Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Megin forsendur

Aðalskipulag borgarinnar byggist á ákveðinni sýn um mögulega þróun hennar til langrar framtíðar. Slík sýn og aðrar framtíðarspár eru ávallt háðaróvissu í efnahagsþróun, ekki síst nú á tímum. Spár til framtíðar grundvallast á greiningu á undirliggjandi þróun (megatrends) en byggjast einnig á huglægu mati yfirvalda og hagsmunaðila, á líklegri og æskilegri þróun í samfélaginu.

Hvernig mun Reykjavík standi sig í samkeppninni um nýja íbúa og ný atvinnutækifæri? Hvernig mun Íslandi reiða af í samkeppni þjóðanna? Mun höfuðborgarsvæðið halda áfram að vaxa hraðar en önnur svæði landsins eða munu spretta fram ný vaxtarsvæði? Hvernig mun aldurssamsetning íbúanna breytast? Hvaða áhrif hafa breyttar fjölskyldustærðir á skipulag íbúðarhverfanna? Hvernig mun ný tækni breyta ferðavenjum?

Allt eru þetta spurningar sem velt er upp við endurskoðun aðalskipulagsins. Hér á síðunni munu birtast ýmsar forsendur um þróun Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins til framtíðar.