Vinnuferli og samráð

Haustið 2009 var vinnan kynnt formlega, megin markmið og áherslur endurskoðunar, ásamt áætlun um samráð við íbúa og hagsmunaaðila. Auglýst var sérstaklega eftir þátttöku borgarbúa og þeirra skipulagshugmyndum. Efnt var til opinna húsa í öllum 10 hverfum borgarinnar í október og nóvember 2008, auk þess sem aðalskipulagsvefurinn var opnaður. Opnu húsin voru vel sótt, en þar var lögð áhersla á þátttöku íbúa í vinnuhópum, auk þess sem megin áherslur endurskoðunar voru kynntar í byrjun hvers fundar.Afrakstur þessa samráðs eru hátt í 2000 tillögur og ábendingar frá borgarbúum um það sem betur má fara í hverfum borgarinnar. Einnig voru haldnir fimm morgunverðarfundir í Hafnarhúsinu veturinn 2009-2010, þar sem höfðað var til áhuga fagfólks, félagasamtaka og hagsmunaaðila um valda málaflokka aðalskipulagsins. Viðfangsefni fundanna, sem voru sérlega vel sóttir, voru meðal annars gæði og þétting byggðar, hæðir húsa, vistvænar samgöngur, heildarskipulag útivistarsvæða, vistvænar áherslur í hönnun og skipulagi hverfa, skipulag miðborgar og húsvernd.
Fjölmargir aðilar hafa einnig komið að stefnumörkun í lykil málaflokkum aðalskipulagsins. Haldnir hafa verið fjölmennir vinnufundir fagfólks, embættismanna og hagsmunaðila á Kjarvalsstöðum, alls sex fundir, þar sem fjallað hefur verið m.a. um gæði í manngerðu umhverfi,umhverfi og útivist, þróun vistvænnar byggðar, uppbyggingu og verndun í miðborginni, hæðir húsa, skólahverfið og framtíðar íbúðarhverfið og stefnu í húsnæðismálum.Aðalskipulagsvinnan hefur einnig verið kynnt í flestum ráðum borgarinnar og á ýmsum öðrum vettvangi.
Vorið 2010 voru lögð fram í stýrihópi endurskoðunar, frumdrög að nýju aðalskipulagi með helstu áherslum og megin markmiðum um byggðaþróun til ársins 2030 og framtíðarsýn til ársins 2050. Vegna borgarstjórnarkosninga vorið 2010 var frekari kynningu frumdraganna frestað en þau hafa verið til umfjöllunar í núverandi stýrihóp í vetur og nokkrar áherslubreytingar ákveðnar.
Áformað er að kynna drög að nýju aðalskipulagi næstkomandi haust og hefst þá nýtt kynningar- og samráðsferli. Lögð hefur verið fram skýrsla um stöðu vinnunnar og kynningarferlið framundan og má nálgast hana hér til hliðar.