Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

15.06.2010

Borgarstjórnarfundur 1. júní 2010

B O R G A R S T J Ó R N


Ár 2010, þriðjudaginn 1. júní, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sóley Tómasdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Jórunn Frímannsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1.  Lögð fram svohljóðandi tillaga Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að setja á fót Friðarstofnun Reykjavíkur og skipa fimm manna verkefnastjórn til undirbúnings. Höfði, þar sem grunnurinn var lagður að endalokum kalda stríðsins verður tákrænn fundarstaður. Ekki verða greidd laun fyrir setu í verkefnisstjórn. Stefnt skal að stofnfundi 24. september nk. Meginverkefni starfshópsins eru eftirfarandi:
a) Semja stofnskrá, tilgang og lög stofnunarinnar.
b) Gera tillögu um fimm aðalmenn í stjórn og þrjá í varastjórn.
c) Skilgreina samstarfsaðila hérlendis og erlendis.
Ísland og þar með Reykjavík hafa alla burði til að láta að sér kveða varðandi áður nefnd viðfangsefni enda sögulega séð ekki tengd að neinu leyti þeirri forsögu sem óneitanlega mótar öryggisvanda nútímans. Forysta Reykjavíkur í umhverfismálum, þá sérstaklega á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, mun nýtast öðrum ríkjum í náinni framtíð og skapa verðugan tilvistargrunn fyrir starfsemi Friðarstofnunar Reykjavíkur.

 Greinargerð fylgir tillögunni.
 Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til borgarráðs.

2. Lögð fram svohljóðandi tillaga Óskars Bergssonar:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að fela forsætisnefnd að yfirfara samþykktir borgarinnar með það að markmiði að skerpa betur á verkaskiptingu milli borgarstjórnar og borgarráðs. Borgarstjórnarfundir verði virkjaðir betur sem vettvangur hinnar pólitísku umræðu, en borgarráð verði fyrst og fremst sá vettvangur framkvæmda- og fjármálastjórnar borgarinnar sem lög gera ráð fyrir.

 Greinargerð fylgir tillögunni.
 Samþykkt með samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til borgarráðs.

3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna:

Í tilefni þess að borgarstjórn hefur tileinkað árið 2010 velferð barna leggja borgarfulltrúar Vinstri grænna til að öllum börnum í Reykjavík verði boðið að stunda sundlaugar borgarinnar sér að kostnaðarlausu frá og með 1. júní til 1. september.

Greinargerð fylgir tillögunni.

- Kl. 14.45 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 15.00 tekur Júlíus Vífill Ingvarsson sæti á fundinum og Marta Guðjónsdóttir víkur af fundi.

 Samþykkt með 13 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til borgarráðs.

4. Lögð fram svohljóðandi tillaga Ólafs F. Magnússonar:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að óska eftir lögreglurannsókn á því hvernig styrkjum borgarinnar til stjórnmálasamtaka er varið.

- Kl. 15.12 víkur Ólafur F. Magnússon af fundi.

Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi frávísunartillögu:

Samkvæmt 5. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra nr. 161/2006 er Reykjavíkurborg skylt að veita stjórnmálasamtökum sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í borgarstjórn eða hlotið a.m.k. fimm prósent í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum fjárframlög til starfsemi sinnar. Samkvæmt 9. gr. sömu laga skulu stjórnmálasamtök árlega skila ríkisendurskoðun reikningum sínum árituðum af endurskoðendum. Ríkisendurskoðun birtir útdrátt úr reikningum stjórnmála-samtakanna þar sem greint er frá helstu niðurstöðum. Jafnframt samþykkti borgarráð á fundi sínum 8. febrúar sl. tillögu forsætisnefndar frá 5. s.m. um að borgarráð beindi þeim tilmælum til stjórnmálasamtaka, sem fengu fulltrúa kjörna í borgarstjórn við borgarstjórnarkosningarnar 2006, að þau gerðu grein fyrir því hvernig framlögum borgarinnar til þeirra á kjörtímabilinu 2006-2009 hefði verið varið. Öll stjórnmálasamtök urðu við tilmælum borgarráðs og hafa skilað inn umbeðnum upplýsingum nema Frjálslyndi flokkurinn og borgarmálaflokkur F-listans. Engar vísbendingar eru uppi um að stjórnmálasamtökin hafi með neinum hætti brotið lög eða gengið gegn skyldum þeirra til að upplýsa um fjármál sín, hvað ofangreind atriði varðar, sem er lágmarkskrafa fyrir því að óskað sé þeirrar lögreglurannsóknar sem tillaga borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar gengur út á. Borgarfulltrúanum er hins vegar frjálst, á eigin vegum og á eigin ábyrgð, að óska slíkrar rannsóknar. Tillögunni er því vísað frá.

 Frávísunartillagan er samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum.

5. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 20., 27. og 28. maí.

6. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 28. maí, íþrótta- og tómstundaráðs frá 7. maí, leikskólaráðs frá 19. maí, mannréttindaráðs frá 28. maí, menntaráðs frá 26. maí, skipulagsráðs frá 19. maí, umhverfis- og samgönguráðs frá 27. apríl og 11. maí, og velferðarráðs frá 12. og 26. maí.

Í lok fundar tóku til máls borgarstjóri og forseti borgarstjórnar og þökkuðu borgarfulltrúum samstarfið á kjörtímabilinu.


Fundi slitið kl. 15.33

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

 Jórunn Frímannsdóttir  Sóley Tómasdóttir