Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

06.04.2010

Borgarstjórnarfundur 2. mars 2010

B O R G A R S T J Ó R N


Ár 2010, þriðjudaginn 2. mars, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Hermann Valsson, Dofri Hermannsson, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1.  Lagt fram frumvarp að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar fyrir árin 2011-2013, sbr. 17. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. febrúar, fyrri umræða.

- Kl. 15.15 tekur Sigrún Elsa Smáradóttir sæti á fundinum og Dofri Hermannsson víkur af fundi.

 Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa frumvarpi að þriggja ára áætlun til síðari umræðu.

2. Fram fer umræða um fyrirhugaðan flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

- Kl. 16.05 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.

3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar:

Borgarstjórn samþykkir að vinna samvinnuáætlun menntasviðs og framhaldsskóla í Reykjavík með það að markmiði að tryggja markvissa samfellu skólastiga. Í því skyni verði horft til sameiginlegs tilraunaverkefnis grunn- og framhaldsskóla í sama hverfi um sveigjanlegri skólaskil.

 Greinargerð fylgir tillögunni.

- Kl. 17.45 tekur Júlíus Vífill Ingvarsson sæti á fundinum og Marta Guðjónsdóttir víkur af fundi. 
- Kl. 18.12 víkur Kjartan Magnússon af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 18.25 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum og Marta Guðjónsdóttir víkur af fundi.

 Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til menntaráðs.

- Kl. 18.26 er gert hlé á fundi.
- Kl. 18.51 er fundi fram haldið og víkur þá Oddný Sturludóttir af fundi og Dofri Hermannsson tekur þar sæti. Jafnframt víkur Óskar Bergsson af fundi og Guðlaugur Sverrisson tekur þar sæti.

4. Lagður fram 12. liður fundargerðar borgarráðs frá 25. febrúar, lántaka Orkuveitu Reykjavíkur.

- Kl. 19.26 er gert hlé á fundi.
- Kl. 19.35 er fundi fram haldið og víkur þá Björk Vilhelmsdóttir af fundi og Stefán Benediktsson tekur þar sæti.
- Kl. 20.20 víkur Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 20.50 tekur Óskar Bergsson sæti á fundinum og Guðlaugur Sverrisson víkur af fundi.

 Borgarfulltrúar Samfylkingar leggja til að afgreiðslu málsins sé frestað.
 Frestunartillagan er felld með 8 atkvæðum gegn 7.

- Kl. 21.20 víkja Dofri Hermannsson og Stefán Benediktsson af fundi.

Fram fer nafnakall um 12. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. febrúar, lántöku Orkuveitu Reykjavíkur.
Já segja: Marta Guðjónsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Jórunn Frímannsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Óskar Bergsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
 Nei segir: Ólafur F. Magnússon.
Sitja hjá: Sóley Tómasdóttir, Hermann Valsson, Dagur B. Eggertsson og Sigrún Elsa Smáradóttir.
12. liður fundargerðar borgarráðs frá 25. febrúar, lántaka Orkuveitu Reykjavíkur, er því samþykktur með 8 atkvæðum gegn 1, 4 sitja hjá.

- Kl. 21.27 taka Dofri Hermannsson og Stefán Benediktsson sæti á fundinum.

 Borgarfulltrúar Samfylkingar óska bókað:

Samfylkingin hefur ítrekað lýst áhyggjum af umgengni meirihluta borgarstjórnar um rekstur og hagsmuni Orkuveitu Reykjavíkur. Hefur meðal annars verið kallað eftir sérstöku áhættumati á fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Við afgreiðslu á ábyrgð Reykjavíkurborgar á 5 milljarða láni hefur borgarstjóri neitað að aflétta trúnaði um vaxtakjörin sem til umfjöllunar eru. Borgarstjóri hefur ekki treyst sér til að svara skriflegum lykilspurningum sem lagðar voru fram í upphafi umræðunnar en vísar til þess að þeim verði svarað síðar. Þrátt fyrir að svör við þessum lykilspurningum liggi ekki fyrir er tillaga um frestun felld og ábyrgð á láni OR tekin til atkvæðagreiðslu. Þar með er staðfest að ákvörðun um lántökuna er tekin af hálfu meirihlutans án þess að nauðsynleg svör liggi fyrir. Enginn samanburður liggur fyrir á kjörum lánsins og þeim kjörum sem Reykjavíkurborg bjóðast eða kynnu að fást fyrir svokallað Magma-skuldabréf auk þess sem því hefur ekki verið svarað hver séu möguleg áhrif lántökunnar á gjaldskrár almennings. Öðrum fulltrúum en þeim sem sæti eiga í borgarráði og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafa ekki verið kynnt efnisatriði málsins sem lögð hafa verið fram í trúnaði. Á það meðal annars við um tvo fulltrúa Samfylkingarinnar á borgarstjórnarfundinum. Í mótmælaskyni við að þeim hafi verið gert alls ókleift að gegna skyldum sínum samkvæmt sveitarstjórnar- og stjórnsýslulögum, að ónefndum siðareglum Reykjavíkurborgar, viku þeir fulltrúar af fundi á meðan á atkvæðagreiðslu í málinu stóð.

 Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Nú sem fyrr leggst ég eindregið gegn frekari lántökum vegna framkvæmda á hitavatnsauðlindinni í kringum höfuðborgina. Nauðsynlegt er að hægja á orkuframkvæmdum á þessu svæði og huga betur að umhverfisþáttum og hagsmunum framtíðarinnar.

 Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks óska bókað:

Með staðfestingu Borgarstjórnar Reykjavíkur á breytingu á 5 milljarða króna skammtímaláni í 15 ára skuldabréfalán lýkur fjármögnun Orkuveitu Reykjavíkur vegna mannaflsfrekra framkvæmda yfirstandandi árs. Breyting á láninu í langtímalán á hagstæðari kjörum hefur ekki áhrif á heildarskuldastöðu Orkuveitu Reykjavíkur en með því er verið að endurfjármagna framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað og voru fjármagnaðar með lánum á óhagstæðum skammtímakjörum. Í umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar kemur fram að umrædd lántaka er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun og er mælt með að erindi OR verði samþykkt. Það lýsir ótrúlegri málefnafátækt að fulltrúar minnihlutans skuli við þessa afgreiðslu gera vaxtakjör umrædds láns að aðalatriði en upplýsingar um vaxtakjörin voru kunngerð bæði í stjórn OR og borgarráði auk þess sem öllum borgarfulltrúum stóð til boða að kynna sér kjörin fyrir afgreiðslu málsins í borgarstjórn. Eins og borgarstjórn allri er kunnugt hefur borgarstjóri ekki heimildir til að aflétta trúnaði af vaxtakjörum eins og lagt er til að gert verði. OR starfar á samkeppnismarkaði og trúnaður hefur ríkt um lánakjör hingað til sé farið fram á það. Með afgreiðslu þessa láns er staðinn vörður um hagsmuni fyrirtækisins og fjármögnun framkvæmda yfirstandandi árs tryggð á hagstæðari vaxtakjörum.

5. Fram fer umræða um ferðakostnað kjörinna fulltrúa í borgarstjórn og fyrirtækjum borgarinnar.

 Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Á fundi borgarráðs 25. febrúar sl. var lagt fram svar borgarstjóra vegna fyrirspurnar minnar um ferðakostnað kjörinna fulltrúa í borgarstjórn og í stjórnum fyrirtækja borgarinnar. Af því tilefni lagði ég fram svohljóðandi bókun: Ég vek athygli á geysiháum ferðakostnaði Björns Inga Hrafnssonar, Bjarna Ármannssonar, Gísla Marteins Baldurssonar, Dags B. Eggertssonar, Hauks Leóssonar og Kjartans Magnússonar árið 2007, þar sem Björn Ingi er langhæstur með 2,6 milljónir kr. en aðrir áðurnefndir einstaklingar með ferðakostnað árið 2007 á bilinu 1,4-1,9 milljónir kr. Árið 2008 eru 5 einstaklingar með ferðakostnað yfir kr. 1 milljón (á bilinu 1,1-1,6 milljónir kr.), þau Sigrún Elsa Smáradóttir, Kjartan Magnússon, Ásta Þorleifsdóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Árið 2009 er ferðakostnaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur langhæstur eða 1,5 milljónir kr. en auk hennar nemur ferðakostnaður Óskars Bergssonar og Guðlaugs G. Sverrissonar yfir 1 milljón kr. Ég tel svo háan ferðakostnað óverjandi á tímum samdráttar og rekstrarerfiðleika hjá Reykjavíkurborg. Loks er vakin athygli á því að ferðakostnaður hvers einasta borgarfulltrúa fjórflokksins árin 2007, 2008 og 2009 er yfir 1 milljón kr. á meðan ferðakostnaður undirritaðs er kr. 100 þúsund. Þessu til viðbótar vek ég athygli á eftirfarandi staðreyndum: Ferðakostnaður eina borgarfulltrúa minnsta flokksins í borgarstjórn, Framsóknarflokksins, árin 2007-2009 nemur hvorki meira né minna en 4,5 milljónum króna á meðan kostnaður vegna ferða borgarfulltrúa F-listans sem er 60% stærri flokkur í borgarstjórn en Framsóknarflokkurinn nemur aðeins 100.000 krónum. Munurinn er 45 faldur. Framsóknarflokkurinn hefur þannig verulega sérstöðu í grófri og óvandaðri meðferð almannafjármuna á þessu sviði.
Til frekari samanburðar er ferðakostnaður sjö borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins árin 2007-2009 kr. 17 milljónir eða kr. 2,4 milljónir á hvern borgarfulltrúa. Ferðakostnaður fjögurra borgarfulltrúa Samfylkingar nemur kr. 7,2 milljónum á sama tímabili eða sem samsvarar kr. 1,8 milljónum á hvern borgarfulltrúa. Ferðakostnaður tveggja borgarfulltrúa VG árin 2007-2009 nemur kr. 3,3 milljónum eða sem samsvarar kr. 1,6 milljónum á hvern borgarfulltrúa. Það er því brýnt að leggja fram tillögu til úrbóta á þessum háa ferðakostnaði fjórflokksins í borgarstjórn. Fjórflokkurinn hefur þegar vísað frá tillögu minni um að hámarka ferðafjölda kjörinna fulltrúa við eina ferð á ári.


 Ólafur F. Magnússon leggur fram svohljóðandi tillögu:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að fela borgarstjóra að gera tillögur um hámarksgreiðslu vegna ferða kjörinna fulltrúa í borgarstjórn. Markmið tillagnanna verði að draga verulega úr ferðakostnaði kjörinna fulltrúa frá því sem nú er. Enn fremur er þeim eindregnu tilmælum beint til stjórna fyrirtækja borgarinnar að dregið verði úr ferðakostnaði stjórnarmanna.

 Samþykkt með 10 atkvæðum gegn 1 að taka tillöguna á dagskrá.
 
Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks leggja fram svohljóðandi frávísunartillögu:

Reykjavíkurborg á margvíslegt samstarf við aðrar borgir og stofnanir og tekur þátt í alþjóðlegri samvinnu sem mikilvægt er að sinna. Kostnaði vegna þessa samstarfs er haldið í algjöru lágmarki án þess þó að það skaði hagsmuni Reykjavíkur. Eins og margoft hefur komið fram hefur verið gætt sérstaks aðhalds í ferðakostnaði við þá rekstrarhagræðingu sem farið hefur framhjá Reykjavíkurborg og sá kostnaður minnkað umtalsvert. Ekki stendur annað til en að halda áfram á þeirri braut. Því er tillaga Ólafs F. Magnússonar óþörf og lagt er til að henni sé vísað frá.

 Frávísunartillagan er samþykkt með 8 atkvæðum gegn 1.

 Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Það er fráleitt að vísa frá tillögu um aukið aðhald í ferðakostnaði kjörinna fulltrúa, enda eru þessi mál í miklum ólestri innan Borgarstjórnar Reykjavíkur og hjá stjórnum fyrirtækja borgarinnar.

6. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 18. og 25. febrúar.

7. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 26. febrúar, framkvæmda- og eignaráðs frá 22. febrúar, íþrótta- og tómstundaráðs frá 5. og 12. febrúar, mannréttindaráðs frá 11. febrúar, menningar- og ferðamálaráðs frá 22. febrúar, menntaráðs frá 24. febrúar, skipulagsráðs frá 17. og 24. febrúar, umhverfis- og samgönguráðs frá 9. og 23. febrúar, og velferðarráðs frá 10. og 12. febrúar.

Ólafur F. Magnússon óskar bókað vegna 3. liðar fundargerðar forsætisnefndar frá 26. febrúar:

Ég minni á tillögu mína í borgarstjórn um að framlög til stjórnmálasamtaka í borginni verði felld niður vegna ársins 2010. Framlög þessi eru til þess fallin að auka enn frekar mismunum milli framboða til borgarstjórnar og hafa snúist upp í andhverfu sína þegar framlög ætluð borgarstjórnarframboði F-listans nýtast borgarmálunum á engan hátt.

Ólafur F. Magnússon óskar bókað vegna 1. liðar fundargerðar umhverfis- og samgönguráðs frá 9. febrúar:

Minnugur orða Sivjar Friðleifsdóttur frá árinu 1998 og kjörorðs Umhverfisvina frá árinu 1999 um að „náttúran njóti vafans“, legg ég til að máli þessu verði frestað a.m.k. fram á haust. Brýnt er að nánari rannsóknir fari fram á umhverfisáhrifum framkvæmda við Elliðaár. Einnig þurfa borgarbúar á nýjum og umhverfisvænni meirihluta að halda í borginni áður en afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar um lífríki Elliðaánna. 

Ólafur F. Magnússon óskar bókað vegna 4. liðar fundargerðar umhverfis- og samgönguráðs frá 9. febrúar:

Ég minni á að þeim 24 milljörðum króna, sem varið er til framkvæmda við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við höfnina, væri betur varið til annarra verkefna í borginni. Ég mótmæli nú sem fyrr þeirri siðlausu forgangsröðun sem fjórflokkurinn með sína 14 borgarfulltrúa stendur fyrir í þessu sambandi. Væri forgangsröðunin önnur mætti verja velferðina og öryggismálin í borginni og fjölga störfum við grunnþjónustuna í borginni, í stað þess að segja þeim upp störfum, sem síst skyldi. Að gefnu tilefni er spurt hvort svokölluð „kynjuð hagstjórn“ fjórflokksins eigi eitthvað skylt við þá forgangsröðun sem áður er lýst. Hugleiða þarf hversu margar konur í umönnunar og kennslustofum missa einmitt vinnuna vegna forgangsröðunar fjórflokksins.

8. Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks leggja fram svohljóðandi tillögu um breytingar á skipan fagráða:

Lagt er til að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir taki sæti Þóreyjar Vilhjálmsdóttur í leikskólaráði. Þórey Vilhjálmsdóttir taki sæti varamanns í ráðinu í stað Hönnu Kristínar Skaptadóttur. Þá taki Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir við formennsku í leikskólaráði í stað Ragnars Sæs Ragnarssonar. Loks verði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir varamaður í borgarráði í stað Sifjar Sigfúsdóttur.
 
 Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að taka tillöguna á dagskrá.
 Tillagan samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.


Fundi slitið kl. 22.15

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

 Jórunn Frímannsdóttir  Sóley Tómasdóttir