Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Stjórnkerfi Reykjavíkurborgar

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 er Íslandi skipt upp í staðbundin sveitarfélög sem ráða sjálf málefnum sínum á eigin ábyrgð.  Hvert sveitarfélag hefur ákveðin staðarmörk sem óheimilt er að breyta nema með lögum.  Í hverju sveitarfélagi er kjörin sveitarstjórn, sem fer með stjórn sveitarfélagsins og ber ábyrgð á að lögbundin verkefni séu rækt.  Í Reykjavík er það borgarstjórn, skipuð 15 fulltrúum, sem hefur þetta hlutverk.  Samþykkt borgarstjórnar um stjórn og stjórnsýslu borgarinnar er nr. 1200/2007.

Borgarstjórn kýs ráð og nefndir til að fara með stefnumörkun og stjórn einstakra málaflokka.  Jafnframt ræður borgarstjórn borgarstjóra til loka kjörtímabils.  Skrifstofa borgarstjórnar ber ábyrgð á almennri þjónustu við kjörna fulltrúa.

Borgarstjórn kýs borgarráð til eins árs í senn.  Það er skipað sjö borgarfulltrúum og fer ásamt borgarstjóra með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn og hefur umsjón með stjórnsýslu borgarinnar.  Borgarstjórn kýs sjö fastaráð til fjögurra ára í senn.  Þau eru, framkvæmda- og eignaráð, íþrótta- og tómstundaráð, mannréttindaráð, menningar- og ferðamálaráð, menntaráð, skipulagsráð, umhverfis- og samgönguráð og velferðarráð, hvert skipað sjö fulltrúum.  Jafnframt kýs borgarstjórn fulltrúa í hverfisráð og ýmsar nefndir sem vinna samkvæmt sérstökum samþykktum, s.s. barnaverndarnefnd og jafnréttisnefnd, sem og í ýmsar stjórnir sem Reykjavíkurborg á aðild að. 

Borgarstjóri er framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar og æðsti yfirmaður starfsmanna.  Skrifstofa borgarstjóra sér um almenna þjónustu við borgarstjóra og önnur nánar tilgreind verkefni.  Stjórnsýslan undir borgarstjóra er að öðru leyti skipulögð í samræmi við hið pólitíska stjórnkerfi.  Að verkefnum borgarráðs, þ.e. stjórnsýslu og fjármálastjórnun, vinna fjármálasvið, stjórnsýslu- og starfsmannasvið og þjónustu- og rekstrarsvið.  Önnur svið bera heiti í samræmi við ráðin sem þau þjóna, þ.e. framkvæmdasvið, íþrótta- og tómstundasvið o.s.frv.  Sviðsstjórar fara með stjórn sviðanna í umboði borgarstjóra en vinna jafnframt að ýmiss konar undirbúningi stefnumörkunar með ráðunum.

Innri endurskoðun heyrir bæði undir borgarráð og borgarstjóra.  Hún fylgist með að meðferð fjármuna borgarinnar sé í samræmi við áætlanir borgaryfirvalda og að starfsemi borgarinnar sé í samræmi við lög og reglur.



Skipurit