12.01.2012
Borgarstjórnarfundur 6. desember 2011
B O R G A R S T J Ó R N
Ár 2011, þriðjudaginn 6. desember, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.31. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Óttarr Ólafur Proppé, Eva Einarsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Geir Sveinsson, Kjartan Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sóley Tómasdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
1. Fjárhagsáætlun 2012; síðari umræða.
Lagt fram að nýju frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012 ásamt greinargerð og starfsáætlunum. Jafnframt er lagður fram 33. liður úr fundargerð borgarráðs frá 1. desember: breytingartillögur borgarráðsfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar við frumvarp að fjárhagsáætlun merktar ÆS01-ÆS12.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja fram svohljóðandi breytingartillögu við frumvarpið:
D-1 Lækkun álagningarhlutfalls útsvars.
Borgarstjórn samþykkir að lækka álagningarhlutfall útsvars úr 14,48% í 14,23% (var 13,03% en með tilfærslu á málefnum fatlaðra fór 1,2% frá ríki til sveitarfélaga) vegna ársins 2012, þannig að álagningarhlutfallið verði það sama og það var fyrir hækkanir núverandi meirihluta. Þeirri breytingu verði mætt með lækkun á sameiginlegum kostnaði um sömu fjárhæð sem útfærð verði á kostnaðarstað af borgarráði.
Borgarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi breytingartillögu við frumvarpið:
V-1 Fjárhagsaðstoð
Lagt er til að 224.500 þ.kr. verði færðar á liði VÞ 1020-1023. Fjármagnið nýtist í eftirfarandi: Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga verði hækkuð úr kr. 149.000,- á mánuði í kr. 161.000,-, að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til hjóna/sambúðarfólks verði hækkuð úr kr. 223.500,- á mánuði í kr. 247.500,-, grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga sem búa með öðrum, leigja húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hafa ekki aðgang að húsnæði verði hækkuð úr kr. 125.540,- á mánuði í 137.540,- og grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga sem fara með forsjá barns og búa hjá foreldrum verði hækkuð úr kr. 125.540,- í kr. 137.540,-. Jafnframt að greidd verði eingreiðsla upp á kr. 50.000,- til einstaklinga sem notið hafa fullrar fjárhagsaðstoðar undanfarna þrjá mánuði og hlutfall af þeirri upphæð í samræmi við skerðingu til þeirra sem notið hafa skertrar fjárhagsaðstoðar, sem og að sérstakar heimildargreiðslur vegna barna hækki til samræmis við aðrar hækkanir. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð (09205).
V-2 Morgunmatur í grunnskólum
Lagt er til að 70.000 þ.kr. verði færðar á liði grunnskólanna (M2101-M2171 og M2187-M2188) svo hægt verði að bjóða upp á hafragraut í öllum grunnskólum borgarinnar á morgnana. Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð (09205).
V-3 Ferlimál fatlaðra
Lagt er til að 15.000 þ.kr. verði færðar á liði ferlimála fatlaðra (1400-1408).
Útgjaldaauki vegna þessa verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð.
V-4 Forgangsakreinar fyrir strætó
Lagt er til að varið verði 100.000 þ.kr. til viðbótar vegna forgangsakreina fyrir strætó. Á móti verði hætt við malbiksframkvæmdir á Reynisvatnsvegi og aðrar malbiksframkvæmdir lækkaðar um 50.000 þ.kr.
V-5 Ófyrirséð
Lagt er til að liðurinn ófyrirséð (09205) lækki úr 391.400 þ.kr. í 81.900 þ.kr.
- Kl. 17.35 víkur Geir Sveinsson af fundi og Jórunn Frímannsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 18.50 víkur Sóley Tómasdóttir af fundi og Þorleifur Gunnlaugsson tekur þar sæti.
- Kl. 20.15 víkur Jórunn Frímannsdóttir af fundi og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 21.45 tekur Geir Sveinsson sæti á fundinum og Marta Guðjónsdóttir víkur af fundi.
- Kl. 22.15 víkur Gísli Marteinn Baldursson af fundi og Áslaug Friðriksdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 22.30 víkur Karl Sigurðsson af fundi og Páll Hjalti Hjaltason tekur þar sæti.
- Kl. 22.35 víkur Þorleifur Gunnlaugsson af fundi og Líf Magneudóttir tekur þar sæti.
- Kl. 22.40 víkur Björk Vilhelmsdóttir af fundi og Hjálmar Sveinsson tekur þar sæti. Einnig víkur Oddný Sturludóttir af fundi og Margrét Sverrisdóttir tekur þar sæti.
- Kl. 22.48 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi og Björn Gíslason tekur þar sæti.
- Kl. 23.15 tekur Sóley Tómasdóttir sæti á fundinum og Líf Magneudóttir víkur af fundi.
- Kl. 23.30 tekur Oddný Sturludóttir sæti á fundinum og Margrét Sverrisdóttir víkur af fundi.
Ekki eru gerðar tillögur um aðrar breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 en að framan greinir.
Er þá gengið til atkvæða um þær breytingartillögur við frumvarp að fjárhagsáætlun ársins 2012 sem fyrir liggja:
Breytingartillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, merkt D-1, varðandi lækkun álagningarhlutfalls útsvars, felld með 10 atkvæðum gegn 5.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-1, varðandi fjárhagsaðstoð, felld með 9 atkvæðum gegn 1.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-2, varðandi morgunmat í grunnskólum, felld með 9 atkvæðum gegn 1.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-3, varðandi ferlimál fatlaðra, samþykkt með 10 atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-4, varðandi forgangsakreinar fyrir strætó, felld með 9 atkvæðum gegn 1.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna, merkt V-5, varðandi ófyrirséð, felld með 9 atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-01, varðandi tryggingargjaldshækkun, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-02, varðandi barnamenningarhátíð, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-03, varðandi borgarhátíðarsjóð, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-04, varðandi bókmenntaborgina, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-05, varðandi breytingar á sorphirðu, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-06, varðandi fjárhagsaðstoð, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-07, varðandi systkinaafslátt foreldra með fleiri en eitt barn hjá dagforeldri, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-08, varðandi fjölgun leikskólaplássa haustið 2012 vegna barna fæddra árið 2010, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-09, varðandi breytingar á yfirvinnugreiðslum í leikskólum, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-10, varðandi langtímaveikindi starfsfólks í leikskólum, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-11, varðandi aukinn stuðning við utangarðsfólk, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Breytingartillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar, merkt ÆS-12, varðandi lækkun á liðnum ófyrirséð, samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Þá er gengið til atkvæða um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012 með áorðnum breytingum.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks óska bókað:
Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2012 er enn eitt dæmið um stefnuleysi og ranga forgangsröðun meirihlutans. Kerfið þenst út á kostnað fólksins sem ekki er aflögufært. Í stað þess að nýta sterka stöðu borgarsjóðs til hagsbóta fyrir almenning í Reykjavík, er kostnaður vegna miðlægrar stjórnsýslu aukinn og ráðist í ný verkefni innan kerfisins en sköttum og gjöldum áfram haldið háum. Þetta eru áherslur sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokkins telja bæði óskynsamlegar og óþarfar, enda þarf Reykjavík ekki að ganga svo nærri almenningi til að geta rekið hér góða grunnþjónustu. Þegar hækkanir meirihluta Besta flokks og Samfylkingar á fjölskyldur í borginni eru teknar saman má sjá að meirihlutinn mun kosta meðalfjölskyldu um 300 þúsund krónur frá 2010 til og með árinu 2012. Á síðastliðnu ári nam hækkun á fjölskyldu um 150 þúsund og annað árið í röð leggur meirihlutinn aðra eins byrði á fólkið í borginni. Skatta- og gjaldskrárhækkanir meirihlutans eru komnar langt út fyrir þolmörk og greiðslugetu borgarbúa en skatttekjur borgarinnar hafa aukist um 15% frá 2010 og tekjur vegna gjaldskrár hafa hækkað um 40%, á sama tíma og kaupmáttur ráðstöfunartekna almennings hefur lækkað um 30%. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bentu á það fyrir ári síðan að skattahækkanir sem áttu að taka 800 milljónir úr vösum borgarbúa, væru óþarfar. Þessi afstaða var staðfest með árshlutauppgjöri borgarinnar sl. sumar þegar í ljós kom að borgin hafði vanáætlað skatttekjur sínar um 1,6 milljarð króna og hefði þannig alls ekki þurft að grípa til skattahækkana nema til standi að auka umfang stjórnsýslunnar enn frekar. Í samræmi við það lagði borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins fram tillögu um að lækka álagningarhlutfall útsvars úr 14,48% í 14,23%, þannig að ítrekaðar skattahækkanir meirihlutans yrðu teknar til baka og álagningarhlutfallið yrð það sama og það var árið 2010. Sú tillaga var felld sem staðfestir enn og aftur þá röngu forgangsröðun meirihlutans, kerfið á kostnað fólksins, sem ætti að vera yfirskrift þessarar fjárhagsáætlunar.
Borgarfulltrúi Vinstri grænna óskar bókað:
Borgarfulltrúi Vinstri grænna lýsir vonbrigðum yfir því stefnu- og metnaðarleysi sem endurspeglast í fjárhagsáætlun meirihluta Besta flokks og Samfylkingar. Þótt þar sé að finna mörg ágæt verkefni sjást þar engin merki um meinta skapandi hugsun eða róttækni. Rekstur borgarinnar virðist eiga að vera með hefðbundnu sniði um ókomin ár, þar sem þrengt er að grunnþjónustunni á kostnað kerfisins. Undirbúningur og gerð fjárhagsáætlunarinnar var alfarið á herðum meirihlutans og var hvorki reynt að ræða við minnihlutann né upplýsa um framgang mála. Ekkert tillit hefur verið tekið til sjónarmiða minnihlutans sem þó endurspegla skoðanir stórs hluta borgarbúa sem þannig eru virtir að vettugi. Borgarfulltrúi Vinstri grænna lagði fram fjórar breytingartillögur við frumvarpið milli umræðna og var aðeins ein þeirra samþykkt, um aukin framlög til ferlimála fatlaðra. Það er vel, enda brýnt að tryggja aðgengi að byggingum og opinberum rýmum. Aðrar tillögur voru felldar, en þær lutu að hækkun fjárhagsaðstoðar, morgunmat í grunnskólum og aukinni áherslu á forgangsakreinar strætó. Vinstri græn telja brýnt að nú þegar versti hjallinn í kjölfar efnahagshrunsins er yfirstaðinn, verði unnið að því að efla og styrkja mikilvæga grunnþjónustu borgarinnar. Löngu er orðið tímabært að hækka fjárhagsaðstoð til jafns við hækkun annarra bóta, gengið hefur verið alltof nærri leik- og grunnskólum og frístundastarf þarf á dyggum stuðningi að halda til að halda áfram að vaxa og dafna inni á nýju skóla- og frístundasviði. Nauðsynlegt er að gera gangskör í atvinnumálum ungs fólks, eflingu almenningssamgangna og svo mætti lengi telja. Vinstri græn munu ótrauð vinna áfram að þessum málum og miða að félagslegu réttlæti, kvenfrelsi og umhverfisvernd í öllu starfi borgarinnar.
Borgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingar óska bókað:
Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar leggur nú fram aðra fjárhagsáætlun sína. Ákveðið jafnvægi hefur náðst í rekstri borgarinnar en áætlunin nú einkennist af ábyrgri fjármálastjórn og aðhaldi fremur en niðurskurði. Þær aðgerðir sem farið var í til að bæta fjárhag Orkuveitu Reykjavíkur hafa eytt mikilli óvissu og skilað sér í mun meira öryggi í rekstri Reykjavíkurborgar. Þetta gríðarlega mikilvæga fyrirtæki ætti að vera komið í gott jafnvægi innan fimm ára. Háar skuldir samstæðu Reykjavíkurborgar kalla á að borgin og fyrirtæki hennar skili rekstrarafgangi til næstu ára og greiði niður skuldir. Stærstur hluti skulda Reykjavíkurborgar er hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Niðurgreiðsla þeirra er þegar hafin. Á yfirstandandi ári tók Reykjavíkurborg við málefnum fatlaðra og telst borgin ásamt Seltjarnarnesi eitt þjónustusvæði skv. samningi á milli þessara sveitarfélaga. Vaxandi langtímaatvinnuleysi og fjölgun þeirra sem ekki eiga rétt til bóta úr atvinnuleysistryggingasjóði veldur hækkandi kostnaði við fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg. Þess vegna gerir meirihluti Besta flokks og Samfylkingar ráð fyrir sérstökum fjárveitingum til velferðarsviðs til að mæta auknu álagi og til að efla virkniúrræði. Mikilvægt er að tryggja að þeir sem vilja vinna fái vinnu, möguleika á námi eða önnur úrræði til að draga úr neikvæðum áhrifum efnahagslægðarinnar. Það er mikilvægt að ungt fólk festist ekki í fjötrum langtímaatvinnuleysis. Atvinnutorg fyrir ungt fólk fer af stað í byrjun árs 2012. Það er sett af stað í samvinnu við Vinnumálastofnum og verður lögð áhersla á að veita ungu fólki, 18-24 ára, sem er á fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins, tækifæri til að komast út á vinnumarkaðinn og öðlast starfsreynslu. Hér er verið að gefa ungu fólki tækifæri sem geta hjálpað því við að koma undir sig fótunum. Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar mun áfram halda uppi háu framkvæmdastigi hjá Reykjavíkurborg. Varið verður um 6,5 milljörðum til framkvæmda, einkum til verkefna sem ekki auka fastan rekstrarkostnað borgarinnar. Þá verður hafin gerð hverfisskipulags til að einfalda og bæta skipulagsgerð í hverfum. Um leið verður samráð við borgarbúa um skipulag nánasta umhverfis þeirra aukið. Á árinu var stofnað nýtt skóla- og frístundasvið, þar sem sameinaðir voru undir eina yfirstjórn þeir málaflokkar er snúa að menntun barna í borginni frá leikskóla til grunnskóla auk listfræðslu, fullorðinsfræðslu og frístundastarfi sem tengist börnum og ungmennum. Það er von meirihlutans að með þessu náist fram betri nýting fjármuna og jafnframt betri þjónusta en áður. Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar leggur til að álagningarhlutfall fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði verði lækkað í 0,2% úr 0,225%. Þetta þýðir að tekjur af fasteignaskatti af íbúðarhúsnæði lækka um 75 m.kr. en hefðu að óbreyttu hækkað um 230 m.kr. Jafnframt er lagt til að lóðarleiga hækki úr 0,165% í 0,2% til mótvægis, sem þýðir að tekjur af lóðarleigu fara úr 258 m.kr. í 350 m.kr. Þannig standa fasteignagjöld á íbúðarhúsaeigendur í heild nánast í stað að krónutölu. Þessi álagningarhlutföll eru áfram með því allra lægsta sem gerist á landinu. Í þessari fjárhagsáætlun verður opnað fyrir aukna lýðræðislega aðkomu að fjárhagsáætlunarvinnu við skiptingu smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna (hverfapottar). Samráðsvefurinn Betri Reykjavík verður notaður til að taka við hugmyndum frá íbúum um þessi verkefni. Þau verða kostnaðarmetin og að því loknu munu hverfaráðin stilla upp verkefnum sem fara í rafræna kosningu sem verður bindandi. Mikilvægt er að mæta núverandi aðstæðum í samfélagi okkar af bjartsýni og sköpunarkrafti. Til að styðja við þá hugsun hefur verið samþykkt ný ferðamálastefna og unnið er að mótun atvinnustefnu. Markmið borgaryfirvalda er einfalt, að Reykjavík sé eftirsóknarverður staður fyrir fólk. Reykjavík hefur alla burði til að verða besta borg í heimi fyrir fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir, ferðamenn og allskonar íbúa. Borgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar vilja þakka starfsfólki Reykjavíkurborgar fyrir að sinna störfum sínum af alúð.
2. Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að taka svohljóðandi tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks á dagskrá:
Lagt er til að Andri Óttarsson taki sæti Halldórs Frímannssonar sem aðalmaður í barnaverndarnefnd.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.
3. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 1. desember.
4. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 1. desember, menningar- og ferðamálaráðs frá 28. nóvember, skipulagsráðs frá 30. nóvember og umhverfis- og samgönguráðs frá 11. nóvember.
Fundi slitið kl. 23.57
Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Karl Sigurðsson Geir Sveinsson