Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Umhverfismat

Tilgangur umhverfismats aðalskipulagsins er:

Að tryggja að tekið sé tillit til umhverfissjónarmiða við gerð aðalskipulagsins, í því skyni að stuðla að umhverfisvernd og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum byggðaþróunar

Að meta umhverfisáhrif mismunandi valkosta um byggðaþróun og stuðla þannig að upplýstri og gegnsærri ákvarðanatöku við mótun aðalskipulagsins.

Umhverfismat aðalskipulagsins er í megin atriðum tvíþætt:

Umhverfismat valkosta um byggðaþróun til ársins 2040+, þar sem sérstaklega eru könnuð áhrif þróunar á samgöngur, gróðurhúsalofttegundir og orkunotkun.

Umhverfismat tillögu að nýju aðalskipulagi, þar sem m.a. eru metin staðbundin áhrif breyttrar landnotkunar og gatnaskipulags

Umhverfismat aðalskipulagsins er unnið í samstarfi við VSÓ-ráðgjöf. Hér að neðan er að finna gögn og skýrslur um umhverfismat aðalskipulagsins.