Orðaforði, hreyfing og hlustun

Ýmsir leikir þjálfa grófhreyfingar og aðrir hlustunarskilning, en um leið orðaforða tengdan líkamanum og hreyfingum, hlutum og hugtökum. Margir leikir byggja á aðferð sem kallast “Total physical response” en þá er lagt upp úr að fyrirmæli séu gefin með því að hreyfa líkamann eða ákveðna líkamshluta. Börn sem ekki skilja orðin geta hermt eftir hinum börnunum í hópnum og þannig smátt og smátt aukið orðaforðann. Aðrir leikir hafa að markmiði að efla hlustunarskilning og einbeitingu um leið og ný orð eru kennd.
Þrautakóngur
Börnin eða kennarinn skiptast á að vera þrautakóngar og orða það sem þarf að gera. Ganga afturábak, á tánum, lyfta höndum, smella fingrum, blása, gretta sig, hoppa o.s.frv. Til þess að kenna orðin enn betur er hægt að endurtaka orðin í athöfnunum með taktföstum hryn um leið og börnin hreyfa sig.
Skuggalegur
Þegar sólin skín geta börnin farið út í hlaupaleik sem gengur út á að ná skugganum sínum eða skugga hvers annars. Kennarinn eða börnin geta gefið fyrirmæli um að hoppa á hinum ýmsu líkamshlutum skuggans og læra heiti þeirra um leið.
Hlaupa og hlusta
Kennarinn leggur einhverja hluti í fjögur horn rýmisins sem verið er að vinna í t.d. sokka, skó, stígvél og vettlinga eða hvaðeina sem honum kemur í hug. Kennarinn spilar tónlist (fjölbreytta tónlist frá ólíkum menningarheimum) og börnin hlaupa um dansa og hreyfa sig í takt við tónlistina. Þegar tónlistin hættir, nefnir kennarinn einn hlut og börnin hlaupa í það horn. Þetta er svo endurtekið. Þeir hlutir sem valdir eru til að setja í hornin geta verið hlutir sem kennarinn vill leggja áherslu á að tvítyngda barnið læri þann daginn. Áherslan getur verið á hluti, liti, form eða hvað sem er.
Dularfulla röddin
Börnin sitja í hring á gólfinu, eitt barn er valið til að standa upp og ganga fram fyrir hópinn og snúa baki í hann. Þá er annað barn valið til þess að segja halló (og nafnið á barninu sem snýr baki). Barnið sem stendur reynir að geta upp á því hver sagði halló og nafn þess. Ef það getur uppá réttu barni skipta þau um stað, ef ekki þá má barnið gera aftur. Markmiðið er að efla einbeitingu og hlustun.
Að para saman mynd og hljóð
Útbúið safn af myndum sem eru af hlutum sem gefa frá sér hljóð. Kennarinn situr með barninu sem er að læra íslensku og einu til tveimur öðrum börnum. Fyrirframtilbúin hljóðaspil þar sem hljóð eru spiluð af bandi og barn parar myndir við getur komið að sama gagni. Kennarinn gætir þess að vera góð málfyrirmynd og hvetur til réttrar málnotkunar. Kennarinn segir:
• Finndu myndina með dýrinu sem segir mjá
• Hvaða dýr er þetta?
• Getur þú búið til þetta hljóð?
• Finndu myndina með klukkunni
• Hvað segir klukkan?
Nafnaleikir
Gott er að leika nafnaleiki sem oftast, sérstaklega þegar börn eru nýbyrjuð í leikskólanum. Það hjálpar þeim að læra nöfnin hvert á öðru en um leið er hægt að vinna með annan orðaforða. Þetta eru leikir/söngvar eins og:
• Nú skulum við segja hvað við heitum.
“Nú skulum við segja hvað við heitum, nú skulum við segja hvað við heitum, hvað heitir þú?” (bent á barn og það segir nafnið sitt, t.d. Sigga) “Sigga, Sigga, já, já, já, Sigga, Sigga, já, já, já”. Börnunum finnst mjög skemmtilegt að gera ýmsar þrautir með þessum leik eins og að halda í eyrun á meðan við syngjum, halda fyrir nefið, krossleggja hendur á brjósti, smella fingrum, hafa tunguna úti o.s.frv. en með því getum við líka kennt líkamsheiti.
• Siggi datt í kolakassann....
• Siggi dansar á pallinum....
• “Jón og Gunna fóru í kaupstaðarferð, í ferð, í ferð, í kaupstaðarferð” og þá standa Jón og Gunna upp, leiðast og fara í röð og svo koll af kolli.
Jósep segir
Kennarinn og börnin skiptast á að vera Jósep sem gefur fyrirmæli um það hvaða líkamshluta megi hreyfa. T.d. Jósep segir hrista hendur, fætur, höfuð. Gott þegar verið er að kenna heitin yfir líkamshluta eða hreyfingar.
Tærnar hreyfa sig
Æfa sig að taka upp hluti með tánum. Börnin eða kennarinn skiptast á um að gefa fyrirmæli um það hvaða hluti eigi að taka upp með tánum og flytja á eitthvað annað svæði t.d. ofan í fötu, skúffu eða uppí hillu. Æfir m.a. afstöðuhugtök.
Hóký Póký
Börnin standa í hring og syngja hóký póký, kennarinn stjórnar leiknum og getur bætt við hefðbundinn texta að hreyfa tungu, augu, eyru, hár, setja rassinn inn, magann o.s.frv.
Hollinn skollinn með nýju sniði
Kennarinn bindur fyrir augu barns og það fer á milli barna og nefnir líkamshluta barnsins sem það snertir. Barnið sem er að leita þarf að finna ákveðið barn í hópnum en fyrirfram er búið að skoða hvaða börn eru í hópnum, hvar þau sitja og hvern á að finna hverju sinni.
Boltaleikur
Bolti látinn ganga hringinn í höndum barnanna eftir tónlist. Hratt, hægt, mjúkt, hart, lágt, hátt og börnin þurfa að hjálpast að við að halda boltanum gangandi þar til lagið stoppar.
Látið hlutinn ganga
Kennarinn safnar ólíkum hlutum í poka t.d. eins og bolta, dúkku, bolla, skærum, blýanti eða hlutum sem tilheyra ákveðnum orðflokkum ef að tilgangurinn er að kenna orðflokka. Börnin sitja í hring á gólfinu og kennarinn með þeim. Hann kveikir á tónlist, spilar takt eða annað á meðan einn hlutur úr pokanum er látinn ganga á milli barnanna. Þegar tónlistin stoppar spyr kennarinn barnið sem er með hlutinn hvað hann heiti. Þegar leiknir eru leikir af þessu tagi og börnin í hópnum hafa ólíka getu í málinu er hægt að hafa spurningarnar fjölbreyttar og við hæfi til að allir geti tekið þátt. Dæmi um það er:
• Hvað heitir hluturinn?
• Til hvers er hluturinn notaður?
• Hefur þú séð svona hlut áður?
• Hvernig er hluturinn á litinn?
• Er hluturinn harður/mjúkur/léttur/þungur?
• Er hægt að nota hlutinn í fleiri en einum tilgangi?
Flöskustútur
Börnin eða kennarinn sjá um að gefa fyrirmæli eins og: Sá sem flöskustúturinn lendir á hoppar á öðrum fæti, hristir hendur, heldur fyrir eyrun, gengur á tám, hoppar tíu sinnum á öðrum fæti, gengur aftur á bak, lyftir hnjám og svo mætti lengi telja. Á sama hátt og í leiknum hér að framan, látið hlutinn ganga, er hægt að hafa fyrirmælin fjölbreytt til þess að allir geti verið með.
Eftirhermur
Eitt barn hreyfir líkamshluta og hin börnin herma eftir án þess að tala. Endurtekið og þá eru líkamshlutarnir nefndir.
Slökun
Kennarinn hjálpar börnunum að slaka á með því að fara í afslöppunarleik þar sem hann nefnir líkamshlutana sem þarf að slaka á.