Umhverfismat
Tilgangur umhverfismats aðalskipulagsins er:
- Að tryggja að tekið sé tillit til umhverfissjónarmiða við gerð aðalskipulagsins, í því skyni að stuðla að umhverfisvernd og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum byggðaþróunar
- Að meta umhverfisáhrif mismunandi valkosta um byggðaþróun og stuðla þannig að upplýstri og gegnsærri ákvarðanatöku við mótun aðalskipulagsins
Umhverfismat aðalskipulagsins er í megin atriðum tvíþætt:
- Umhverfismat valkosta um byggðaþróun til lengri framtíðar, þar sem sérstaklega eru könnuð áhrif þróunar á samgöngur, gróðurhúsalofttegundir og orkunotkun
- Umhverfismat tillögu að nýju aðalskipulagi, þar sem m.a. eru metin staðbundin áhrif breyttrar landnotkunar og gatnaskipulags
Umhverfismat aðalskipulagsins er unnið í samstarfi við VSÓ-ráðgjöf.Hér á síðunni verður að finna gögn og skýrslur um umhverfismat aðalskipulagsins.