Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

12.01.2012

Borgarstjórnarfundur 20. desember 2011

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2011, þriðjudaginn 20. desember, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Björk Vilhelmsdóttir,  Karl Sigurðsson, Óttarr Ólafur Proppé, Eva Einarsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Páll Hjaltason, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Gísli Marteinn Baldursson, Geir Sveinsson, Kjartan Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson.
Fundarritari var Kristbjörg Stephensen.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram tillaga að samþykkt um hundahald í Reykjavík; síðari umræða.
 Samþykkt með 15 atkvæðum.

 Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks óska bókað:

Varðandi birtingu upplýsinga um veitt hundaleyfi á heimasíðu umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar ber að fylgja athugasemdum Persónuverndar um útfærslu. Gæta ber að því að samþykki sé fengið frá þeim sem þegar hafa leyfi til hundahalds áður en persónulegar upplýsingar eru settar á heimasíðu sviðsins.

2. Lagt fram erindi Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 25. f.m. um endurnýjun lánalína og beiðni um heimild til nýtingar, sbr. 28. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. þ.m.

- Kl. 14.03 er gert hlé á fundi.
- Kl. 14.05 er fundi fram haldið.

 Samþykkt með 15 atkvæðum.

3. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 15. desember.
9. liður fundargerðarinnar; ráðstefnu- og viðburðaborg, samþykktur með 9 atkvæðum gegn 5.
Borgarfulltrúar Samfylkingar og Besta flokksins vísa til afstöðu sinnar í bókun meirihluta menningar- og ferðamálaráðs á fundi 12. þ.m.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks vísa til afstöðu sinnar í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks á fundi borgarráðs 15. þ.m.
16. liður fundargerðarinnar; samþykkt fyrir endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar, samþykktur með 15 atkvæðum.

4. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 9. desember, fundargerðir mannréttindaráðs frá 8. og 13. desember, fundargerð menningar- og ferðamálaráðs frá 12. desember, fundargerð skipulagsráðs frá 14. desember, fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 14. desember og fundargerðir umhverfis- og samgönguráðs frá 7. og 15. desember.


Fundi slitið kl. 14.08

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Björk Vilhelmsdóttir

 Karl Sigurðsson          Geir Sveinsson