Fjölmenningardagur Reykjavíkur 14. maí

28.04.2011

Laugardaginn 14. maí verður haldinn hátíðlegur í 3ja sinn Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar. Dagskráin hefst kl. 13.00 með fjölþjóðlegri göngu frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur og setur Jón Gnarr borgarstjóri hátíðina.

Kl. 13.30-16.00 verða ýmsar uppákomur í Ráðhúsinu, söngur, dans og "alls konar" skemmtilegheit fyrir bæði stóra sem smáa.
Í Iðnó verður markaður og lifandi tónlist.

Dagskrá í Ráðhúsi:

13.50  Pólskur söng- og danshópur frá Ísafirði
14.00 Söguhringur kvenna- afhjúpun listaverks
14.10 Barnakór frá Litháen
14.20  Dans frá Perú
14.25  Dans og söngvar frá Búlgaríu    
14.45 Thailenskur dans    
14.55 Pauline sings International Cabaret
15.15 Bananatrixið
15.20  Alþjóðatorg Ungmenna – dans
15.30  Söngvar frá Kenya / Rosemary
15.40  Asískur Hip Hop dans
15.50 Ungur fiðluleikari frá Pakistan
15.55 Engin landamæri – söngur

 Á markaðnum verður til sýnis handverk og kynningar frá fjölmörgum þjóðum. Þar á meðal frá:

Perú, Mexico, Japan, Litháen, Póllandi, Tælandi, Filippseyjum, Palestínu, Marokkó, Íslandi, Dóminíska lýðveldinu, Afríku, Kenya, Írlandi og fleiri og fleiri. Allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem er í mat, handverki eða skemmtun !