Hugmyndirnar og verkefnin sem er að finna hér á Fjölmenningarvefnum má hæglega tengja námssviðum í aðalnámskrá leikskóla og námskrá leikskólans:
• Stærðfræði, t.d. þegar notuð eru mynstur frá ólíkum menningarsvæðum eða þegar börnin læra að telja á ýmsum tungumálum.
• Tónlist og myndlist, t.d. þegar unnið er með fjölbreyttar hefðir í listsköpun, tónlist eða dansi. Einnig þegar kynnt er tónlist eða önnur list frá ólíkum menningarsvæðum.
• Samfélag og náttúra, t.d. þegar unnið er með heimamenningu barna, hátíðir og uppákomur. Þegar við útvegum okkur raunverulega hluti t.d. búninga, leirtau og myndir frá ólíkum menningarheimum í hlutverkakrók. Einnig þegar unnið er með dýr í ólíkum löndum eða ólíkar tegundir af byggingum.
• Málþroski, t.d. þegar unnið er með sögur og ævintýri á ýmsum tungumálum og frá ólíkum menningarsvæðum, eða börnin læra lög og texta á öðrum tungumálum. Einnig þegar verið er vinna að markvissri málörvun fyrir börn sem eru að læra íslensku sem annað mál og kennd eru orð á þeim tungumálum sem töluð eru í leikskólanum til þess að auka víðsýni barnanna og tilfinningu þeirra fyrir fjölbreytni tungumála.
• Félags- og tilfinningaþroski þegar unnið er með samvinnuverkefni, Persónubrúður, virðingu og samskipti í foreldra- og barnahópnum.