þessa aðferð. Sjá uppskriftina.

Fánaverkefni
Skoðið með börnunum fána allra á deildinni, barna og kennara. Hvað tákna litirnir í þeim? Hvað tákna þeir? Frá hvaða landi eru þeir? Finnið í sameiningu löndin á heimskorti. Börnin geta búið til sína eigin þjóðfána, teiknað, málað, gert klippimyndir o.s.frv. Afar mikilvægt að vinna af þessu tagi sé gerð í samráði við foreldra. Verið búin að afla upplýsingar um það hvort og þá hvaða fána foreldrarnir vilja að notaðir séu í leikskólanum. Sjá nánar í umfjöllun um foreldrasamstarf.

Jólin
Útbúið stórt jólatré úr kartoni eða maskínupappír. Börnin mála það og skreyta og það er síðan fest á vegginn. Börnin í samvinnu við foreldra sína útbúa jólakveðjur á öllum tungumálunum sem töluð eru í hópnum. Einnig er hægt að leyfa börnunum að útbúa jólakúlur úr pappír og á þær yrði skrifað í samvinnu við kennarann, eitthvað fallegt sem þau vildu gera með eða fyrir fjölskyldu sína á jólum. Ef börnin búa til jólagjöf fyrir foreldra sína getur verið skemmtilegt að hjálpa þeim (eða skrifa fyrir þau yngstu) að skrifa jólakveðju og til mömmu og pabba á móðurmálinu. Hlustið á jólatónlist frá ólíkum heimshornum, fáið börnin til að koma með jólalög sem þeim finnast skemmtilegust. Lærið jólasöngva á erlendum tungumálum, finnið texta við sömu lög og algengt er að sungin séu hér á landi fyrir jólin. Hlustið á klassíska jólatónlist og  jólatónlist frá ólíkum tímabilum. Þó má ekki gleyma því að jólin eru kristin hátíð og að ekki halda allir jól. Einnig halda ákveðnir kaþólskir hópar jólin síðar eða 6. janúar. Mikilvægt er að muna eftir þeim börnum í leikskólanum sem búa við annarskonar hátíðahöld. Kennarar verða að bera virðingu fyrir þeim og gæta þess að þau verði ekki utangátta í allri umfjölluninni um jólaundirbúninginn.

Fleiri verkefni
Alls konar fólk
Fjölskylda og fjölbreytni
Hæfileikar hvers og eins
Heimur myndlistar
Heimur tónlistar
Orðaforði, hreyfing og hlustun
Fjölskylduleikir
Fjölbreytt tungumál
Samvinnuleikir