Almannavarnanefnd
Almannavarnanefnd starfar skv. lögum um almannavarnir nr. 94/1962, með síðari breytingum.
Á fundi borgarráðs 9. desember 2003 var samþykkt starfsskipulag almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, en aðild að henni eiga, auk Reykjavíkurborgar, Álftanes, Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Kjósarhreppur, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær.
Almannavarnanefnd er skipuð framkvæmdastjórum aðildarsveitarfélaganna auk eins kjörins fulltrúa frá hverju þeirra. Þá sitja þar lögreglustjóri og slökkviliðsstjóri, sem jafnframt er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Kjörtímabil almannavarnanefndar er hið sama og sveitarstjórna.
Aðsetur almannavarnanefndar er hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs., Skógarhlíð 14.
Borgarstjórn kaus 15. júní 2010 án atkvæðisgreiðslu Dag B. Eggertsson til fjögurra ára og tveggja til vara. Varamenn voru kosnir með sama hætti Oddný Sturludóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir.