25.11.2009
Borgarstjórnarfundur 17. nóvember 2009
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2009, þriðjudaginn 17. nóvember, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Kristján Guðmundsson.
Fundarritari var Gunnar Eydal.
Þetta gerðist:
1. Forseti ákvað að 1. og 2. dagskrárliður á útsendri dagskrá yrðu ræddir undir einum lið.
Lagðar fram svohljóðandi tillögur Ólafs F. Magnússonar:
1. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að menntaráð og leikskólaráð sameinist á ný og verði að einu ráði í stað tveggja. Ennfremur samþykkir borgarstjórn að mannréttindaráð og velferðarráð verði sameinuð í eitt ráð.
Jafnframt verði þau svið sem heyra undir þessi ráð sameinuð.
2. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að ekki verði heimilt fyrir kjörna fulltrúa að fara í fleiri en eina ferð utanlands árlega á kostnað borgarbúa.
Ennfremur samþykkir borgarstjórn að kjörnir fulltrúar greiði kostnað vegna boðsferða sem þeir þiggja úr eigin vasa.
Samþykkt með 14 atkvæðum gegn 1 að vísa tillögu Ólafs F. Magnússonar merktri 1 til stjórnkerfisnefndar.
Samþykkt með 14 atkvæðum gegn 1 að vísa tillögu Ólafs F. Magnússonar merktri 2 til forsætisnefndar.
2. Ólafur F. Magnússon leggur fram svohljóðandi tillögu:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að kjörnir borgarfulltrúar í Reykjavík leggi fram læknisvottorð um að þeir séu hæfir til starfa sinna sem kjörnir fulltrúar í Borgarstjórn Reykjavíkur.
Borið undir atkvæði að taka tillöguna á dagskrá og hlaut það 2 atkvæði og því ekki stuðning.
3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar um eflingu þekkingarþorps og háskólatengdrar starfsemi í Vatnsmýri:
Lagt er til að Reykjavíkurborg taki forystu um samstarf nýs Landspítala, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík sem hafi að markmiði að tryggja að þau sóknarfæri sem skapist með kröftugri uppbyggingu þekkingarstarfsemi í Vatnsmýri verði nýtt til fullnustu.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til borgarráðs.
4. Borgarstjórn samþykkir að taka svohljóðandi tillögu borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um Græna stafræna sáttmálann á dagskrá:
Borgarstjórn samþykkir að borgarstjóri fyrir hönd Reykjavíkurborgar undirriti „Græna stafræna sáttmálann“ um vistvæna upplýsingatækni á aðalfundi Eurocities-samtakanna í Stokkhólmi þann 27. nóvember nk. Þjónustuskrifstofu verði falið að innleiða sáttmálann í samstarfi við umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Tillagan samþykkt samhljóða.
- Kl. 15.32 víkur Kristján Guðmundsson af fundi og Elínbjörg Magnúsdóttir tekur þar sæti.
5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að hefja undirbúning að vinnu við eldfjallaþjóðgarð á Reykjanesi. Tillagan verði unnin í samráði við önnur sveitarfélög á höfuðborgasvæðinu og verkefninu stýrt af stjórn Reykjanesfólkvangs.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Gerð var sú breyting á tillögunni að þar skyldi standa „eldfjallagarður“ í stað „eldfjallaþjóðgarður.“
Tillagan samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum og jafnframt vísað til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.
6. Fram fer umræða um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og afgreiðsla á ákvörðun stjórnar um útgáfu skuldabréfaflokks. Jafnframt lagður fram 23. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember.
- Kl. 16.15 víkur Óskar Bergsson af fundi og Guðlaugur Sverrisson tekur þar sæti.
- Kl. 16.44 víkur Oddný Sturludóttir af fundi og Dofri Hermannsson tekur þar sæti.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Ég vísa til bókunar minnar í borgarráði frá 12. nóvember sl., þar sem segir: „Ég mótmæli harðlega fyrirætlunum um lántökur til ósjálfbærra og óarðbærra orkuframkvæmda og orkusölu á undirverði hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Það lýsir fullkomnu ábyrgðarleysi af hálfu meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borginni að ætla að skuldsetja Orkuveitu Reykjavíkur svo rækilega að komandi kynslóðir þurfi að bera skuldabaggann um langan aldur.“ Samkvæmt minnisblaði fjármálastjóra er núverandi lántöku fyrst og fremst ætlað að breyta skammtímaskuldum í langtímaskuldir, en fyrirætlan borgaryfirvalda er sú að halda áfram lántökum til að fjármagna Hellisheiðar- og Hverahlíðarvirkjanir, að ekki sé talað um enn frekari óráðsíuframkvæmdir á kostnað almannahagsmuna og náttúruverndar. Ég ber ekki minnsta traust til núverandi meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Ég treysti þeim meirihluta ekki einu sinni til að verja þeim lánum sem nú á að taka til þess sem þau eru sögð vera ætluð, heldur í áframhaldandi óarðbærar og ósjálfbærar óráðsíuframkvæmdir með tilheyrandi hættu á þurrð hitavatnsauðlindarinnar sem umlykur höfuðborgarsvæðið. Þar sem ekkert er að marka orð og fyrirheit núverandi meirihluta í Reykjavík, greiði ég atkvæði gegn frekari lántökum á vegum Orkuveitu Reykjavíkur. Það gæti einfaldlega sett þetta dýrmæta fyrirtæki borgarbúa á höfuðið og greitt fyrir fyrirætlunum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að koma hitavatnsauðlindinni sem og öðrum auðlindum almennings í hendur einkaaðila.
Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað:
Allt frá því að Orkuveita Reykjavíkur var stofnuð um aldamót hefur fyrirtækið verið að fjarlægjast eigendur sína og á sama tíma hefur eiginfjárhlutfall þess stöðugt minnkað. Þegar fyrirtækið var stofnað 2001 var eiginfjárhlutfall þess tæplega 60% en nú er það komið í 14%. Það er ljóst að gengistapi er ekki einu um að kenna, heldur hljóta óábyrgar fjárfestingar að hafa haft talsverð áhrif. Fulltrúar Vinstri grænna telja enn brýnt að fjármálaskrifstofu borgarinnar verði falið að framkvæma úttekt og áhættumat á rekstri Orkuveitunnar og í kjölfarið verði fjárfestingastefna og áframhaldandi rekstur fyrirtækisins endurskoðuð. Þá mætti jafnvel hugsa sér að sá kostur yrði skoðaður að Orkuveitan verði aftur gerð að hluta sveitarfélagsins í stað sérstaks fyrirtækis.
23. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember, lán til Orkuveitu Reykjavíkur, samþykktur með 8 atkvæðum gegn 1.
7. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 12. nóvember.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað vegna 3. liðar fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember:
Á fundi hverfisráðs Háaleitis 3. nóvember sl. kynnti ég fyrir fundarmönnum tillögu sem ég flutti síðar um daginn um umferðaröryggi og hraðahindrandi aðgerðir í Háaleitis- og Bústaðahverfi í Borgarstjórn Reykjavíkur. Í tillögunni var gert ráð fyrir 30 km svæði á Háaleitisbraut allri, á Bústaðavegi frá Háaleitisbraut að Reykjanesbraut, á Réttarholtsvegi öllum og á Stjörnugróf allri. Sumar aðgerðir í anda þessara tillagna hófust í borgarstjóratíð minni, m.a. velheppnaður 30 km kafli á Háaleitisbraut norðan Miklubrautar, auk hraðahindrandi aðgerða í Fellsmúla og á Réttarholtsvegi. En eftir að núverandi meirihluti tók skyndilega við stjórnartaumum í borginni var jafn skyndilega skrúfað fyrir allar umferðaröryggisaðgerðir í Háaleitishverfi, sem og annars staðar í borginni, en þessar tillögur hafði ég sett á dagskrá eftir fundi mína með íbúum í öllum hverfum Reykjavíkurborgar vorið 2008. Tillaga mín í borgarstjórn 3. nóvember sl. var svæfð eins og fjölmargar aðrar tillögur sem ég hef flutt í borgarráði og borgarstjórn á þessu og síðasta ári. Það virðist engin áhrif hafa á meirihlutann í borgarstjórn þó að hverfisráð Háaleitis, að meðtöldum fulltrúum íbúasamtaka Háaleitis- og Bústaðahverfa, hafi á fundi sínum fyrr um daginn lýst eindregnum og einróma stuðningi við tillögu mína um hraðahindrandi aðgerðir í Háaleitis- og Bústaðahverfi.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað vegna 18. liðar fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember:
Höfðatorgsmálið ber í senn vott um svæsna fyrirgreiðslupólitík í þágu byggingarfélagsins Eyktar og óráðsíu allra flokka í borgarstjórn nema F-listans. Það lýsir yfirgengilegum skorti á ráðdeildarsemi með almannafé að borgin taki á leigu húsnæði fyrir milligöngu pólitískra fyrirgreiðslumanna í stað þess að nýta vel eigið húsnæði.
8. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 6. og 13. nóvember, framkvæmda- og eignaráðs frá 2. nóvember, íþrótta- og tómstundaráðs frá 23. október, leikskólaráðs frá 4. nóvember, menningar- og ferðamálaráðs frá 9. nóvember, menntaráðs frá 11. nóvember, skipulagsráðs frá 4. og 11. nóvember, umhverfis- og samgönguráðs frá 27. október og velferðarráðs frá 9. og 28. október.
Fundi slitið kl. 18.36
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Gísli Marteinn Baldursson Sóley Tómasdóttir