Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

07.04.2010

Borgarstjórnarfundur 6. apríl 2010

B O R G A R S T J Ó R N


Ár 2010, þriðjudaginn 6. apríl, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Gunnar H. Hjálmarsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1.  Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks:

Borgarstjórn samþykkir að grípa til aðgerða til að draga úr umferðarhraða í hverfum borgarinnar. Öryggi barna og íbúa á að njóta forgangs og skal draga úr umferðarhraða í hverfunum. Gönguleiðir barna á leið í skóla eða tómstundir skulu sérstaklega skoðaðar og gerðar áætlanir um að lækka hámarkshraða á götum enn frekar þar sem börnin þurfa að komast yfir, annað hvort með bættri hönnun, skilgreiningu á vistgötu eða öðrum aðferðum. Forritun gönguljósa verði breytt í því skyni að auðvelda börnum og öðrum gangandi vegfarendum að komast leiðar sinnar örugglega. Þannig skulu ljósin stöðva bílaumferð þegar ýtt er á gönguljósahnappinn en ekki láta gangandi vegfarendur bíða eftir samstillingu ljósa fyrir bílaumferð. Umhverfis- og samgönguráði og -sviði verði falið að annast framkvæmd verkefnisins.

 Greinargerð fylgir tillögunni.

 Borgarfulltrúi F-lista óskar bókað:

Borgarstjórnarflokkur F-listans fagnar þeirri tillögu meirihlutans í borgarstjórn sem hér liggur fyrir, enda er hún í veigamiklum atriðum í samræmi við tillögu Ólafs F. Magnússonar sem hann hefur flutt hér í borgarstjórn. Því miður virðast þær hafa verið svæfðar í umhverfis- og samgönguráði en vonandi nýtast þær nú við vinnslu þessarar tillögu í ráðinu. F-listinn hefur alla tíð lagt mikla áherslu á umferðaröryggismál og almennt öryggi borgaranna.
 
Tillagan er samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

2. Borgarstjórn samþykkir með 15 samhljóða atkvæðum að skipa eftirtalda í yfirkjörstjórn vegna borgarstjórnarkosninganna 29. maí nk.:

Kristín Edwald
Þuríður Jónsdóttir
Katrín Theódórsdóttir

Til vara:
Heimir Örn Herbertsson
Guðrún Alda Elísdóttir
Eva Bryndís Helgadóttir

3. Lagður fram 2. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 26. mars og 18. liður fundargerðar borgarráðs frá 17. desember, tillaga að breytingu á samþykkt fyrir framkvæmda- og eignaráð.
 Breytingin er samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.

- Kl. 15.35 víkur Þorleifur Gunnlaugsson af fundi og Hermann Valsson tekur þar sæti.

4. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 18. og 25. mars.
 15. liður fundargerðar borgarráðs frá 18. mars, drög að samningi milli Reykjavíkurborgar og Golfklúbbs Reykjavíkur, samþykktur með 8 atkvæðum
gegn 6.
 13. liður fundargerðar borgarráðs frá 25. mars, umboð til borgarráðs vegna borgarstjórnarkosninga 29. maí nk., samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

 Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks óska bókað vegna 15. liðar fundargerðar borgarráðs frá 18. mars:

Með samkomulagi við Golfklúbb Reykjavíkur (GR) mun Reykjavíkurborg efna samning um stækkun golfvallarins á Korpúlfsstöðum. Samninginn má rekja til vorsins 2006 þegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þáverandi borgarstjóri Samfylkingarinnar, undirritaði skuldbindandi samninga við fjölmörg íþróttafélög upp á 2,2 milljarða króna, þar á meðal um styrk Reykjavíkurborgar til GR til stækkunar golfvallar á Korpúlfsstöðum. Það er því sérkennilegt að Samfylkingin og Dagur B. Eggertsson greiði atkvæði á sama fundi með nýju samkomulagi við önnur íþróttafélög, eins og Fylki og Fjölni, en á móti samkomulagi við GR, en alla samninga má rekja til þeirra samninga er gerðir voru í aðdraganda kosninga 2006. Með samkomulaginu er fallið frá fyrri uppbyggingaráformum samkvæmt samningi frá árinu 2007 en í samræmi við hann óskaði GR eftir styrk frá borgaryfirvöldum til stækkunar Korpúlfsstaðavallar og til uppbyggingar æfingaaðstöðu við Bása og við Grafarholtsvöll, alls að upphæð 450 m.kr. Með þeim samningi sem nú hefur verið samþykktur í borgarráði fellur félagið frá fyrri áformum en stækkun verður framkvæmd á Korpúlfsstaðavellinum samkvæmt upphaflegum samningi frá 3. apríl 2006. Mun borgin styrkja félagið vegna þeirrar framkvæmdar á fjórum árum og á móti skilar GR Reykjavíkurborg verðmætu landi í Staðarhverfi, sem verður til framtíðar verðmætt byggingarland borgarinnar. Samningurinn er til hagsbóta fyrir Reykjavíkurborg og gerir GR kleift að standa að uppbyggingu í samræmi við fyrri áform. Eins og kemur fram í umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar rúmast umrædd tillaga innan fjárhagsáætlunar.

 Borgarfulltrúar Samfylkingar óska bókað vegna 15. liðar fundargerðar borgarráðs frá 18. mars:
 
Í tillögu borgarstjóra felst að leggja fram 230 milljónir króna úr borgarsjóði í nýjan golfvöll. Það getur Samfylkingin ekki stutt á sama tíma og laun og þjónusta hefur verið skert og þrengt mjög að mikilvægri starfsemi í allri borginni. Samningar við íþróttafélög hafa þar ekki verið undanskildir og mörg brýn verkefni sem verða að bíða. Fullyrðingar meirihlutans um annað er vísað til föðurhúsanna og er vísað til bókana Samfylkingarinnar við afgreiðslu þeirra mála því til stuðnings. Golf er góð íþrótt sem margir hafa áhuga á en það er ekki hægt að ætlast til þess að borgarbúar, foreldrar, starfsfólk og önnur íþróttafélög sætti sig við erfiðan sparnað og áframhaldandi aðhald þegar borgarstjóri snarar fram 230 milljónum í golfvöll.

Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað vegna 15. liðar fundargerðar borgarráðs frá 18. mars:

Borgarfulltrúar Vinstri grænna telja með öllu óásættanlegt að á sama tíma og mikill niðurskurður á sér stað sem bitnar á grunnþjónustu borgarinnar skuli meirihlutinn samþykkja samning við Golfklúbb Reykjavíkur um 230 milljóna króna framlag á næstu fjórum árum. Á þessu ári mun borgin þannig greiða 50 milljónir til Golfklúbbsins en upphæðin samsvarar þeirri sem sparast við að fresta inntöku barna á leikskóla fram á haust. Aldrei hefur verið meiri þörf fyrir samfélagslega sýn í forgangsröðun fjármuna á hinum pólitíska vettvangi þannig að staðinn sé vörður um grunnþjónustuna. Þá ábyrgð ætlar meirihlutinn ekki að axla, heldur verja sameiginlegum fjármunum borgarbúa í afmarkaða framkvæmd í þágu fárra.

5. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 26. mars, framkvæmda- og eignaráðs frá 22. mars, íþrótta- og tómstundaráðs frá 9. og 12. mars, leikskólaráðs frá 17. mars, mannréttindaráðs frá 11. og 25. mars, menningar- og ferðamálaráðs frá 8. og 22. mars, menntaráðs frá 24. mars, skipulagsráðs frá 24. mars, umhverfis- og samgönguráðs frá 9. og 23. mars og velferðarráðs frá 24. mars.

- Kl. 17.02 tekur Þorleifur Gunnlaugsson sæti á fundinum og Hermann Valsson víkur af fundi.

Fundi slitið kl. 17.07

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

 Jórunn Frímannsdóttir                Sóley Tómasdóttir