Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

15.06.2010

Borgarstjórnarfundur 4. maí 2010

B O R G A R S T J Ó R N


Ár 2010, þriðjudaginn 4. maí, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Hermann Valsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1.  Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009, sbr. 36. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. f.m. Jafnframt lögð fram endurskoðunarskýrsla PricewaterhouseCoopers hf., dags. 30. s.m., ásamt skýrslu fjármálaskrifstofu, dags. 29. s.m. og skýrslu mannvirkjaskrifstofu um framvindu nýframkvæmda 2009, ódags.

 Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Þær 2,5 milljónir króna sem hver einasti borgarbúi skuldar í dag eru að langmestu leyti tilkomnar vegna glórulítilla fjárfestinga og framkvæmda í orkumálum og takmarkalítillar þjónkunar við erlend málmbræðslufyrirtæki.

Samþykkt með samhljóða atkvæðum að vísa ársreikningi Reykjavíkurborgar ásamt endurskoðunarskýrslu til síðari umræðu.

2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar:

Borgarstjórn samþykkir að endurvekja 10 mínútna tíðni Strætó á stofnleiðum innan Reykjavíkur. Í því skyni að fjármagna þá þjónustuaukningu verði m.a. teknar upp viðræður við ríkisstjórnina um endurgreiðslu á olíugjaldi á almenningssamgöngur, sbr. nýframlagða samgönguáætlun til fjögurra ára.

 Greinargerð fylgir tillögunni.

- Kl. 16.35 tekur Þorleifur Gunnlaugsson sæti á fundinum og Sóley Tómasdóttir víkur af fundi.

Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Um leið og fagnað er tillögum um bættar almenningssamgöngur er minnt á að fulltrúar fjórflokksins hafa um langt árabil ekki stutt tillögur mínar þar að lútandi. Bætt aðgengi almennings og niðurfelling gjaldtöku vegna almennings-samgangna er brýnt samgöngu- og umhverfismál, sem gæti leitt til mikils sparnaðar og betra mannlífs í borginni þegar upp er staðið.

 Samþykkt er með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til umhverfis- og samgönguráðs.

3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar:

Borgarstjórn samþykkir að hafa forystu um gerð heildstæðrar hjólreiðaáætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið í samvinnu við önnur sveitarfélög og Vegagerðina. Stefnt verði að því að stórefla möguleika á notkun reiðhjóla á svæðinu með gerð hjólreiðastígakerfis um allt höfuðborgarsvæðið þar sem hjólreiðar eru hugsaðar sem fullgildur samgöngumáti innan svæðisins.

 Greinargerð fylgir tillögunni.
 Tillagan er samþykkt með samhljóða atkvæðum.

4. Fram fer umræða um hámarkshraða á götum í Reykjavík.

 Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Það er ófrávíkjanleg krafa mín og þess framboðs um heiðarleika og almannahagsmuni sem býður fram til borgarstjórnarkosninganna 29. maí nk. að hvergi verði gefið eftir varðandi 30 km hámarkshraða í öllum hverfum borgarinnar, sem og í miðborginni. Umferðarslysum í borginni verður að útrýma með stífum hraðahindrandi aðgerðum og mislægum tengslum gangandi og akandi umferðar.

5. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 29. apríl.
32. liður fundargerðarinnar, kosning varamanns í yfirkjörstjórn, samþykktur með  samhljóða atkvæðum.

6. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 30. apríl, framkvæmda- og eignaráðs frá 26. apríl, leikskólaráðs frá 21. apríl, mannréttindaráðs frá 8. og 29. apríl, menningar- og ferðamálaráðs frá 26. apríl, menntaráðs frá 28. apríl, skipulagsráðs frá 21. apríl og velferðarráðs frá 19. og 28. apríl.


Fundi slitið kl. 18.07

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.


Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

 Jórunn Frímannsdóttir  Oddný Sturludóttir