Starfsmannastefna Reykjavikurborgar

Markmiðið með starfsmannastefnunni er að Reykjavíkurborg hafi alltaf á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem geta tryggt nauðsynlegt frumkvæði í störfum, veitt góða þjónustu og brugðist við síbreytilegum þörfum Reykjavíkurborgar.
Starfsmannastefnan á að tryggja starfsmönnum ákveðin starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi. Leitast skal við að skapa starfsmönnum aðstæður til að samræma starf og fjölskyldulíf.
Leiðarljós
• Virðing fyrir fólki
• Samvinna og sveigjanleiki
• Jafnræði
• Þekking og frumkvæði
• Þjónustulund
Í þessu felst að stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar:
• virða alla starfsmenn sína og viðhorf þeirra mikils,
• virkja starfsmenn til að móta og bæta starfsemina,
• starfa í anda jafnræðis og jafnréttis,
• bjóða upp á verkefni þar sem hæfileikar hvers og eins fá notið sín,
• stuðla að því að starfsmenn geti aukið þekkingu sína og starfshæfni,
• leggja áherslu á gæði starfs og hátt þjónustustig,
• upplýsa starfsmenn um hlutverk þeirra og ábyrgð.
Þetta gerir þær kröfur til starfsmanna að þeir:
• virði samstarfsmenn sína,
• séu viðbúnir þróun og breytingum og taki þátt í þeim,
• viðhaldi þekkingu sinni og auki við hana,
• sinni starfi sínu af trúmennsku og metnaði,
• sýni ábyrgð.
Starfsmannastefna í heild sinni; prentvæn útgáfa
Starfsmannastefna; ensk útgáfa (English-Human Resource Policies)