Upplýsingatæknimiðstöð - UTM
Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar (UTM) leiðir þróun og þjónustu í upplýsingatækni hjá Reykjavíkurborg með það að leiðarljósi að tryggja notendum bestu og hagkvæmustu lausnirnar til að ná hámarks árangri.
UTM rekur eina umfangsmestu upplýsingatækniþjónustu landsins, með á sjötta þúsund tölvum á tæplega þrjúhundruð starfsstöðvum. Notendur upplýsingatæknibúnaðar eru öll svið og skrifstofur Reykjavíkurborgar, skólakrakkar, verkfræðingar, borgarfulltrúar, starfsmenn íþróttamannvirkja, gestir bókasafna og almenningur svo dæmi séu tekin. Kerfin sem UTM ber ábyrgð á eru einnig fjölbreytt. Um er að ræða afgreiðslukerfi, velferðarkerfi, bókhaldskerfi, umhverfisvöktunarkerfi, fjölmarga vefi og landupplýsingakerfi.
Starfsmenn UTM eru 45 og skiptist starfssemin í þrjá meginhluta:
- Þjónustuhópur rekur þjónustuborð og sinnir uppsetningu og viðhaldi á tölvubúnaði.
- Kerfishópur rekur netþjóna borgarinnar og víðnet.
- Þróunarhópur stýrir þróun hugbúnaðarkerfa.
UTM leggur ofuráherslu á að reka traust tölvuumhverfi og veita skjóta og góða þjónustu:
Stjórnendur Upplýsingatæknimiðstöðvar Reykjavíkur eru:
- Hjörtur Grétarsson, upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar.
- Sigþór Örn Guðmundsson, aðstoðar upplýsingatæknistjóri.
- Eggert Ólafsson, rekstrar- og gæðastjóri.
- Dagný Einarsdóttir, þjónustustjóri UTM.
- Tómas Guðmundsson, tæknistjóri UTM.
- María Guðfinnsdóttir, þróunarstjóri UTM.
Allar ábendingar, atvik, kvartanir og hverskonar öryggisbrot sendist á utm.abending@reykjavik.is.