Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Starfsmat

Hvað er starfsmat

Starfsmat er greiningartæki sem notað er til þess að leggja með kerfisbundnum hætti mat á innihald starfa og kröfur til starfs.  Með starfsmati skapast þannig hlutlæg viðmið til grunnröðunar á störfum. Forsendur launaákvarðana byggðar á  starfsmati eru skýrar, sýnilegar og aðgengilegar starfsmönnum. Niðurstöður starfsmatsins eru kynntar á innri vef Reykjavíkurborgar og þar koma fram heildarstig starfs. Sundurliðun stiga eftir efnisþáttum starfsmatsins og starfsyfirlit starfa, sem er stutt lýsing á kröfum til starfs er einnig vistuð á innri vef borgarinnar.
 
Mikilvægt er að hafa í huga að starfsmat metur aðeins grunnkröfur til starfa en ekki einstaklingsbundna hæfni starfsmanna.  Með öðrum orðum þá er lagt mat á það hvaða kröfur eru gerðar til starfsmanns í tilteknu starfi.  Ekki er lagt mat á einstaklingsbundna hæfni jafnvel þó umfram hæfni eða hæfileikar hafi bein eða óbein áhrif á frammistöðu í starfi.  Einstaklingsbundna hæfni má meta til dæmis með frammistöðu- eða hæfnismat

Launastefna Reykjavíkurborgar.

Um starfsmatskerfi Reykjavíkurborgar.

Aðrar upplýsingar
Vinsamlegast hafið samband ef einhverjar spurningar vakna eða ef óskað er eftir frekari upplýsingum.
Netfang starfsmatsins er: starfsmat@reykjavik.is