Evrópsk samgönguvika 2009
Erum við á réttri leið?

Vitundarvakning í samgöngumálum. Reykjavíkurborg tekur þátt í sjöunda sinn í Evrópskri samgönguviku. Áherslan að þessu sinni er á loftslagsmál í borgum ... Fleiri enn 2000 borgir í Evrópu taka þátt í Samgönguviku 2009. http://www.mobilityweek-europe.org/
Miðvikudagur 16/9
14:00 Setning Samgönguviku:
Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, setur Samgönguviku í Laugalækjarskóla. Ingibjörg Sigurþórsdóttir, framkvæmdastjóri Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness fer yfir verkefni síðasta samgönguárs.
Samgönguhverfi ársins: Laugardalur og Háaleiti, fær Samgöngublómið afhent og Aðalbjörg Traustadóttir framkvæmdastjóri mælir nokkur orð. Skólahljómsveit Austurbæjar leikur falleg lög og Svavar Knútur spilar. Vefur Reykjavíkurborgar um bættar gönguleiðir skólabarna tekinn formlega í notkun. Rafknúin reiðhjól borgarinnar verða til sýnis og reynsluaksturs. Boðið upp á léttar veitingar.
15.30 Setningu lokið.
Fimmtudagur 17/9
12:00 Hádegismálþing um ferðavenjur í Ráðhúsi Reykjavíkur í samvinnu við Félag umhverfisfræðinga á Íslandi: Erum við á réttri leið?
Mælendur: Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor í samgönguverkfræði við HÍ: Vistvænar samgöngur í borg bílsins. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar: Leið út úr kreppunni: Fylgið Grænu vegvísunum! Sigrún Helga Lund, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl: Eftir hverju er verið að bíða?
Föstudagur 17/9
Bíllausi dagurinn í leikskólum. Bílastæði við nokkra leikskóla í borginni verða lokuð fyrir bílaumferð og foreldrar eru hvattir til að ganga með börnum sínum í leikskóla og skóla. Bílastæðin verða útisvæði fyrir börnin: breytast í hjólaplön og opin svæði til leikja.
Laugardagur 19/9
Hjóladagur Fjölskyldunnar & Tjarnarspretturinn.
Suðurlest:
11:30 frá Thorsplani í Hafnarfirði
12:10 frá Sjálandsskóla í Garðabæ
12:50 frá Gerðasafni í Kópavogi
Austurlest:
11:30 frá Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ
12:00 frá Hallsteinshöfða í Grafarvogi
12:30 frá Minjasafni Orkuveitunnar í Elliðaárdal
Vesturlest:
12:40 frá Seltjarnarneslaug
13:00 frá Ægisíðu
13:45 Allir hjóla saman frá Nauthólsvík að Ráðhúsi Reykjavíkur
14:30 Tjarnarsprettinn á götuhjólum ræstur
15:00 Hjólasirkus Freestyle snillinga í Ráðhúsinu í Reykjavík
15:30 Verðlaunaafhending Tjarnarsprettsins
16:00 Reykjavíkur DownTownHill 2x frá Hallveigarstíg niður fyrir MR
Sunnudagur 20/9
Borgarbúar eru hvattir til að nýta sér stígakerfi og útisvæði borgarinnar í dag og hvíla bílinn heima.
Samtök um bíllausan lífsstíl standa fyrir Hugmyndaþingi sunnudaginn 20. september í Hljómalind kl. 14.00. Hugmyndaþingið er öllum opið og gengur út á að kasta fram, þróa og vinna með hugmyndir um hvernig má gera borgina að vistvænlegri og samgönguvinalegri stað.
Mánudagur 21/9
Strætódagurinn – Fjársjóðsleit í strætó. 150 bíómiðar hafa verið faldir í strætó. Takið strætó í skólann/vinnuna og skellið ykkur í bíó í boði Strætó bs. Vistaksturshermar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Landvernd býður borgarbúum upp á kennslu í vistakstri. Samráðsfundur með hagsmunaaðilum um samgöngumál. Stofnun samráðshóps um samgöngumál í Reykjavík. Samráðshópur hittist að jafnaði tvisvar á ári og fer yfir málefni líðandi stundar ásamt framtíðarstefnumótun og framkvæmdum.
Þriðjudagur 22/9
Fyrstu Vistgötur borgarinnar opnaðar. Haðarstígur og Válastígur verða götur þar sem fótgangandi og hjólandi vegfarendur eru í forgangi.
Hjólalest nemenda grunnskóla í Grafarvogi hjóla um hverfið í tilefni af innleiðingu Grænna samgöngustefna skólanna og nýyfirstaðinna hjólafærninámskeiða.
Tengill: Loftslags-og loftgæðastefna Reykjavíkur
Veggspjald: Samgönguvika 2009
.......................fyrri Samgönguvikur:
Evrópsk samgönguvika 2008Samgönguvikan 2007 – Stræti fyrir allaFrétt um ráðstefnu um visthæfar samgönguFrétt um Samgönguviku: kynning 14. sept