Kynningar og samráð
Fyrir liggur endurskoðuð tímaáætlun um helstu skref í aðalskipulagsvinnunni til áramóta. Nánari áætlun um kynningarfundi og opin hús verður kynnt rækilega síðar.
·Uppfærð verkefnislýsing verður kynnt og lögð til umsagnar í júní-júlí 2011, sbr. 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin verður send til umsagnaraðila á ný og gerð aðgengileg á vefsvæðum Reykjavíkurborgar. Vakin verður athygli á henni með auglýsingu í fjölmiðli.
·Tillaga að nýju aðalskipulagi og umhverfismati verða kynnt á opnum fundum í september-október 2011, ásamt tillögu að breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins,sbr. 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagstillögur verða einnig kynntar umsagnaraðilum og nágrannasveitarfélögum.
·Áformað er að samþykkja nýtt aðalskipulag í auglýsingu í nóvember 2011, sbr. 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010
·Opinber auglýsing tillögu í nóvember-desember 2011, ásamt tillögu að breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sbr. 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010
·Stefnt er að staðfestingu nýs aðalskipulagsí byrjun árs 2012.