01.01.1900
Borgarstjórnarfundur 20. apríl 2010
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2010, þriðjudaginn 20. apríl, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Ólafur F. Magnússon, Marta Guðjónsdóttir, Kjartan Magnússon, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Þetta gerðist:
1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna:
Borgarstjórn samþykkir að veita kr. 20.000.000 til eflingar á skapandi sumarstörfum á vegum Hins hússins sumarið 2010. Þannig skapist svigrúm fyrir fleiri einstaklinga í þessum eftirsóttu og mikilvægu störfum fyrir ungt fólk í Reykjavík. Að sama skapi verði fjármagnið nýtt til að lengja starfstíma þeirra verkefna sem þörf er á, til að efla og styrkja ferðamannaþjónustu í Reykjavík.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 14.04 tekur Dagur B. Eggertsson sæti á fundinum.
- Kl. 14.06 tekur Stefán Jóhann Stefánsson sæti á fundinum.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Framkominni tillögu er fagnað en jafnframt vakin athygli á því, að allur fjórflokkurinn, þ.ám. Vinstri grænir, hefur sýnt mikið óréttlæti í forgangsröðun sinni. Um það vitna m.a. tugmilljarða framlög til tónlistar- og ráðstefnuhúss við höfnina á meðan skorið er niður í velferðar- og mennntakerfi borgarinnar.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundasviðs til umsagnar.
2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna:
Lagt er til að þeir íbúar borgarinnar sem eru atvinnulausir og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð fái frítt á sundstaði borgarinnar og frí notendakort að þjónustu Borgarbókasafns út árið 2010. Borgarstjóri útfæri nánar framkvæmd tillögunnar.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Á tuttugu ára borgarstjórnarferli mínum hef ég flutt fjölda tillagna í borgarstjórn um lækkun eða niðurfellingu gjalds hjá borginni fyrir börn, unglinga, aldraða, öryrkja og þá sem lakar standa í fjárhagslegu og atvinnulegu tilliti. Þó að tillagan sem hér er borin fram varði aðeins lítið brot af þeim tillögum sem ég hef flutt um þessi mál þá fagna ég engu að síður framkominni tillögu. Ég minni enn og aftur á alvarlegan skort á því að fjórflokkurinn forgangsraði til velferðar- og öryggismála í borginni.
Tillagan er samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.
Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað:
Borgarfulltrúar Vinstri grænna fagna einróma ákvörðun borgarstjórnar þess efnis að þeir íbúar borgarinnar sem eru atvinnulausir og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð fái frítt á sundstaði borgarinnar og frí notendakort að þjónustu Borgarbókasafns út árið 2010. Sú skoðun skal þó áréttuð að samfélag sem sættir sig við fátækt íbúa sinna er ekki gott samfélag og borgarstjórn hlýtur að hafa það í forgangi að allir íbúar borgarinnar hafi nægar tekjur til að framfleyta sér og sínum á sómasamlegan hátt.
3. Fram fer umræða um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Í 16. passíusálmi séra Hallgríms Péturssonar, 8. versi, sem ritað var fyrir meira en 350 árum er undirrót þess ástands sem nú ríkir meðal þjóðarinnar lýst með eftirfarandi orðum: Undirrót allra lasta/ ágirndin kölluð er./ Frómleika frá sér kasta/ fjárplógsmenn ágjarnir,/ sem freklega elska féð,/ auði með okri safna,/ andlegri blessun hafna,/ en setja sál í veð. Á borgarstjórnarfundi fyrr á þessu ári lagði ég fram fjárhags- og eignastöðu mína. Enn stendur á því að aðrir borgarfulltrúar geri slíkt hið sama. Rannsóknarskýrsla Alþingis beinlínis æpir á það að kjörnir fulltrúar almennings geri hreint fyrir sínum dyrum.
- Kl. 17.40 víkur Kjartan Magnússon af fundi og Björn Gíslason tekur þar sæti.
- Kl. 18.12 er gert hlé á fundi.
- Kl. 18.42 er fundi fram haldið.
- Kl. 19.11 víkur Ólafur F. Magnússon af fundi.
- Kl. 19.13 víkur Björk Vilhelmsdóttir af fundi og Stefán Benediktsson tekur þar sæti.
- Kl. 19.57 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum og Björn Gíslason víkur af fundi.
4. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 8. og 15. apríl.
16. liður fundargerðar borgarráðs frá 15. apríl, ákvörðun um heiðursborgara, samþykktur með samhljóða atkvæðum.
5. Lagðar fram fundargerðir framkvæmda- og eignaráðs frá 12. apríl, íþrótta- og tómstundaráðs frá 26. mars og 9. apríl, leikskólaráðs frá 7. apríl, menningar- og ferðamálaráðs frá 12. apríl, menntaráðs frá 14. apríl, skipulagsráðs frá 31. mars og 14. apríl og velferðarráðs frá 14. apríl.
6. Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að Hafsteinn Valsson taki sæti aðalmanns í hverfisráði Breiðholts í stað Þorkels Ragnarssonar. Þorkell taki sæti varamanns í hverfisráðinu í stað Hafsteins.
Samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum að taka tillöguna á dagskrá.
Tillagan samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum.
Fundi slitið kl. 20.56
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Dagur B. Eggertsson
Jórunn Frímannsdóttir Sóley Tómasdóttir