Þjónustuskrifstofa
Þjónustuskrifstofa
Borgartúni 12-14
Sími: 411 11 11
upplysingar@reykjavik.is
Þjónustuskrifstofan hefur yfirumsjón með þjónustu borgarinnar við íbúa og starfsfólk. Skrifstofan leiðir stefnumótun, þróun og samhæfingu framlínuþjónustu, vefþjónustu, rafrænni þjónustu og skjala- og sjálfsafgreiðslulausnum á vef, þjónustuveri, Borgarskjalasafni, skjalasafni Ráðhúss og skjalaveri Höfðatorgs.
Helstu verkefni:
Þjónustuver - Sameiginlegt þjónustuver Reykjavíkurborgar er staðsett í Borgartúni 12-14. Í þjónustuveri Reykjavíkurborgar starfar samhentur hópur starfsmanna sem hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu á hagkvæman og skilvirkan hátt. Starfsandinn er góður og metnaður til góðra verka er mikill. Hægt er að fá þjónustuna veitta í gegnum símanúmerið 4 11 11 11 eða með því að mæta á staðinn.
Framlínuþjónusta - Þjónustuskrifstofa veitir fagsviðum borgarinnar sérfræðiþjónustu, fræðslu og ráðgjöf um þjónustumál og gegnir samræmingarhlutverki á sviði framlínuþjónustu. Þjónustuver Reykjavíkurborgar þjónustar íbúa í gegnum þrjár gáttir: vef, síma og sinnir þjónustu við íbúa á 1. hæð fyrir hönd sviða á Höfðatorgi. Þjónustuskrifstofa ber ábyrgð á faglegri þróun IP símkerfis borgarinnar.
Skjala- og upplýsingaþjónusta - Borgarskjalasafn móttekur eldri skjöl frá stofnunum borgarinnar og einkaaðilum, hefur eftirlit með skjalastjórnun borgarstofnanna og stuðlar að varðveislu á sögu borgarinnar. Skjalasafn Ráðhúss hefur umsjón með skjalamálum Ráðhúss Reykjavíkur. Skjalaverið á Höfðatorgi hefur yfirumsjón með skjalastjórnun flestra sviða og starfseininga á Höfðatorgi. Þjónustuskrifstofa ber ábyrgð á faglegri þróun á hópvinnu og skjalavistunarkerfinu GoPro hjá Reykjavíkurborg.