Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Starfsmatsferlið

Starfsmenn sem fara í starfsmatsviðtal

Fulltrúar eru valdir með tilliti til aldurs, kyns og starfsreynslu, þannig að þeir endurspegli sem best þann starfsmannahóp sem þeir eru fulltrúar fyrir. Starfsmenn þurfa að hafa starfað í viðkomandi starfi í 6 mánuði eða lengur til þess að veljast sem fulltrúar í starfsmatsviðtal.
Þegar starfsmaður er valinn til þess að taka þátt er hann boðaður á kynningarfund ásamt sínum næsta yfirmanni þar sem farið er vandlega yfir hugmyndafræði starfsmatsins og framkvæmd þess. Á fundinum er einnig kynntur spurningalisti sem starfsmaðurinn fær í hendur og hann þarf að fylla út áður en hann kemur í starfsmatsviðtalið.

Við mat á starfi er unnið úr þeim upplýsingum sem liggja fyrir um starfið.  Þessar upplýsingar byggja m.a. á starfsmatsviðtali, útfylltum spurningalista starfsmats, og starfslýsingu.  Áhersla er lögð á að allar þessar upplýsingar gefi sem réttasta mynd af viðkomandi starfi.  Þar af leiðandi er mikilvægt að starfslýsing sé yfirfarin og samþykkt af starfsmannastjóra viðkomandi sviðs. 

Úrtaks- og vinnureglur vegna viðtala.

Ferli við mat á nýju starfi.

Ferli við endurmat á starfi.