06.04.2010
Borgarstjórnarfundur 19. janúar 2010
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2010, þriðjudaginn 5. janúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Þetta gerðist:
1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks:
Borgarstjórn samþykkir að á árinu 2010 verði sérstakt átak tileinkað íslenskri hönnun í Reykjavík með það að markmiði að styrkja enn frekar stöðu hönnunar í reykvísku umhverfi, byggingum, menningu og atvinnulífi.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 14.17 víkur Sif Sigfúsdóttir af fundi og Áslaug Friðriksdóttir tekur þar sæti.
Tillagan samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.
- Kl. 14.21 tekur Sif Sigfúsdóttir sæti á fundinum og Áslaug Friðriksdóttir víkur af fundi.
2. Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að taka svohljóðandi tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna á dagskrá:
Borgarstjórn samþykkir að árið 2010 verði tileinkað velferð barna í Reykjavík.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 14.26 víkur Dagur B. Eggertsson af fundi og Dofri Hermannsson tekur þar sæti.
Tillagan samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.
3. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 17. desember.
17. liður fundargerðarinnar, kosning fulltrúa í nefndir og ráð, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað undir 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. desember:
Í bréfi skrifstofustjóra borgarstjórnar f.h. stjórnkerfisnefndar frá 4. desember sl. er tillögu minni um sameiningu mannréttindaráðs og velferðarráðs annars vegar og um sameiningu menntaráðs og leikskólaráðs hins vegar endanlega ýtt út af borðinu í raun án nokkurs rökstuðnings. Ég tel þessa afgreiðslu málsins ótæka með öllu, ekki síst þar sem fyrirspurnir mínar í borgarráði frá því í nóvembermánuði sl. liggja enn óafgreiddar í borgarkerfinu. Þessar fyrirspurnir varða m.a. kostnað vegna boðsferða kjörinna fulltrúa og kostnað vegna ferðalaga núverandi borgarstjóra í samanburði við samsvarandi kostnað í borgarstjóratíð minni, sbr. fyrirspurnir mínar í borgarráði 12. nóvember sl. Einnig hefur svohljóðandi fyrirspurnum mínum frá 19. nóvember sl. ekki verið svarað: „Eins og kunnugt er hefur undirritaður lagt fram tillögu í borgarstjórn um sameiningu fagráða í borginni, þannig að þau verði 7 í stað 9. Þetta fæli í sér fækkun launaðra fulltrúa um 16 (af 72) í fagráðum borgarinnar. Hvað myndi þetta lækka mikið launaútgjöld hjá borginni? Hver má ætla að yrði fjárhagslegur sparnaður fyrir borgina af því að sameina velferðar- og mannréttindasvið annars vegar og mennta- og leikskólasvið hins vegar, eins og gert er ráð fyrir í tillögu minni um sameiningu fagráða og starfssviða borgarinnar? Hver yrði sparnaður á launaútgjöldum borgarinnar með því að lækka laun áheyrnarfulltrúa F-listans, niður í 70% af launum annarra kjörinna fulltrúa í 9 fagráðum og 10 hverfisráðum borgarinnar? Af því tilefni er spurt hver launakostnaður borgarinnar er vegna kjörinna fulltrúa hvers framboðs (B-lista, D-lista, F-lista, S-lista og V-lista) í sérhverju fagráði og sérhverju hverfisráði borgarinnar. Einnig er spurt hver yrði útgjaldalækkun borgarinnar vegna kjörinna fulltrúa í hverfisráðum ef þau yrðu sameinuð í 5 úr 10.”
4. Lagðar fram fundargerðir framkvæmda- og eignaráðs frá 14. desember, íþrótta- og tómstundaráðs frá 11. desember, leikskólaráðs frá 16. desember, leikskólaráðs og menntaráðs frá 16. desember, menningar- og ferðamálaráðs frá 8. og 17. desember, skipulagsráðs frá 16. desember, umhverfis- og samgönguráðs frá 8. desember og velferðarráðs frá 16. desember.
Fundi slitið kl. 15.21
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Jórunn Frímannsdóttir Sóley Tómasdóttir