Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

12.01.2012

Borgarstjórnarfundur 13. desember 2011 [aukafundur]

B O R G A R S T J Ó R N


Ár 2011, þriðjudaginn 13. desember, var haldinn aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Páll Hjalti Hjaltason, Eva Einarsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Geir Sveinsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sóley Tómasdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

1. Fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2012-2016; síðari umræða.
Lagt fram að nýju frumvarp að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2012-2016.

- Kl. 14.02 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum.
- Kl. 16.25 víkur Páll Hjalti Hjaltason af fundinum og S. Björn Blöndal tekur þar sæti.

 Samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri Grænna óska bókað:
Fimm ára áætlun meirihluta Besta flokks og Samfylkingar stendur ekki undir nafni, enda kemur þar ekkert fram um fyrirætlanir meirihlutans á næstu árum. Hér er aðeins um að ræða framreiknaða fjárhagsáætlun, ásamt greinargerð um efnahagsumhverfi borgarinnar, forsendur og mögulegar breytingar á næstu árum sem er vandlega unnin af hálfu fjármálaskrifstofu borgarinnar og byggir á sóknaráætlun borgarinnar frá árinu 2009. Hlutverk áætlanagerðar er að marka stefnu til að ná ákveðnum markmiðum. Borgarstjórn ber að setja slíkar áætlanir fram, enda eiga borgarbúar heimtingu á upplýsingum um hver markmiðin eru og hvernig og hvenær þeim verður náð.  Meint fimm ára áætlun inniheldur engar upplýsingar um slíkt. Áætlunin hefur ekki verið unnin af kjörnum fulltrúum, ekkert samráð hefur verið haft við fulltrúa minnihlutans, fagráð borgarinnar hafa ekki fjallað um hana, né heldur sviðsstjórar fagsviða. Þannig er lýðræðið virt að vettugi enn eina ferðina. Vanvirðingin felst ekki aðeins í því að hunsa ólík sjónarmið fjölskipaðs stjórnvalds, heldur einnig í því að veita ekki sjálfsagðar upplýsingar um stefnu og áherslur svo borgarbúar geti mótað sér skoðun og brugðist við því sem þörf er á. Borgarbúar þekkja orðið stefnuleysi og vinnubrögð meirihluta Besta flokks og Samfylkingar. Á því verður meirihlutinn einn að bera ábyrgð sem og þessari meintu áætlun til næstu fimm ára.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 8. desember sl.
 19. lið fundargerðarinnar, samþykkt um hundahald í Reykjavík, er vísað til  síðari umræðu með 15 samhljóða atkvæðum.

3. Lögð fram fundargerð forsætisnefndar frá 9. desember, fundargerð íþrótta- og  tómstundaráðs frá 25. nóvember, fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 7.  desember og fundargerð velferðarráðs frá 1. desember.

Fundi slitið kl. 17.43

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Elsa Hrafnhildur Yeoman

 Karl Sigurðsson          Geir Sveinsson