06.04.2010
Borgarstjórnarfundur 16. febrúar 2010
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2010, þriðjudaginn 16. febrúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Dofri Hermannsson, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Þetta gerðist:
1. Lögð fram svohljóðandi tillaga Ólafs F. Magnússonar:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að óska eftir viðræðum við bæjarstjórn sveitarfélagsins Álftaness um sameiningu sveitarfélaganna.
- Kl. 14.04 tekur Sigrún Elsa Smáradóttir sæti á fundinum og Dofri Hermannsson víkur af fundi.
- Kl. 14.20 víkur Þorleifur Gunnlaugsson af fundi og Hermann Valsson tekur þar sæti.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks leggja fram svohljóðandi frávísunartillögu:
Málefni sveitarfélagsins Álftaness eru nú til meðferðar hjá ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála og því hefur verið skipuð fjárhaldsstjórn. Auk þess er óljóst hvernig leyst verður úr erfiðri fjárhagsstöðu þess. Ákvörðun um hvort rétt sé að sameina sveitarfélagið öðrum sveitarfélögum liggur annars staðar en hjá borgarstjórn Reykjavíkur á þessum tímapunkti og er því tillögunni vísað frá.
Fram fer nafnakall um frávísunartillöguna.
Já segja: Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Jórunn Frímannsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Óskar Bergsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Nei segja: Hermann Valsson og Ólafur F. Magnússon.
Sitja hjá: Björk Vilhelmsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Oddný Sturludóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir og Sóley Tómasdóttir.
Frávísunartillagan er því samþykkt með 8 atkvæðum gegn 2, 5 borgarfulltrúar sitja hjá.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Með því að vísa frá þýðingarmikilli tillögu minni um sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Reykjavíkur sýna kjörnir fulltrúar Reykvíkinga mikla skammsýni og láta almannahagsmuni lönd og leið. Sérstaklega vil ég þó þakka öðrum borgarfulltrúa Vinstri grænna fyrir hans drengilegu og einörðu afstöðu í þessu máli með því að styðja tillögu mína. Sá stuðningur markar tímamót hér í borgarstjórn.
2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar:
Borgarstjórn samþykkir að ganga til viðræðna við íþróttafélög, æskulýðssamtök, tónlistar- og listaskóla og aðra aðila sem sinna uppbyggilegu frístundastarfi í Reykjavík. Markmið viðræðnanna verði að lækka kostnað fjölskyldna og einfalda aðgengi að íþróttum, frístundum og listnámi. Þannig verði stefnt að almennari og meiri þátttöku á verði sem fleiri ráða við. Sérstaklega verði hugað að úrræðum þeirra sem búa við þröngan fjárhag heima fyrir. Í samvinnu við foreldra og forystu þeirra sem fyrir starfseminni standa verði horft til kostnaðar vegna æfingagjalda, fjölda æfinga og kennslustunda, hóptíma í stað einkakennslu þar sem því verður við komið auk útgjalda vegna ýmiss konar fatnaðar, búnaðar og ferðalaga. Í hverju hverfi og hverjum skóla verði jafnframt hugað að leiðum til að frístundir verði hluti af samfelldum skóladegi þannig að dregið verði úr þörf fyrir dýrt skutl foreldra.
- Kl. 15.04 víkur Sigrún Elsa Smáradóttir af fundi og Dofri Hermannsson tekur þar sæti.
- Kl. 16.05 tekur Þorleifur Gunnlaugsson sæti á fundinum og Hermann Valsson víkur af fundi.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Í ljósi þeirrar staðreyndar að Samfylkingin ásamt öðrum fjórflokkum hefur margfellt tillögur mínar um lægri gjaldskrár eða niðurfellingu gjaldskrár fyrir börn og unglinga, m.a. vegna Strætó, sit ég hjá og segi: Málfundaæfinga morfísfroða, malað út í eitt. Glamuryrði gjarnan hnoða en gera ekki neitt.
Samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundaráðs og menntaráðs.
3. Fram fer umræða um styrki Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Á fundi borgarráðs 11. febrúar sl. lagði ég fram svohljóðandi bókun: „Á forsíðu Fréttablaðsins í fyrradag er því haldið fram að F-listi frjálslyndra og óháðra hafi fengið 10% af 130 milljón króna framlagi borgarinnar til stjórnmálasamtaka vegna áranna 2007-2010. Fréttina má skilja sem svo að borgarstjórnarflokkur F-lista frjálslyndra og óháðra hafi fengið kr. 13 milljónir í styrki frá borginni til rekstrar borgarstjórnarframboðsins. Hið sanna er að árið 2007 fór allt framlagið til skrifstofu Frjálslynda flokksins sem nú er gjaldþrota. Ekki ein einasta króna af framlagi borgarinnar ætlað borgarstjórnar- eða sveitarstjórnarframboði F-lista, rann til framboðsins. Ólafi F. Magnússyni, oddvita F-listans, var því ætlað að greiða alla reikninga vegna borgarstjórnarflokksins úr eigin vasa. Það var ekki fyrr en 20. júní árið 2008, sem borgarmálafélag F-lista fékk fyrstu og einu greiðsluna frá borginni kr. 3,4 m.kr. inn á reikning sinn. Ólafur F. Magnússon hefur lagt fram í borgarráði alla reikninga borgarmálafélagsins vegna áranna 2008 og 2009, en seinna árið fékk borgarstjórnarflokkur F-lista engin framlög frá borginni. Skylt er að taka fram að borgarstjórnarflokkur F-lista hefur frá því að hann var myndaður árið 2002 samanstaðið af óháðum fulltrúum og fulltrúum Frjálslynda flokksins. Allir kjörnir fulltrúar F-listans í 9 fagráðum borgarinnar, nema Ólafur F. Magnússon, sem situr í borgarstjórn, borgarráði, forsætisnefnd, umhverfisráði og menningarráði og Magnús Skúlason, sem situr í skipulagsráði, eru meðlimir í Frjálslynda flokknum og sitja í kjördæmastjórnum Frjálslynda flokksins í borginni, sem hafa ályktað hart gegn röngum fullyrðingum formannsins, Guðjóns Arnars Kristjánssonar. Það er því hrein fjarstæða að borgarmálafélag F-lista sé einkahlutafélag Ólafs F. Magnússonar. Í borgarmálafélaginu sitja m.a. eftirtaldir meðlimir Frjálslynda flokksins: Kjartan Eggertsson, fulltrúi í framkvæmdaráði og menntaráði, og Ásdís Sigurðardóttir, fulltrúi í mannréttindaráði, en þau skipa ásamt Ólafi stjórn borgarmálafélagsins. Gunnar Hólm Hjálmarsson er fulltrúi F-lista í velferðarráði, Egill Örn Jóhannesson, fulltrúi í íþrótta- og tómstundaráði og Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, fulltrúi í leikskólaráði. Allir þessir meðlimir Frjálslynda flokksins sitja í kjördæmastjórnum Frjálslynda flokksins í borginni. Í 10 hverfisráðum borgarinnar sitja m.a. Sveinn Valgeirsson, Guðsteinn Haukur Barkarson og Sigurður Þórðarson, allir meðlimir Frjálslynda flokksins, og er Sigurður formaður stjórnar kjördæmaráðs Frjálslynda flokksins í Reykjavík norður. Kjartan Eggertsson, sem áður er nefndur, er formaður stjórnar kjördæmaráðs Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður. Skýrara getur það varla verið að borgarmálafélag F-lista er ekki einkahlutafélag Ólafs F. Magnússonar. Eftir fund borgarstjóra og borgarlögmanns með Guðjóni Arnari Kristjánssyni rétt fyrir jól sendi borgarlögmaður bréf til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, þar sem hún leitar álits ráðuneytisins um hvort ekki beri að greiða styrk borgarinnar ætlaðan borgarstjórnarframboði F-listans til Frjálslynda flokksins á landsvísu. Það myndi þýða að ekki ein einasta króna rynni til borgarstjórnarflokksins og þar með borgarmálanna. Fjármunirnir færu allir í að greiða óráðsíu Frjálslynda flokksins. Þetta gengur þvert á álit Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hrl., sem áður sat í embætti borgarlögmanns, frá því í desembermánuði árið 2008, um að framlög til stjórnmálasamtaka í borginni skuli renna til framboða til sveitarstjórnar, eins og segir í lögum.“ Ég fagna því að borgarráð hefur krafið önnur framboð í borgarstjórn um að fara að fordæmi mínu og F-listans með því að gera grein fyrir ráðstöfun þeirra fjármuna sem borgarstjórnarflokkarnir hafa fengið úthlutað á kjörtímabilinu. Ég minni á þá staðreynd að fjórflokkurinn hefur í fyrsta lagi gífurlegt forskot á F-listann vegna allt að kr. 500.000.000 styrkja sem hann fékk frá ýmsum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Í öðru lagi hefur fjórflokkurinn úthlutað sjálfum sér 90%, í hlutfalli við fylgi flokkanna, af þeim 130.000 milljón krónum sem ætlaðar eru sveitarstjórnarframboðum en F-listanum aðeins 2,5% þrátt fyrir 10% fylgi í kosningum árið 2006. Í þriðja lagi vil ég minna á kröfu F-listans um niðurfellingu allt að kr. 30.000.000 árlegs styrks til borgarinnar vegna ársins 2010 og áskorun til annarra framboða um að láta framlag ársins 2009 og 2010 renna til líknar- og velferðarmála.
4. Fram fer umræða um málfrelsi og tillögurétt í Borgarstjórn Reykjavíkur.
5. Fram fer umræða um stöðu ungs fólks utan skóla.
- Kl. 17.42 víkur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
6. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs 4. og 11. febrúar.
7. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 5. og 12. febrúar, framkvæmda- og eignaráðs frá 8. febrúar, leikskólaráðs frá 3. febrúar, menningar- og ferðamálaráðs frá 8. febrúar, menntaráðs frá 10. febrúar og skipulagsráðs frá 3. og 10. febrúar.
Fundi slitið kl. 18.32
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Dagur B. Eggertsson
Jórunn Frímannsdóttir Sóley Tómasdóttir