Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Borgarstjórn

Borgarstjórn starfar skv. II. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007, sbr. 10. gr. laganna.

Hlutverk og verksvið borgarstjórnar skv. 9. gr. sveitarstjórnarlaga er að fara með stjórn Reykjavíkurborgar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga.Borgarstjórnarsalur

Borgarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna Reykjavíkurborgar og um framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast. Hún skal sjá um að fylgt sé ákvæðum laga um sveitarstjórnarmál, reglugerðum og samþykktum Reykjavíkurborgar. Þá getur borgarstjórn ályktað um hvert það málefni sem hún telur að varði Reykjavíkurborg.

Borgarstjórn er skipuð fimmtán borgarfulltrúum og jafnmörgum til vara, kjörnum af kosningabærum íbúum Reykjavíkur, skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Kjörtímabil borgarstjórnar er fjögur ár.

Reglulegir fundir borgarstjórnar eru haldnir fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefjast kl. 14.00. Fundir borgarstjórnar eru haldnir fyrir opnum dyrum nema annað sé ákveðið. Heimilt er að fella niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Á fundi borgarstjórnar 21. júní 2011 var Elsa Hrafnhildur Yeoman kosinn forseti borgarstjórnar til eins árs, Björk Vilhelmsdóttir var kosinn 1. varaforseti og Óttar Ólafur Proppé var kosinn 2. varaforseti.

Borgarstjóri er framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar. Á fundi borgarstjórnar þann 15. júní 2010 var Jón Gnarr kosinn borgarstjóri.