Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

06.04.2010

Borgarstjórnarfundur 3. desember 2009

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2009, fimmtudaginn 3. desember, var haldinn aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Dagur B. Eggertsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Gunnar Hólm Hjálmarsson, Marta Guðjónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Fjárhagsáætlun 2010; fyrri umræða.
Lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 ásamt greinargerð og starfsáætlunum. Jafnframt lagðir fram eftirtaldir liðir úr fundargerð borgarráðs frá 1. desember: 4. liður, tillaga borgarstjóra um lántöku vegna framkvæmda, 5. liður, tillaga borgarstjóra ásamt breytingartillögu borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna um álagningarhlutfall útsvars 2010, 6. liður, tillögur borgarstjóra um hlutfall fasteignaskatts og lóðarleigu 2010, og 7. liður, tillaga borgarstjóra um viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega 2010.

- Kl. 10.35 tekur Sigrún Elsa Smáradóttir sæti á fundinum.
- Kl. 10.45 víkur Marta Guðjónsdóttir af fundi og Kristján Guðmundsson tekur þar sæti.
- Kl. 12.12 er gert hlé á fundi.
- Kl. 12.42 er fundi fram haldið og tekur þá Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sæti á fundinum og Kristján Guðmundsson víkur af fundi.

 Borgarfulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra óskar bókað:

F-listi frjálslyndra og óháðra mótmælir þeirri forgangsröðun sem fram kemur í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2010. Á sama tíma og teknar eru háar upphæðir að láni til að fjármagna Tónlistar- og ráðstefnuhús og fleiri óarðbærar framkvæmdir er mikill niðurskurður til mennta-, velferðar- og öryggismála. Besta fjárfestingin við þær aðstæður sem nú ríkja í borginni er öflugt mennta- og velferðarkerfi til að undirbúa og styðja ungt fólk til að takast á við lífið og viðhalda færni þess til að taka virkan þátt í atvinnulífinu þegar aðstæður breytast aftur til batnaðar.

- Kl. 14.10 víkur Sif Sigfúsdóttir af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.

Tillaga borgarstjóra um lántöku vegna framkvæmda, sbr. 4. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. desember, samþykktur með 8 atkvæðum gegn 1.
Breytingatillaga borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna við tillögu borgarstjóra um álagningarhlutfall útsvars, sbr. 5. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. desember, felld með 8 atkvæðum gegn 2.
Tillaga borgarstjóra um álagningarhlutfall útsvars 2010, sbr. 5. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. desember, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.
Tillaga borgarstjóra um hlutfall fasteignaskatts 2010, sbr. 6. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. desember, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.
Tillaga borgarstjóra um hlutfall lóðarleigu 2010, sbr. 6. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. desember, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.
Tillaga borgarstjóra um viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega 2010, sbr. 7. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. desember, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2010, ásamt greinargerð og starfsáætlunum, til síðari umræðu.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 1. desember.

Fundi slitið kl. 14.18

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

 Jórunn Frímannsdóttir      Sóley Tómasdóttir