Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Borgarráð

Borgarstjórn kaus í borgarráð 2. júní 2009 til eins árs:

Kjörnir: Til vara:
Óskar Bergsson, formaður

Júlíus Vífill Ingvarsson (frá 1.9.'09)

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Jórunn Frímannsdóttir
Kjartan Magnússon Sif Sigfúsdóttir (frá 1.9.'09)

Gísli Marteinn Baldursson (frá 1.9.'09)

Guðlaugur Sverrisson
Dagur B. Eggertsson Oddný Sturludóttir
Björk Vilhelmsdóttir Sigrún Elsa Smáradóttir
Þorleifur Gunnlaugsson Sóley Tómasdóttir

Áheyrnarfulltrúi F-lista er Ólafur F. Magnússon, varamaður hans er Kjartan Eggertsson.

Borgarráð starfar skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 Það var stofnað með samþykkt um stjórn bæjarmálefna Reykjavíkur nr. 73/1932. Í IV. kafla samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 eru ákvæði um verkefni borgarráðs, sbr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga. Jafnframt er vísað til 3. mgr. 44. gr. laganna um embættisafgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar, sbr. viðauka 2.1 við samþykktina.

Borgarráð fer, ásamt borgarstjóra, með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn, að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Það hefur umsjón með stjórnsýslu Reykjavíkurborgar almennt og fjárstjórn hennar sérstaklega, undirbýr fjárhagsáætlanir og sér um að ársreikningar Reykjavíkurborgar séu samdir reglum samkvæmt. Borgarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag borgarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við borgarstjóra um ákvörðunina.

Í borgarráði sitja sjö borgarfulltrúar kjörnir af borgarstjórn til eins árs í senn og jafnmargir til vara. Borgarstjóri situr fundi borgarráðs, en hann hefur þar ekki atkvæðisrétt nema hann sé sérstaklega í það kjörinn. Flokkur sem fulltrúa á í borgarstjórn, en ekki í borgarráði, má tilnefna borgarfulltrúa til að sitja fundi borgarráðs með málfrelsi og tillögurétt.

Reglulegir fundir borgarráðs eru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur á fimmtudögum og hefjast kl. 9.30.