Örfirisey Keldur, þróunarás

Nýtt aðalskipulag leggur áherslu á þróunarás sem tengir miðborgina við þéttingarsvæði til vesturs og austurs; við Örfirisey,Mýrargötusvæði, Suðurlandsbraut, Skeifu, blandaða byggð í Elliðaárvogi og framtíðar atvinnukjarna í Keldnalandi. Á þessum ás, Örfirisey-Keldur, verður lögð sérstök áhersla á almenningssamgöngur (hraðleið og forgangur strætisvagna), hjólastíga og umhverfi gangandi vegfarenda. Ásinn, sem er um 10 km að lengd, mun hafa einkenni borgargötu, þar sem vistvænir ferðamátar verða í fyrirrúmi. Lögð er áherslu á mestan þéttleika og blöndun byggðar næst ásnum og við lykil skiptistöðvar strætisvagna. Annar sambærilegur ás getur legið til suðurs þegar byggð tekur að rísa í Vatnsmýrinni.
Hér á síðunni verða birt kynningargögn sem varða stefnu um þróunarásinn.