Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

06.04.2010

Borgarstjórnarfundur 15. desember 2009

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2009, þriðjudaginn 15. desember, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Kjartan Eggertsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Fjárhagsáætlun 2010; síðari umræða.
Lagt fram að nýju frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 ásamt greinargerð og starfsáætlunum. Jafnframt lagður fram 19. liður fundargerðar borgarráðs frá 10. desember, breytingatillögur við frumvarpið vegna innri leigu, merktar 1-5, og breytingatillögur borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna við frumvarpið.

Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks leggja fram svohljóðandi breytingatillögur við frumvarpið:

BD-1 Atvinnuþróunarátak/sóknaráætlun (SAM)
Lagt er til að varið verði 40.000 þ.kr. til verkefna vegna atvinnuþróunarátaks/sóknaráætlunar. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

BD-2 Fjárhagsaðstoð (VEL)
Lagt er til að varið verði 142.000 þ.kr. til að hækka grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu um 8,63% í samræmi við verðlagsbreytingar síðustu 12 mánaða. Þannig mun grunnfjárhæð til einstaklinga fara úr kr. 115.567 í kr. 125.540 og grunnfjárhæð til hjóna og fólks í skráðri sambúð úr kr. 184.907 í kr. 200.864. Jafnframt hækka sérstakar heimildargreiðslur vegna barna samsvarandi eða um 8,63% í samræmi við verðlagsbreytingar, úr kr. 11.635 í kr. 12.640. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

BD-3 Reykjanesfólkvangur (USR)
Lagt er til að varið verði 10.000 þ.kr. til eldfjallaþjóðgarðs á Reykjanesi sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 17. nóvember 2009. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

BD-4 Frístundasamgöngur (USR)
Lagt er til að varið verði 10.000 þ.kr. til þróunar á hugmyndum að umhverfisvænum frístundasamgöngum fyrir börn innan hverfa. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

BD-5 Árstíðabundin hreinsun á borgarlandinu (USR)
Lagt er til að varið verði 20.000 þ.kr. til árstíðabundinnar hreinsunar á borgarlandinu. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

BD-6 Rekstur ÍTR á Kjalarnesi (ÍTR/MSR)
Lagt er til að 36.994 þ.kr. verði fluttar frá íþrótta- og tómstundasviði til menntasviðs vegna flutnings á rekstri ÍTR á Kjalarnesi yfir til Klébergsskóla.

BD-7 Rekstur sparkvalla (ÍTR/MSR)
Lagt er til að 44.768 þ.kr. verði fluttar frá íþrótta- og tómstundasviði til menntasviðs vegna flutnings á rekstri sparkvalla yfir til grunnskóla.

BD-8 Viðbygging við Korpuskóla (ES)
Lagt er til að fjárfestingaáætlun eignasjóðs verði hækkuð um 40.000 þ.kr. sem varið verði til hönnunar viðbyggingar við Korpuskóla og til að hefja framkvæmdir.

BD-9 Íþróttahús við Sæmundarskóla (ES)
Lagt er til að gerð verði tilfærsla innan fjárfestingaáætlunar eignasjóðs þannig að 70.000 þ.kr. verði varið til framkvæmda við nýtt íþróttahús við Sæmundarskóla og á móti verði framkvæmd fyrir sömu fjárhæð við gervigrasvöll í Úlfarsárdal frestað.

Borgarfulltrúar Samfylkingar leggja fram svohljóðandi breytingatillögu við frumvarp að fjárhagsáætlun:

S-1 Hækkun grunnframfærslu fjárhagsaðstoðar
Lagt er til að varið verði 192.385 þ.kr. til að hækka fjárhagsaðstoð til samræmis við hækkun lágmarkslauna, um 13.500 kr. á mánuði, frá og með 1. janúar 2010. Heimildargreiðslur vegna barna hækki í sama hlutfalli og grunnaðstoðin. Til verkefnanna verði nýttir fjármunir af liðnum ófyrirséð.

Borgarfulltrúar Samfylkingar leggja jafnframt fram svohljóðandi tillögur varðandi fjárhagsáætlun:

S-2 Bann við innihaldslausum yfirboðum
Borgarstjórn samþykkir að engar ákvarðanir sem leiða af sér kostnað fyrir borgarsjóð verði samþykktar fram að komandi kosningum án þess að ýtarlegt mat á heildarkostnaði, afleiddum rekstrarkostnaði og samanburði við aðrar mögulegar leiðir til að ná sama markmiði liggi fyrir. Jafnframt þurfi að sýna fram á hvernig viðkomandi skuldbinding rúmist innan fjárhagslegs svigrúms Reykjavíkurborgar til framtíðar og til hvaða aðgerða verði gripið til að eiga fyrir því. Í því skyni að leggja grunn að slíku mati verði lögð fram greining á fjárhagslegu umhverfi og þróun lykilstærða í efnhag og rekstri Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára.

S-3 Óafgreiddar tillögur starfsfólks
Starfsfólk Reykjavíkurborgar tók virkan þátt í hugmyndafundum um sparnað hjá Reykjavíkurborg sl. vor að tillögu minnihluta borgarstjórnar. Áberandi er að mörgum þeirra tillagna sem beindust að yfirstjórn borgarinnar hefur verið stungið undir stól. Ýmsar þeirra geta þó sparað umtalsverða fjármuni. Eftirfarandi tillögur byggðar á hugmyndum starfsfólks eru lagðar fram til sparnaðar:
1. Embættisbíl forseta borgarstjórnar verði skilað og bílakostur Ráðhússins samnýttur.
2. Myndastyttugerð á vegum borgarinnar verði frestað.
3. Unnar verði tillögur um aukinn samrekstur, samnýtingu og samvinnu sviða og ráða borgarinnar. Mennta- og leikskólasvið verði sameinuð.
4. Gert verði átak í rafrænni stjórnsýslu.
Samþykkt tillagnanna getur haft í för með sér tugmilljóna sparnað á ári en nákvæmt mat á því liggur ekki fyrir.

S-4 Ódýrari frístundir fyrir börn og fjölskyldur
Borgarstjórn samþykkir að ganga til viðræðna við íþróttafélög, æskulýðssamtök, tónlistar- og listaskóla og aðra aðila sem sinna uppbyggilegu frístundastarfi í Reykjavík. Markmið viðræðnanna verði að lækka kostnað fjölskyldna og barna og einfalda aðgengi að íþróttum, frístundum og listnámi þrátt fyrir efnahagsþrengingar. Stefnt verði að almennri og meiri þátttöku á verði sem fleiri ráða við. Sérstaklega verði hugað að úrræðum þeirra sem búa við þröngan fjárhag heima fyrir. Í samvinnu við foreldra og forystu þeirra sem fyrir starfseminni standa verði horft til kostnaðar vegna æfingagjalda, fjölda æfinga, kennslustunda og fyrirkomulags auk útgjalda vegna ýmiss konar fatnaðar, búnaðar og ferðalaga. Í hverju hverfi og hverjum skóla verði jafnframt hugað að leiðum til að frístundir verði hluti af samfelldum skóladegi, þannig að dregið verði úr þörf fyrir dýrt skutl foreldra. Þá verði könnuð hagkvæmni þess að efla eða jafnvel fjölga skólahljómsveitum. Allt að hundrað milljónum króna geti runnið til verkefnanna af liðnum ófyrirséð.

S-5 Öflugri forvarnir og stuðningur til stofnana vegna álags í kjölfar kreppu
Borgarstjórn samþykkir að setja til hliðar fé til að mæta auknu álagi í leikskólum, skólum, frístundamiðstöðvum, barnavernd, þjónustumiðstöðvum og öðrum starfsstöðum í hverfum borgarinnar sem verða fyrir auknu álagi vegna afleiðinga efnahagshrunsins. Sérstök greining verði gerð á þörf fyrir aukinn stuðning í hverju hverfi, s.s. sameiginlegar unglingavaktir Reykjavíkurborgar og lögreglu um helgar, eða aukinn stuðning við uppbyggilegt starf. Jafnframt verði byggt á mati á afleiðingum niðurskurðar í skólum og þjónustu en ekkert slíkt mat liggur fyrir. Forgangsröðun fjármuna, reglur um mat á verkefnum og úrræðum, verði unnið í samvinnu við velferðarvaktina, börnin í borginni og samráðsnefndir í hverfum borgarinnar. Einnig geta einstök verkefni í samvinnu við lögreglu, félagasamtök, stofnanir ríkisins eða aðra samstarfsaðila Reykjavíkurborgar fallið undir ofangreindar fjárveitingar. Til ofangreindra forvarnaverkefna vegna afleiðinga efnahagshrunsins verði veitt allt að 100 milljónum árið 2010 af liðnum ófyrirséð.

S-6 Sparnaður í yfirstjórn – styrking hverfaþjónustu
Borgarstjórn samþykkir að styrkja beri þá þjónustu sem verður fyrir auknu álagi og útgjöldum vegna efnahagshrunsins, s.s. starfsemi þjónustumiðstöðva, barnavernd og einstaka samstarfsaðila borgarinnar sem fá greitt gegnum þjónustusamninga. Þetta verði gert með flutningi á mannafla, stöðugildum og fjármunum úr yfirstjórn borgarinnar út í hverfin. Fjármagn verði flutt milli viðkomandi liða.

S-7 Endurreisn Aflvaka
Borgarstjórn samþykkir að endurreisa Aflvaka, þróunar- og nýsköpunarfélag Reykjavíkurborgar í atvinnumálum. Markmið félagsins verði að efna til samstarfs opinberra aðila og einkaaðila um að laða fjárfestingu til borgarinnar og leita leiða við að leiðbeina og auðvelda einstaklingum að stofna og reka fyrirtæki í Reykjavík. Meðal nýrra áherslusviða verði verkefni á sviði þekkingariðnaðar, kvikmyndagerðar og annarra skapandi greina, í samræmi við fyrri tillögur Samfylkingarinnar.

S-8 Framkvæmdafé verði forgangsraðað í þágu viðhaldsverkefna
Borgarstjórn samþykkir að samhliða endurskoðun fjárhagsáætlunar verði framkvæmdaáætlun borgarinnar stokkuð upp og lögð fram að nýju í tengslum við samþykkt þriggja ára áætlunar. Næstu þrjú ár, 2010-2012, verði farið í átaksverkefni á viðhaldi fasteigna borgarinnar og endurnýjun opinna svæða. Skilgreint verði allt fyrirsjáanlegt meiriháttar viðhald á fasteignum borgarinnar og ráðist í það á næstu þremur árum. Til að mæta kostnaði vegna verkefnisins verði hægt á nýframkvæmdum og þeim frestað eftir því sem mögulegt er. Stefnt verði að því að allt að 50-75% af framkvæmdafé borgarinnar renni þannig til viðhaldsverkefna næstu þrjú ár meðan samdráttar gætir á byggingamarkaði. Miðað við óbreytt framkvæmdafé næstu ára þýðir þetta að allt að 7,5-12 milljörðum verði veitt til viðhalds fremur en nýframkvæmda. Með þessu móti má að minnsta kosti tvöfalda fjölda þeirra starfa sem til verða fyrir framkvæmdafé borgarinnar.

S-9 Aðgerðir í atvinnumálum og virkar vinnumarkaðsaðgerðir
Borgarstjórn samþykkir að ganga til samstarfs við Vinnumálastofnun, félagsmálaráðuneytið og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um átaksverkefni í atvinnumálum. Einkum skal leggja áherslu á úrræði í þágu hópa sem standa höllum fæti á vinnumarkaði. Frekari aðgerðir í þágu atvinnumála ungs fólks með sérstakri áherslu á sumarstörf og uppbyggjandi starf með ungu fólki samkvæmt nánari tillögum atvinnumálahóps. Efnt verði til samstarfs við stéttarfélög og Samtök iðnaðarins um eflingu Völundarverks, verkefnis um endurgerð gamalla húsa. Útfærðar verði tillögur um hvernig verkefnið geti náð til fleiri eldri húsa í opinberri eigu eða einkaeign, til atvinnusköpunar og prýði í borginni. Til verkefnanna verði nýttir fjármunir af liðnum atvinnumál.

S-10 Tækifæri í auðu húsnæði og hagræðing í húsnæðismálum
Borgarstjórn samþykktir að dýrir leigusamningar við einkaaðila sem taka til sín mikið fé, s.s. Höfðatorg og Egilshöll í Grafarvogi, verði endurskoðaðir. Þá verði kortlögð þau tækifæri sem geti falist í auðu og óseldu húsnæði víðs vegar um borgina, umfang þeirra og staðsetning. Sérstaklega verði kannað hvar ýmis konar nýsköpunarsetur, sprotahótel og/eða listasmiðjur geti átt heima. Samhliða verði unnar tillögur sem miði að betri nýtingu húsnæðis borgarinnar fyrir ýmsa starfsemi í hverfum. Hagræðing í húsnæðismálum verði ætlað að skila allt að 2-5% sparnaði á næstu þremur árum.

Borgarfulltrúar Vinstri grænna endurflytja breytingatillögur sínar við frumvarp að fjárhagsáætlun svo breyttar:

V-1 Lagt er til að útsvar verði hækkað upp í 13,18% og þeirri upphæð sem af því leiðir verði varið með eftirfarandi hætti:
a. 240.000 þ.kr. verði varið í hækkun á fjárhagsaðstoð og heimildargreiðslum (VÞ1020-VÞ1021).
b. 119.000 þ.kr. verði varið í framlag til grunnskólanna (M2101-M2170 og M282-M2187) og veittur verði frekari systkinaafsláttur á skólamáltíðir. Þannig verði aðeins tekið gjald fyrir eitt barn á heimili en önnur börn með sama lögheimili fái gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
c. 20.000 þ.kr. verði varið í framlög til grunnskólanna (M2101-M2170 og M282-M2187) og þannig verði tryggðar vettvangsferðir á þeirra vegum, þó þannig að kostnaður falli ekki á heimilin.
d. 11.500 þ.kr. verði varið í að hækka styrki til fræðslumála og þróunarsjóðs (M5001).
e. 27.000 þ.kr. verði varið í fjölgun starfsfólks hjá Barnavernd Reykjavíkur (09205).
f. 20.000 þ.kr. verði varið í að efla markaðsstarf Höfuðborgarstofu (07400) og sinna landvörslu í Reykjavík í sumar.
g. Kr. 4.276.760 verði varið í að hækka þá liði sem þarf til að framlög til eftirfarandi samtaka verði verðbætt miðað við 8,6% verðbólgu: Kvennaathvarf, SÁÁ, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Vímulaus æska, Stígamót, Geðvernd, Krossgötur, Dyngja og Vernd.

V-2 Lagt er til að liðurinn atvinnumál ungs fólks (0750) verði felldur út en þeim 150 milljónum sem þar er gert ráð fyrir verði varið með eftirfarandi hætti:
a. 40.000 þ.kr. verði færðar yfir á framlag til atvinnumála á íþrótta- og tómstundasviði (I2050).
b. 80.000 þ.kr. verði færðar á sérstakan lið atvinnuátaksverkefna hjá mannauðsskrifstofu.
c. 15.000 þ.kr. verði færðar á sérstakan lið atvinnuátaksverkefna hjá mannréttindaskrifstofu (01271).
d. 15.000 þ.kr. verði færðar yfir á framlag til Námsflokka Reykjavíkur (M4001).

V-3 Lagt er til að af liðnum ófyrirséð (09205) verði teknar kr. 160.636.947 og þeim varið með eftirfarandi hætti:
a. Kr. 75.636.947 verði færðar yfir á framlag til frístundaheimila (I71) svo áfram verði hægt að bjóða upp á öflugt og óskert starf á frístundaheimilum.
b. 35.000 þ.kr. verði færðar yfir á framlag til frístundamiðstöðva (I301-I309) svo hægt verði að efla frístundastarf með börnum í 5.-7. bekkjum grunnskólanna á árinu 2010.
c. 50.000 þ.kr. verði færðar yfir á framlag til atvinnumála á íþrótta- og tómstundasviði (I2050).

V-4 Lagt er til að 127.000 þ.kr. verði færðar af liðnum þjónustutrygging (D610) og þeim varið með eftirfarandi hætti:
a. 90.000 þ.kr. verði færðar á framlag til leikskóla Reykjavíkur (D100-D182) til að tryggja að áfram geti börn hafið leikskólagöngu þegar pláss losna yfir sumartímann og til að draga úr hagræðingarkröfu á hvern leikskóla.
b. 10.000 þ.kr. verði færðar yfir á námsstyrki (D654).
c. 27.000 þ.kr. verði færðar yfir á liðinn sameiginleg starfsmannaþjónusta til að tryggja afleysingu vegna undirbúningstíma leikskólakennara.

V-5 Lagt er til að lántaka vegna framkvæmda verði hækkuð sem nemur 300.000 þ.kr. og þeirri upphæð verði varið í uppbyggingu íþróttahúsa við Norðlinga- og Sæmundarskóla.

V-6 Lagt er til að varið verði 5.000 þ.kr. á sérstakan lið á velferðarsviði undir heitinu desemberuppbót þannig að fólk sem þiggur fjárhagsaðstoð með börn á framfæri fái uppbót í desember sem nemur 12.500 á hvert barn. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

V-7 Lagt er til að varið verði 15.000 þ.kr. til að tryggja áframhaldandi félagsmiðstöðvahópa ÍTR í tengslum við Vinnuskóla Reykjavíkur.  Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

V-8 Lagt er til að varið verði til viðbótar 15.000 þ.kr. í ferlimál fatlaðra.  Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

V-9 Lagt er til að sérfræðiaðstoð til borgarstjórnarflokka verði lækkuð um 15.000 þ.kr. Sparnaður verði færður á liðinn ófyrirséð.

 Borgarfulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra óskar bókað:

F-listinn mótmælir þeirri framkomu borgarstjórnar að bjóða fulltrúa listans ekki þátttöku í nefnd þeirri sem kölluð er aðgerðahópur borgarstjórnar. F-listinn hafnar því að ekki sé staðið við loforð um viðbyggingar skólahúsnæðis. F-listinn lýsir vonbrigðum sínum með að framkvæmdir við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar, gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrar-brautar og lagningu Miklubrautar undir Lönguhlíð skuli ekki vera hafnar. F-listinn krefst þess að borgarstjóri greiði F-listanum lögbundið framlag til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2009 strax. F-listi frjálslyndra og óháðra minnir á mikilvægi þess að verðlaunatillaga skoskra arkitekta um skipulag Vatnsmýrarinnar verði lögð til hliðar og ákvarðanir teknar um veru flugvallar í Vatnsmýrinni til framtíðar. F-listinn varar við töku dýrra lána til virkjanaframkvæmda og ósjálfbærra orkuframkvæmda. F-listinn minnir á að hitavatnsauðlindin sem umlykur höfuðborgarsvæðið er ekki ótæmandi orkulind. Komandi kynslóðir á Íslandi þurfa á þessari orkulind að halda. F-listinn vekur athygli á að allar tillögur hans um breytingar á hættulegum gatnamótum og minni hámarkshraða á ákveðnum götum hafa verið felldar þrátt fyrir að þær séu fram komnar vegna slysa sem orðið hafa á þessum stöðum. F-listinn leggur ríka áherslu á að aflétta gjöldum hjá elli- og örorkulífeyrisþegum eða lækka þau. F-listinn minnir á að draga megi úr kostnaðarsamri yfirbyggingu í borginni, m.a. með því að fækka fagráðum og sviðum borgarinnar úr 9 í 7, með því að sameina menntaráð og leikskólaráð, en einnig með því að sameina velferðarráð og mannréttindaráð. F-listinn krefst þess að börn og unglingar í sambærilegu borgarstyrktu tómstundastarfi eða -námi, eins og íþróttum og tónlistarnámi, njóti sömu niðurgreiðslna af hálfu borgarinnar hvar sem þeir búa í borginni eða hvaða þjónustustofnanir sem þeir velja að sækja. F-listinn telur að brýnasta verkefnið í íslenskum stjórnmálum sé bætt siðferði. Því markmiði verður ekki náð nema frambjóðendur geri hreint fyrir sínum dyrum, upplýsi um fjárframlög frá fyrirtækjum og samtökum og geri grein fyrir því hvaða hagsmuni viðkomandi aðila þeirra framboð stendur fyrir. Öll fjárframlög, stór sem smá, séu almenningi ljós. F-listinn lýsir ánægju sinni með uppbyggingu á horni Austurstrætis og Lækjargötu og fyrirhugaða uppbyggingu á húsunum við Laugaveg 4 og 6, sem hefur það markmið að varðveita gamla götumynd.

- Kl. 12.18 er gert hlé á fundi.
- Kl. 12.54 er fundi fram haldið.
- Kl. 14.45 víkur Óskar Bergsson af fundi og Guðlaugur Sverrisson tekur þar sæti.
- Kl. 15.01 tekur Óskar Bergsson sæti á fundinum og Guðlaugur Sverrisson víkur af fundi.
- Kl. 15.15 víkur Sóley Tómasdóttir af fundi og Hermann Valsson tekur þar sæti.
- Kl. 16.15 tekur Sóley Tómasdóttir sæti á fundinum og Hermann Valsson víkur af fundi. Jafnframt víkur Kjartan Eggertsson af fundi og Gunnar Hólm Hjálmarsson tekur þar sæti.
- Kl. 16.52 víkur Þorleifur Gunnlaugsson af fundi og Jóhann Björnsson tekur þar sæti.
- Kl. 17.30 víkur Kjartan Magnússon af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 18.35 er gert hlé á fundi.
- Kl. 19.10 er fundi fram haldið.
- Kl. 19.46 víkur Björk Vilhelmsdóttir af fundi og Dofri Hermannsson tekur þar sæti.
- Kl. 19.50 víkur Jóhann Björnsson af fundi og Heimir Janusarson tekur þar sæti.
- Kl. 19.55 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi og Áslaug Friðriksdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 20.22 tekur Þorleifur Gunnlaugsson sæti á fundinum og Heimir Janusarson víkur af fundi. Jafnframt víkur Marta Guðjónsdóttir af fundi og Björn Gíslason tekur þar sæti.
- Kl. 20.54 tekur Ragnar Sær Ragnarsson sæti á fundinum og Björn Gíslason víkur af fundi. Jafnframt tekur Júlíus Vífill Ingvarsson sæti á fundinum og Áslaug Friðriksdóttir víkur af fundi.
- Kl. 21.05 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi og Kristján Guðmundsson tekur þar sæti.
- Kl. 21.34 tekur Björk Vilhelmsdóttir sæti á fundinum og Dofri Hermannsson víkur af fundi. Jafnframt víkur Jórunn Frímannsdóttir af fundi og Björn Gíslason tekur þar sæti.

Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi breytingatillögu við frumvarp að fjárhagsáætlun:

 

BDV-1  Frístundaheimili (ÍTR)
Lagt er til að varið verði 33.005 þ.kr. til að hafa opið á frístundaheimilum fyrir hádegi alla virka daga sem hefðbundið skólastarf fellur niður vegna frídaga grunnskóla, en lokað í vetrarfríum eins og verið hefur. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.

- Kl. 21.50 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum og Björn Gíslason víkur af fundi.
- Kl. 22.15 tekur Jórunn Frímannsdóttir sæti á fundinum og Ragnar Sær Ragnarsson víkur af fundi.

Ekki eru gerðar tillögur um aðrar breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 en að framan greinir.

Er þá gengið til atkvæða um þær breytingatillögur við frumvarp að fjárhagsáætlun ársins 2010 sem fyrir liggja:

Breytingatillögur vegna innri leigu, merktar 1-5, sbr. 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. desember, samþykktar með 8 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-1 varðandi atvinnuþróunarátak/sóknaráætlun, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-1 varðandi hækkun útsvars og ráðstöfun þeirra fjármuna sem þannig fást, felld með 8 atkvæðum gegn 2.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Samfylkingar, merkt S-1 varðandi hækkun fjárhagsaðstoðar, felld með 8 atkvæðum gegn 4.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-2 varðandi hækkun fjárhagsaðstoðar, samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-3 varðandi Reykjanesfólkvang, samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-4 varðandi frístundasamgöngur, samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-5 varðandi árstíðabundna hreinsun borgarlandsins, samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-6 varðandi rekstur ÍTR á Kjalarnesi, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-7 varðandi rekstur sparkvalla, samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-8 varðandi viðbyggingu við Korpuskóla, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, merkt BD-9 varðandi íþróttahús við Sæmundarskóla, samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.

Samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum að vísa breytingatillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna, merktri V-2 varðandi ráðstöfun fjármagns af liðnum atvinnumál ungs fólks, til atvinnumálahóps borgarráðs.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-3 varðandi ráðstöfun fjármagns af liðnum ófyrirséð, felld með 8 atkvæðum gegn 2.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-4 varðandi ráðstöfun fjármagns af liðnum þjónustutrygging, felld með 8 atkvæðum gegn 2.

Samþykkt með 8 atkvæðum gegn 2, að tillögu borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, að vísa frá breytingatillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna, merktri V-5 varðandi lántöku vegna framkvæmda, þar sem svo mikil viðbótarlántaka sé óþörf.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-6 varðandi desemberuppbót, samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-7 varðandi félagsmiðstöðvahópa ÍTR, samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-8 varðandi ferlimál fatlaðra, samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum.

Samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum að vísa breytingatillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna, merktri V-9 varðandi lækkun framlags til borgarstjórnarflokka, til forsætisnefndar.

Breytingatillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, merkt BDV-1 varðandi frístundaheimili, samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum.

Þá eru teknar til afgreiðslu tillögur borgarfulltrúa Samfylkingar varðandi fjárhagsáætlun.

Samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-2 varðandi bann við innihaldslausum yfirboðum, til aðgerðahóps borgarráðs um fjármál Reykjavíkurborgar.

Samþykkt með 8 atkvæðum gegn 6, að tillögu borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, að vísa frá tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-3 varðandi óafgreiddar tillögur starfsfólks, þar sem þau atriði sem nefnd eru í tillögunni séu til meðferðar hjá þeim aðilum/embættismönnum sem halda utan um verkefnið.

Samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-4 varðandi ódýrari frístundir fyrir börn og fjölskyldur, til íþrótta- og tómstundaráðs.

Samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-5 varðandi öflugri forvarnir og stuðning til stofnana vegna álags í kjölfar kreppu, til íþrótta- og tómstundaráðs og mannauðsstjóra.

Samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-6 varðandi sparnað í yfirstjórn og styrkingu hverfaþjónustu, til starfshóps um hverfisbundna þjónustu.

Samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-7 varðandi endurreisn Aflvaka, til meðferðar á skrifstofu borgarstjóra þar sem hún verði sameinuð vinnu við tillögu meirihlutans um atvinnuþróunarátak vegna sóknaráætlunar.

Samþykkt með 8 atkvæðum gegn 6, að tillögu borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, að vísa frá tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-8 varðandi forgangsröðun framkvæmdafjár, þar sem fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun byggi á því að tryggja sem best að framkvæmdir séu mannaflsfrekar samhliða því að aðeins sé gengið til nauðsynlegra nýframkvæmda.

Samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-9 varðandi aðgerðir í atvinnumálum og virkar vinnumarkaðsaðgerðir, til aðgerðahóps borgarráðs um fjármál Reykjavíkurborgar og atvinnumálahóps borgarráðs.

Samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, merktri S-10 varðandi tækifæri í auðu húsnæði og hagræðingu í húsnæðismálum, til framkvæmda- og eignaráðs.

Þá er gengið til atkvæða um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 með áorðnum breytingum.


Borgarfulltrúar Samfylkingar óska bókað:

Fjárhagsáætlun ársins 2010 einkennist af því að borgarstjórnarkosningar eru framundan. Í stað þess að taka á málum af festu ýtir meirihlutinn vanda fyrirtækja borgarinnar og óútfærðum niðurskurði fram yfir kosningar. Augljóst er að undirliggjandi eru áform um gjaldskrárhækkanir og aðrar ákvarðanir sem viljandi er skotið á frest. Sömu sögu er að segja um umfangsmikinn niðurskurð sem vísað er út í stofnanir, skóla og þjónustu í hverfunum. Mun minni niðurskurður er fyrirhugaður þegar yfirbygging málaflokkanna er annars vegar. Í fjárhagsáætlun 2010 aukast skuldir A-hluta Reykjavíkurborgar um 10 milljarða, eða um 50%, úr 20 milljörðum í 30 milljarða. Heildarskuldir Reykjavíkurborgar, að meðtöldum fyrirtækjunum, aukast hins vegar úr 310 milljörðum í 326 milljarða. Þessi skuldaþróun stenst ekki til framtíðar nema auknar tekjur standi þar að baki. Þó er ljóst að skatttekjur borgarinnar muni enn lækka á næstu árum vegna þróunar fasteignaverðs og jafnframt má efast um að hækkun arðgreiðslna frá fyrirtækjum borgarinnar um 650 milljónir sé raunhæf á næstu árum. Ekki þarf að minnast á óraunhæfni þess að þrefalda arðgreiðslur við núverandi aðstæður, eins og borgarstjóri krafðist af Orkuveitu Reykjavíkur en reyndist óábyrgt og úr öllu samhengi við stöðu fyrirtækisins. Samfylkingin gerir skýran fyrirvara við raunhæfni niðurskurðar í grunnþjónustu borgarinnar og óásættanlegar afleiðingar hans. Sérstökum vonbrigðum er lýst með að tillögur Samfylkingarinnar sem ætlað var að koma þar á móti og standa þannig vörð um forvarnir, börn og velferð hafi ekki verið samþykktar af meirihluta borgarstjórnar. Augljóst er að leiðarljós aðgerðaáætlunar borgarstjórnar um að standa vörð um störf og grunnþjónustu eru í uppnámi þótt jafnljóst sé að þeim vanda eigi að ýta inn í sumarið. Það er ótrúlega einkennilegt að í hækkandi verðlagi og versnandi lífskjörum þeirra sem minnst bera úr býtum hafi þurft að knýja meirihlutann með látum til að samþykkja hækkun grunnframfærslu fjárhagsaðstoðar. Óvíst er hvort nokkur árangur hefði náðst í því efni ef aðhald komandi kosninga héngi ekki yfir. Það segir einnig mikla sögu að þrátt fyrir mesta atvinnuleysi í sögu borgarinnar hefur meirihlutinn skilað auðu á því sviði, forðast að axla forystuhlutverk Reykjavíkur í því efni og svæft ítrekaðar tillögur um frumkvæði í atvinnumálum. Félagshyggja við stjórn borgarinnar hefur aldrei verið brýnni en nú. Það er stundum sagt að hornsteinar jafnaðarstefnunnar séu þrír: atvinna, velferð og menntun. Áhersla á þessa þrjá málaflokka hefur aldrei verið mikilvægari. Þörfin fyrir stjórn jafnaðarmanna í sveitarfélögum þegar að kreppir hefur aldrei verið meiri. Þessari kjarnaáherslu á atvinnumálin, þessari kjarnaáherslu á börn og velferð og þessari kjarnaáherslu á að hugsa fram og huga að sóknarfærunum, hefur Samfylkingin haldið á lofti hér í sölum borgarstjórnar eins og við stjórn landsins, þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað:

Borgarfulltrúar Vinstri grænna geta ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytta útsvarsprósentu þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og lægri tekjur borgarinnar. Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni um 745 milljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna. Annað árið í röð er ekki verið að verðbæta á milli ára sem eykur raunverulegan niðurskurð til muna og við úthlutun til sviða var skorið niður með tiltölulega flötum hætti og hefðu borgarfulltrúar Vinstri grænna viljað sjá mun skýrari áherslumun en þann sem raunin varð. Mun meiri áherslu hefði þurft að leggja á velferðarmál, enda koma útgjöld til með að aukast mikið á velferðarsviði á árinu 2010 á meðan vel hefði verið hægt að draga enn frekar saman á sviði framkvæmda eða skipulags. Borgarfulltrúar Vinstri grænna lögðu fram breytingatillögur við frumvarpið í níu liðum. Af þeim voru fjórir samþykktir, en þeir varða desemberuppbót fyrir fólk með börn á framfæri sem þiggur fjárhagsaðstoð, áframhaldandi starf í frístundaheimilum fyrir hádegi þegar hefðbundið skólastarf fellur niður, áframhaldandi rekstur félagsmiðstöðvahópa í samstarfi félagsmiðstöðva og Vinnuskólans og aukið framlag til ferlimála fatlaðra. Jafnframt var tillögum Vinstri grænna um ráðstöfun fjármagns í þágu atvinnumála og lækkað framlag vegna sérfræðiaðstoðar til borgarstjórnarflokka vísað áfram í borgarkerfinu. Aðrar tillögur Vinstri grænna voru felldar. Fjárhagsaðstoð og heimildargreiðslur voru hækkaðar mun minna en Vinstri græn lögðu til, ekki náðist samstaða um að systkinaafsláttur af skólamáltíðum yrði aukinn og ekki heldur um að samningar við sjúklinga-, hagsmuna- og mannréttindasamtök yrðu verðbættir. Að sama skapi ákvað meirihlutinn að heimgreiðslur yrðu áfram við lýði í stað þess að fjármagnið yrði notað til að koma í veg fyrir niðurskurð á kostnað barna á leikskólum. Ekki var samþykkt að setja fjármagn í landvörslu í Reykjavík, né heldur til að hækka þróunarstyrki í grunnskólum. Ekki er hægt að segja að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 hafi verið unnin af fulltrúum allra flokka. Þó fundað hafi verið um framvindu mála og áherslur í einstökum málaflokkum gafst ekki svigrúm til að borgarfulltrúar hefðu möguleika á að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Án slíks svigrúms er ekki hægt að segja að um samráð hafi verið að ræða. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 er ekki í þágu barna og velferðar eins og fulltrúar meirihlutans hafa haldið fram. Þvert á móti boðar hún stórfelldan niðurskurð á velferðarþjónustu og þjónustu við börn.

Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks óska bókað:

Með fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar árið 2010 er forgangsraðað í þágu barna og velferðar – án þess að hækka skatta eða gjöld vegna grunnþjónustu. Þannig er engin hagræðingarkrafa gerð á velferðarsvið og útgjöld til velferðarmála aukast um tæpan einn milljarð króna milli áætlana 2009 og 2010 eða um 11%. Mun lægri hagræðingarkrafa er gerð á menntasvið, leikskólasvið og íþrótta- og tómstundasvið en á miðlæga stjórnsýslu og þau svið Reykjavíkurborgar sem annast framkvæmdir, skipulag og umhverfismál. Hagræðingarkrafan leggst með misjöfnum hætti á einstakar stofnanir borgarinnar og er forgangsraðað í þágu barna. Þannig er ekki gert ráð fyrir þjónustuskerðingu í skólum borgarinnar. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir hallalausum rekstri borgarsjóðs. Góður árangur hefur náðst í rekstri Reykjavíkurborgar á kjörtímabilinu. Tekist hefur að standa við áætlaða kostnaðarhagræðingu, kostnaður vegna innkaupa hefur lækkað um 22% og svið borgarinnar eru rekin innan fjárheimilda, sem endurspeglast í góðri afkomu borgarsjóðs samkvæmt níu mánaða uppgjöri sem var 1,6 milljörðum króna umfram áætlun. Reykjavíkurborg fer með þessari vinnu sömu leið og heimili og fyrirtæki landsins, forgangsraðar í þágu þess sem mestu skiptir, hagræðir og sparar. Staðinn er vörður um grunnþjónustu, störfin og gjaldskrár í samræmi við aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar, haldið er uppi mannaflsfrekum framkvæmdum og hvatt er til atvinnusköpunar. Samdrætti í tekjum borgarinnar verður mætt með hagræðingu í rekstri, án þess að hækka skatta eða gjöld á grunnþjónustu. Þannig verða náms- og fæðisgjöld í leikskólum óbreytt á árinu 2010 auk þess sem 100% systkinaafsláttur verður áfram í gildi. Verð á skólamáltíðum í grunnskólum hækkar ekki og gjaldskrár frístundaheimila verða óbreyttar. Þannig er með fyrirliggjandi frumvarpi lagður grundvöllur að áframhaldandi ábyrgri fjármálastjórn á næsta ári, auk þess sem vel er búið í haginn fyrir framtíðina og fólkið í borginni.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 10. desember.

3. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 11. desember, framkvæmda- og eignaráðs frá 30. nóvember, leikskólaráðs frá 2. desember, mannréttindaráðs frá 26. nóvember og 10. desember, menntaráðs frá 9. desember, skipulagsráðs frá 2. og 9. desember, umhverfis- og samgönguráðs frá 19. nóvember og velferðarráðs frá 24. og 25. nóvember og 9. desember.


Fundi slitið kl. 23.20

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.


Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

 Jórunn Frímannsdóttir     Sóley Tómasdóttir