Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Gatan sem borgarrými

Of stór hluti borgarlandsins fer undir götur og samgöngumannvirki. Allt að 48% af þéttbýli borgarinnar, stærri útivistarsvæðin þá undanskilin, fer undir samgöngur og helgunarsvæði þeirra.  Þetta þýðir í raun að yfir 80% af opnum rýmum, milli húsanna í borginni, fer undir samgöngur. Þessar staðreyndir undirstrika nauðsyn þess að meta götur ekki eingöngu sem samgönguæðar heldur einnig sem hluta af almenningsrými borgarinnar. Þær undirstrika einnig mikilvægi þess að setja fram heildstæðar og markvissar áætlanir um hönnun og skipulag þessara rýma.

Í nýju aðalskipulagi er lögð áhersla á að götur séu metnar sem mikilvægur hluti af almenningsrýma borgarinnar og að stuðlað verði að heildstæðri hönnun þeirra útfrá sjónarhóli borgarhönnunar.

Hér á síðunni verða birt kynningargögn sem varða stefnu um götuna sem borgarrými.


 

sendu okkur hugmynd