Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

12.01.2012

Borgarstjórnarfundur 3. janúar 2012

B O R G A R S T J Ó R N


Ár 2012, þriðjudaginn 3. janúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Sigurður Björn Blöndal, Eva Einarsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Hjálmar Sveinsson, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Geir Sveinsson, Kjartan Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sóley Tómasdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

1. Fram fer umræða um Orkuveitu Reykjavíkur og söluferli Perlunnar.

- Kl. 14.55 tekur Oddný Sturludóttir sæti á fundi og Hjálmar Sveinsson víkur sæti.
- Kl. 15.55 víkur Sóley Tómasdóttir af fundi og Þorleifur Gunnlaugsson tekur þar sæti.

2. Fram fer umræða um málefni Árbæjarhverfis.

- Kl. 17.30 víkur Hanna Birna Kristjánsdóttir af fundinum og Björn Gíslason tekur þar sæti.

3. Lögð fram tillaga borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingarinnar um  kosningu varamanns í Orkuveitu Reykjavíkur þar sem lagt er til að Auður  Hermannsdóttir taki sæti Ingrid Kuhlman.
 Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

4. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 22. desember.

5. Lagðar fram fundargerðir íþrótta- og tómstundaráðs frá 20. desember, menningar- og ferðamálaráðs frá 19. desember, skipulagsráðs frá 21. desember, skóla- og frístundaráðs frá 21. desember, umhverfis- og samgönguráðs frá 20. desember og velferðarráðs frá 15. desember.
  

 

Fundi slitið kl. 19.20.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Elsa Hrafnhildur Yeoman

 Karl Sigurðsson          Gísli Marteinn Baldursson 



Skipurit