19.12.2011
Borgarstjórnarfundur 30. nóvember 2011 [aukafundur]
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2011, miðvikudaginn 30. nóvember, var haldinn aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Óttarr Ólafur Proppé, Eva Einarsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Geir Sveinsson, Kjartan Magnússon og Sóley Tómasdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
1. Fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2012-2016, fyrri umræða.
Lagt fram frumvarp að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2012-2016 sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 28. nóvember.
- Kl. 14.08 tekur Áslaug Friðriksdóttir sæti á fundinum.
- Kl. 14.59 tekur Júlíus Vífill Ingvarsson sæti á fundinum og Áslaug Friðriksdóttir víkur sæti.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa frumvarpi að fimm ára áætlun fyrir árin 2012–2016 til síðari umræðu.
2. Lögð fram drög að atvinnustefnu Reykjavíkurborgar – skapandi borg.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að taka eftirfarandi málsmeðferðartillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins á dagskrá.
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að setja á laggirnar starfshóp sem skipaður verði fulltrúum allra flokka og hafi það verkefni að móta atvinnustefnu Reykjavíkurborgar. Þeim drögum sem hér liggja fyrir verði vísað til hópsins til frekari vinnu. Starfshópurinn skili niðurstöðum sínum fyrir 15. maí 2012.
Málsmeðferðartillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins felld með 9 atkvæðum gegn 6.
Lögð fram eftirfarandi tillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingarinnar:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að fela borgarráði að leita umsagnar um drög að atvinnustefnu hjá lykilhagsmunaaðilum í atvinnulífi og samfélagi auk allra fagráða Reykjavíkur, fyrirtækja borgarinnar, framkvæmda- og eignasviðs, fjármálaskrifstofu, innkaupaskrifstofu, mannauðsskrifstofu og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
3. Borgarfulltrúi Hanna Birna Kristjánsdóttir kveður sér hljóðs utan dagskrár og minnist fyrir hönd borgarstjórnar, Ingibjargar Rafnar hrl., fyrrum borgarfulltrúa og borgarráðsmanns, sem lést á Landsspítalanum sl. sunnudag, 61 árs að aldri.
Borgarstjórn Reykjavíkur sendir fjölskyldu Ingibjargar Rafnar samúðarkveðjur, um leið og henni er þakkað fyrir störf sín í þágu Reykjavíkur.
4. Fram fer umræða um starfshætti og áherslur stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
- Kl. 19.15 víkur Björk Vilhelmsdóttir af fundinum og Hjálmar Sveinsson tekur sæti.
- Kl. 19.18 víkur Kjartan Magnússon af fundinum og Marta Guðjónsdóttir tekur sæti.
5. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 17. nóvember, 24. nóvember og 28. nóvember.
14. liður fundargerðar borgarráðs frá 17. nóvember, gjaldskrá fyrir hundahald í Reykjavík, samþykktur með 9 samhljóða atkvæðum.
15. liður fundargerðar borgarráðs frá 17. nóvember, gjaldskrá fyrir mengunar- og heilbrigðiseftirlit, samþykktur með 9 samhljóða atkvæðum.
16. liður fundargerðar borgarráðs frá 24. nóvember, breytingar á yfirvinnugreiðslum á leikskólum, samþykktur með 9 atkvæðum gegn 1.
Borgarfulltrúi Vinstri grænna óskar bókað:
Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar linnir ekki látum gagnvart leikskólakennurum sem hafa þurft að þola afar erfiða tíma allt frá því ný borgarstjórn var kosin vorið 2010. Nú á að afnema greiðslur vegna neysluhlés sem fulltrúar allra flokka hafa staðið vörð um gegnum afar erfiða tíma og rökstutt með sannfærandi sanngirnissjónarmiðum. Ekki er hægt að fallast á rökstuðning meirihlutans vegna málsins, þar sem talið er að umframhækkanir sem Félag leikskólakennara náði gegnum kjarasamninga vegi upp á móti greiðslum vegna neysluhlés. Þar er um eftiráskýringu að ræða sem byggir á afar veikum grunni, enda hafa ákvæði um matar- og kaffihlé ekki tekið neinum breytingum í kjarasamningnum frá því sem áður var. Umframhækkanirnar eru til komnar til að leiðrétta stöðu leikskólakennara gagnvart grunnskólakennurum, sem höfðu um tíma verið á betri kjörum en þeir fyrrnefndu og lítur út fyrir að það markmið náist við lok samningstímabilsins. Þá skal áréttað að grunnskólakennarar fá greitt fyrir að matast með börnum en leikskólakennarar ekki, fái meirihlutinn sínu fram. Matartímar leikskólanna eru hluti af daglegu starfi og fara varla fram án leikskólakennara sem inna af hendi mikilvæga vinnu. Fyrir þá vinnu eiga kennararnir að fá greitt, rétt eins og grunnskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna. Það er brýnt að fram fari endurskoðun á yfirvinnugreiðslum Reykjavíkurborgar, en afar ósanngjarnt að ein kvennastétt sem ekki er ofalin af launum sínum sé tekin fyrir sérstaklega. Nú þegar hagur borgarinnar er að vænkast og versti hjallinn yfirstaðinn í kjölfar efnahagshrunsins er með öllu óásættanlegt að gripið sé til þessara aðgerða. Borgarfulltrúi Vinstri grænna greiðir því atkvæði gegn tillögunni.
Borgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar óskuðu bókað:
Borgarráðsfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar vilja ítreka að í Reykjavík var staðinn vörður um umframgreiðslur til leikskólakennara í gegnum erfiðar fjárhagsáætlanir á meðan önnur sveitarfélög höfðu afnumið þær. Í aðdraganda kjarasamninga við FL kom skýrt fram að leikskólakennarar vildu gjarnan sjá að reykvísku umframgreiðslurnar skiluðu sér inn í launatöflu, í Reykjavík sem og annars staðar á landinu. Borgarráðsfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar fagna nýgerðum kjarasamningum við leikskólakennara og telja að forgangsröðun meirihlutans um að verja umframgreiðslurnar við knappan fjárhag borgarinnar hafi stuðlað að þeirri góðu niðurstöðu sem nú liggur fyrir. Í ljósi þess að kjarabætur til annarra starfsmanna leikskólanna, aðallega Eflingarstarfsfólks, voru ekki jafnmiklar verður ekki hreyft við umframgreiðslum til þeirra. Reykjavíkurborg fer eftir kjarasamningum um greiðslur fyrir matartíma, hér eftir sem hingað til.
6. Lagðar eru fram fundargerðir forsætisnefndar frá 25. nóvember, íþrótta- og tómstundaráðs frá 11. nóvember, mannréttindaráðs frá 22. nóvember, menningar- og ferðamálaráðs frá 14. nóvember, skipulagsráðs frá 23. nóvember, skóla- og frístundaráðs frá 16. nóvember, umhverfis- og samgönguráðs frá 22. nóvember og velferðarráðs frá 9. og 17. nóvember.
Fundi slitið kl. 20.35.
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Karl Sigurðsson Geir Sveinsson