01.07.2010
Borgarstjórnarfundur 15. júní 2010
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2010, þriðjudaginn 15. júní, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Kjartan Magnússon, Björk Vilhelmsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Páll Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Eva Einarsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Jón Gnarr Kristinsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Karl Sigurðsson, Oddný Sturludóttir, Óttarr Ólafur Proppé, Sóley Tómasdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Þetta gerðist:
Kjartan Magnússon, starfsaldursforseti borgarstjórnar, les upp bréf yfirkjörstjórnar Reykjavíkur frá 4. júní sl., þar sem skýrt er frá því að eftirtaldir fulltrúar hafi verið kjörnir í Borgarstjórn Reykjavíkur í borgarstjórnarkosningum 29. maí sl.:
Af D-lista:
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Kjartan Magnússon
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Gísli Marteinn Baldursson
Af S-lista
Dagur B. Eggertsson
Oddný Sturludóttir
Björk Vilhelmsdóttir
Af V-lista:
Sóley Tómasdóttir
Af Æ-lista:
Jón Gnarr Kristinsson
Einar Örn Benediktsson
Óttarr Ólafur Proppé
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Karl Sigurðsson
Eva Einarsdóttir
1. Kosning forseta borgarstjórnar til eins árs og tveggja varaforseta.
Forseti er kosinn Hanna Birna Kristjánsdóttir með 15 samhljóða atkvæðum.
1. varaforseti er kosinn Sóley Tómasdóttir með 15 samhljóða atkvæðum.
2. varaforseti er kosinn Björk Vilhelmsdóttir með 15 samhljóða atkvæðum.
Bókun borgarstjórnar:
Besti flokkurinn og Samfylkingin hafa gert með sér málefnasamning og þar með myndað meirihluta í borgarstjórn. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna eiga enga aðild að þeim meirihluta eða málefnasamningi. Vilji er hins vegar fyrir því hjá nýkjörinni borgarstjórn að auka samvinnu milli flokka og nýta krafta allra borgarfulltrúa í samræmi við vinnubrögð fráfarandi borgarstjórnar. Í staðinn fyrir hefðbundna kosningu á milli lista meirihluta og lista minnihluta í ráð og nefndir hafa borgarfulltrúar náð samkomulagi um að bera fram eina tillögu að nefndarskipan til að ná fram auknu jafnvægi milli flokka í nefndum og ráðum borgarinnar. Fulltrúar meirihlutans munu fara með formennsku í fagráðum en formennska í hverfisráðum og starfshópum mun skiptast milli flokka. Aðgerðahópur borgarstjórnar í efnahags- og atvinnumálum, sem skipaður var á síðasta kjörtímabili, mun halda áfram sínum störfum og munu oddvitar allra framboða taka þátt í því starfi. Að auki mun forysta ákveðinna verkefna og embætta vera óháð því hverjir eiga aðild að meirihlutanum. Þannig munu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna taka að sér embætti forseta og fyrsta varaforseta borgarstjórnar og leiða ákveðna starfshópa um ýmis mikilvæg hagsmunamál sem borgarstjórn telur brýnt að unnið verði að í samstarfi allra flokka eins og atvinnumálahóp, sem starfaði á síðasta kjörtímabili. Þetta fyrirkomulag er ákveðið til eins árs í senn. Það er von allrar borgarstjórnar að þau skref sem hér eru stigin til áframhaldandi samvinnu allra borgarfulltrúa á vettvangi borgarstjórnar verði til heilla fyrir borgina og borgarbúa.
2. Kosning tveggja skrifara til eins árs og tveggja til vara.
Kosin voru án atkvæðagreiðslu Karl Sigurðsson og Sóley Tómasdóttir.
Varaskrifarar voru kosnir með sama hætti Óttarr Ólafur Proppé og Gísli Marteinn Baldursson.
3. Kosning borgarstjóra til loka kjörtímabilsins:
Borgarstjóri til loka kjörtímabilsins er kosinn Jón Gnarr Kristinsson með 9 samhljóða atkvæðum.
4. Kosning sjö borgarráðsfulltrúa til eins árs og sjö til vara.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Óttarr Ólafur Proppé
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Dagur B. Eggertsson
Oddný Sturludóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Sóley Tómasdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Einar Örn Benediktsson
Karl Sigurðsson
Björk Vilhelmsdóttir
Hjálmar Sveinsson
Kjartan Magnússon
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Besta Flokksins og Samfylkingar:
Lagt er til að til næstu áramóta fari borgarráð með verkefni framkvæmda- og eignaráðs, menntaráð með verkefni leikskólaráðs, umhverfis- og samgönguráð með verkefni heilbrigðisnefndar og velferðarráð með verkefni framtalsnefndar skv. samþykktum viðkomandi ráða. Þær fullnaðarákvarðanir sem leikskólaráði og framtalsnefnd eru heimilaðar í viðaukum 1.4 og 1.5 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, komi á tímabilinu til borgarráðs til staðfestingar.
Tillagan er samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks óska bókað:
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks gerir ekki athugasemdir við né leggst gegn því að stjórnskipulag borgarinnar verði endurskoðað í þeim tilgangi að auka skilvirkni þess og hagkvæmni. Í því felst engin afstaða til þeirra tillagna sem síðar verða væntanlega lagðar fram. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins situr því hjá við afgreiðslu málsins.
Borgarfulltrúi Vinstri grænna óskar bókað:
Borgarfulltrúi Vinstri grænna tekur undir mikilvægi þess að fela menntaráði verkefni leikskólaráðs, telur vel koma til greina að fela borgarráði verkefni framkvæmda- og eignaráðs að hluta til eða öllu leyti, en geldur varhug við að fela umhverfis- og samgönguráði umsjá með verkefnum heilbrigðisnefndar. Þar sem allar breytingarnar eru teknar til afgreiðslu á sama tíma sér borgarfulltrúi Vinstri grænna sér ekki fært að greiða atkvæði um tillöguna og situr hjá.
6. Kosning sjö manna í íþrótta- og tómstundaráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Diljá Ámundadóttir
Eva Einarsdóttir
Eva Baldursdóttir
Hilmar Sigurðsson
Kjartan Magnússon
Geir Sveinsson
Björn Gíslason
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Einar Örn Benediktsson
Ragnar Hansson
Arna Garðarsdóttir
Bjarni Þór Sigurðsson
Hildur Sverrisdóttir
Marta Guðjónsdóttir
Árni Helgason
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Diljá Ámundadóttir.
7. Kosning sjö manna í mannréttindaráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Margrét Kristín Blöndal
Sigurjón Birgir Sigurðsson
Margrét K. Sverrisdóttir
Bjarni Jónsson
Marta Guðjónsdóttir
Þórey Vilhjálmsdóttir
Elín Sigurðardóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Jörundur Ragnarsson
Karl Berndsen
Eva Baldursdóttir
Ingibjörg Stefánsdóttir
Björn Gíslason
Ingibjörg Óðinsdóttir
Snærós Sindradóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Margrét K. Sverrisdóttir.
8. Kosning sjö manna í menningar- og ferðamálaráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Einar Örn Benediktsson
Harpa Elísa Þórsdóttir
Eva Baldursdóttir
Stefán Benediktsson
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Áslaug María Friðriksdóttir
Davíð Stefánsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Gaukur Úlfarsson
Hugleikur Dagsson
Höskuldur Sæmundsson
Hildur Hjörvar
Jón Karl Ólafsson
Jarþrúður Ásmundsdóttir
Þór Steinarsson
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Einar Örn Benediktsson.
9. Kosning sjö manna í menntaráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Óttarr Ólafur Proppé
Eva Einarsdóttir
Oddný Sturludóttir
Stefán Benediktsson
Kjartan Magnússon
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Líf Magneudóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Erna Ástþórsdóttir
Pétur Magnússon
Ingi Bogi Bogason
Hanna Lára Steinsson
Marta Guðjónsdóttir
Rúna Malmquist
Sigríður Pétursdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Oddný Sturludóttir.
10. Kosning sjö manna í skipulagsráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Páll Hjaltason
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Hjálmar Sveinsson
Sverrir Bollason
Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson
Geir Sveinsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Barði Jóhannsson
Hólmfríður Jónasdóttir
Kristín Soffía Jónsdóttir
Stefán Benediktsson
Jórunn Frímannsdóttir
Hildur Sverrisdóttir
Jón Karl Ólafsson
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Páll Hjaltason.
11. Kosning sjö manna í umhverfis- og samgönguráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Karl Sigurðsson
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir
Hjálmar Sveinsson
Kristín Soffía Jónsdóttir
Gísli Marteinn Baldursson
Hildur Sverrisdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
S. Björn Blöndal
Margrét Vilhjálmsdóttir
Kjartan Rolf Árnason
Kristín Erna Arnardóttir
Árni Helgason
Pawel Bartoszek
Claudia Overesch
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Karl Sigurðsson.
12. Kosning sjö manna í velferðarráð til fjögurra ára og sjö til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Margrét Kristín Blöndal
Ágúst Már Garðarsson
Björk Vilhelmsdóttir
Bjarni Karlsson
Áslaug María Friðriksdóttir
Jórunn Frímannsdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Haukur Jóhannsson
Hanna Lára Steinsson
Lárus Rögnvaldur Haraldsson
Óskar Örn Guðbrandsson
Sveinn Hlífar Skúlason
Elín Sigurðardóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Björk Vilhelmsdóttir.
13. Kosning eins manns í almannavarnanefnd til fjögurra ára og tveggja til vara.
Kosinn var án atkvæðagreiðslu Dagur B. Eggertsson.
Varamenn voru kosnir með sama hætti Oddný Sturludóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir.
14. Kosning fimm manna í hverfisráð Árbæjar til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Þorbjörn Sigurbjörnsson
Gunnar Kristinsson
Marsibil Jóna Sæmundardóttir
Björn Gíslason
Þorleifur Gunnlaugsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Svanhildur Kristjánsdóttir
Gerður Jónsdóttir
Konráð Gylfason
Alda Magnúsdóttir
Margrét Guðnadóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Þorleifur Gunnlaugsson.
15. Kosning fimm manna í hverfisráð Breiðholts til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Lárus Rögnvaldur Haraldsson
Falasteen Abu Libdeh
Sveinn Hlífar Skúlason
Jarþrúður Ásmundsdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Kristín Einarsdóttir
Erla Þórðardóttir
Sigþór K. Ágústsson
Hafsteinn Valsson
Ragnhildur B. Guðjónsdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Lárus Rögnvaldur Haraldsson.
16. Kosning fimm manna í hverfisráð Grafarholts og Úlfarsárdals til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Olga Olgeirsdóttir
Margrét K. Sverrisdóttir
Inga K. Gunnarsdóttir
Óskar Örn Guðbrandsson
Óttarr Örn Guðlaugsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Sigrún Jónsdóttir
Þóroddur Þórarinsson
Ásgeir Kristinsson
Júlíus Helgi Eyjólfsson
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Margrét K. Sverrisdóttir.
17. Kosning fimm manna í hverfisráð Grafarvogs til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Einar Örn Benediktsson
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir
Guðbrandur Guðbrandsson
Jón Karl Ólafsson
Ingibjörg Óðinsdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Hákon Már Oddsson
Þorsteinn V. Einarsson
Arna Garðarsdóttir
Emil Örn Kristjánsson
Þórdís Pálsdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Ingibjörg E. Guðmundsdóttir.
18. Kosning fimm manna í hverfisráð Háaleitis og Bústaða til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Gunnar Ingi Gunnarsson
Kristín Erna Arnardóttir
Hörður Oddfríðarson
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Rúna Malmquist
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Friðþjófur Adolf Ólason
Auður Anna Aradóttir
Ingi Bogi Bogason
Elínóra Inga Sigurðardóttir
Fanney Birna Jónsdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
19. Kosning fimm manna í hverfisráð Hlíða til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Sigurður Eggertsson
Hilmar Sigurðsson
Linda Ósk Sigurðardóttir
Geir Sveinsson
Pawel Bartoszek
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Herdís Þórsteinsdóttir
Stefán Benediktsson
Guðný Aradóttir
Jón Kári Jónsson
Jóhann Birgisson
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Hilmar Sigurðsson.
20. Kosning fimm manna í hverfisráð Kjalarness til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Ágúst Már Garðarsson
Eldey Huld Jónsdóttir
Hanna Lára Steinsson
Marta Guðjónsdóttir
Hólmar Þór Stefánsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Elísabet Magnúsdóttir
Íris Fjóla Bjarnadóttir
Ásgeir Reynir Bragason
Hafsteinn Númason
Auróra Guðrún Pétursdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Marta Guðjónsdóttir.
21. Kosning fimm manna í hverfisráð Laugardals til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Heiðar Ingi Svansson
Inga María Leifsdóttir
Leifur Björnsson
Jórunn Frímannsdóttir
Halldór Gunnarsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Ingibjörg Helga Arnardóttir
Eva Einarsdóttir
Bjarni Jónsson
Jón Birgir Gunnarsson
Ingvar Garðarsson
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Inga María Leifsdóttir.
22. Kosning fimm manna í hverfisráð Miðborgar til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Daði Ingólfsson
Óttarr Ólafur Proppé
Kristín Soffía Jónsdóttir
Áslaug María Friðriksdóttir
Árni Helgason
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Hugleikur Dagsson
Ágúst Már Garðarsson
Hjálmar Sveinsson
Kári Sölmundarson
Matthildur Skúladóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Óttarr Ólafur Proppé.
23. Kosning fimm manna í hverfisráð Vesturbæjar til fjögurra ára og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Sólveig Hauksdóttir
Hjördís G. Thors
Sverrir Bollason
Gísli Marteinn Baldursson
Hildur Sverrisdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Páll Hjaltason
Reynir Sigurbjörnsson
Vala Ingimarsdóttir
Ólafur R. Jónsson
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Gísli Marteinn Baldursson.
24. Kosning þriggja manna í innkauparáð til fjögurra ára og þriggja til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Barði Jóhannsson
Kjartan Valgarðsson
Jórunn Frímannsdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
S. Björn Blöndal
Stefán Jóhann Stefánsson
Rúna Malmquist
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Kjartan Valgarðsson.
25. Kosning fimm manna í stjórn Faxaflóahafna sf. til eins árs og fimm til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
S. Björn Blöndal
Hjálmar Sveinsson
Björk Vilhelmsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti:
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir
Arna Garðarsdóttir
Dagur B. Eggertsson
Gísli Marteinn Baldursson
Kjartan Magnússon
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Hjálmar Sveinsson.
26. Kosning fimm manna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sf. til eins árs og fimm til vara; formanns- og varaformannskjör.
Kosin eru af DSVÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Haraldur Flosi Tryggvason
Helga Jónsdóttir
Aðalsteinn Leifsson
Kjartan Magnússon
Sóley Tómasdóttir
Varamenn eru kosnir með sama hætti.
Brynhildur Davíðsdóttir
Guðmundur Þór Reynaldsson
Ingrid Kuhlman
Júlíus Vífill Ingvarsson
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Haraldur Flosi Tryggvason. Varaformaður er kosinn með sama hætti Helga Jónsdóttir.
27. Kosning þriggja manna í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar til fjögurra ára og þriggja til vara; formannskjör.
Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu:
Björk Vilhelmsdóttir
Jón Fjörnir Thoroddsen
Júlíus Vífill Ingvarsson
Varamenn eru kosnir með sama hætti.
Karl Ægir Karlsson
Kjartan Valgarðsson
Sveinn Hlífar Skúlason
Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Björk Vilhelmsdóttir.
28. Kosning eins fulltrúa í stjórn Sorpu bs. til tveggja ára og eins til vara.
Kosinn var af DSÆ-lista án atkvæðagreiðslu Einar Örn Benediktsson.
Varamaður var kosinn með sama hætti Oddný Sturludóttir.
29. Kosning eins fulltrúa í stjórn Strætó bs. til tveggja ára og eins til vara.
Kosinn var af DSÆ-lista án atkvæðagreiðslu Gunnar Lárus Hjálmarsson.
Varamaður var kosinn með sama hætti Björk Vilhelmsdóttir.
30. Kosning tveggja skoðunarmanna ársreiknings Reykjavíkurborgar til fjögurra ára og tveggja til vara:
Kosnir voru af DSÆ-lista án atkvæðagreiðslu Ari Skúlason og Magnús Þór Gylfason.
Varamenn voru kosnir með sama hætti Guðrún Ögmundsdóttir og Guðrún Inga Ingólfsdóttir.
31. Áður en gengið er til 31. liðs útsendrar dagskrár leggur Sóley Tómasdóttir fram lista yfir áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna í nefndum og ráðum.
32. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar:
Með vísan til niðurlags 2. mgr. 68. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar er lagt til að formaður borgarráðs taki sæti borgarstjóra á fundum borgarstjórnar í fjarveru borgarstjóra.
Samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
33. Lagðar fram siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg og þær undirritaðar af borgarfulltrúum.
34. Borgarstjórn samþykkir að fella niður borgarstjórnarfundi í júlí og ágúst nk. skv. heimild í 3. mgr. 5. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007, með síðari breytingum. Í sumarleyfi borgarstjórnar fer borgarráð með sömu heimildir og borgarstjórn hefur ella, sbr. þó ákvæði 5. mgr. 51. gr. samþykktarinnar.
Fundi slitið kl. 15.10
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Karl Sigurðsson Sóley Tómasdóttir