Leiðarljós og áherslur
Að auka gæði hins manngerða umhverfis og lífsgæði borgarbúa. Að stefnumörkun um gæði í skipulagi og hönnun verði fylgt eftir á öllum stigum skipulags og uppbyggingar; í íbúðarhverfum, miðsvæðum, atvinnusvæðum, opnum svæðum, götusvæðum og öllu umhverfi milli bygginga
Að stuðla að sjálfbærri og hagkvæmri þróun byggðar. Að meirihluti allra nýrra íbúða verði byggðar innan núverandi byggðar. Að með þéttingu byggðar og jafnvægi í dreifingu starfa verði almennt dregið úr vegalengdum milli vinnustaða og heimila og fjölbreyttara val ferðamáta verði tryggt
Að skapa vaxtarskilyrði fyrir fjölbreytt atvinnulíf. Að sett verði fram markviss stefna um atvinnusvæði og hlutverk hvers svæðis í þróun atvinnulífs. Að tryggja rými fyrir atvinnustarfsemi á sviði sjávarútvegs, iðnaðar, flutninga, verslunar- og þjónustu, viðskipta, stjórnsýslu, hátækni, rannsókna og þekkingar, ferðamennsku, menningar og afþreyingar
Að skapa lifandiog skemmtilega miðborg. Efling miðborgar verði leiðarljós í allri stefnumörkun og við ákvarðanir á öllum stigum skipulags og framkvæmda
Að skapa fjölbreytta búsetukosti og húsnæðisframboð fyrir alla félagshópa. Að tryggt verði framboð húsnæðis í þéttri byggð jafnt og í hefðbundnum úthverfum. Að framboð og blöndun húsagerða í hverju hverfi verði ákvarðað útfrá markmiðum um sjálfbærni hverfa og ágrundvelli heildrænnar húsnæðisstefnu
Að vistvænar samgöngur verði efldar. Að öllum ferðamátum verði gert jafn hátt undir höfði á öllum stigum skipulagningar og uppbyggingar
Að viðhalda og vernda borgargarða og útivistarsvæða og tryggja flestum nálægð við náttúru og opin svæði
Að auka lífsgæði borgarbúa
Að skapa sátt um skipulagsstefnu borgarinnar