Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hafnarstjórn, Faxaflóahafnir sf., stjórn

Sameignarfélagssamningur fyrir Faxaflóahafnir sf. var staðfestur 17. nóvember 2004 og eru stærstu eigendur Reykjavíkurborg með 75% eignarhlut, Akraneskaupstaður með 10,7%, Hvalfjarðarsveit með 9,24%, Borgarbyggð með 4,84% og Skorradalshreppur með 0,22%, en auk þess eru nokkur önnur sveitarfélög eigendur.

Tilgangur Faxaflóahafna er rekstur Reykjavíkurhafnar, Akraneshafnar, Grundartangahafnar, Borgarneshafnar og annarra hafna sem kunna að verða aðilar að félaginu.

Félagið starfar skv. 3. tl. 8. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Æðsta vald félagsins er í höndum eigendafunda og skal halda aðalfund fyrir lok júnímánaðar ár hvert.

Stjórn félagsins, hafnarstjórn, sem kosin er til eins árs í senn á aðalfundi, er skipuð átta mönnum og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs fimm stjórnarmenn og jafnframt formann stjórnar, bæjarstjórn Akraneskaupstaðar kýs einn stjórnarmann, sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar kýs einn stjórnarmann og Borgarbyggð og Skorradalshreppur tilnefna sameiginlega einn stjórnarmann. Varamenn eru kosnir með sama hætti. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jöfn.
Aðsetur hafnarstjórnar er í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík.

Borgarstjórn kaus fulltrúa sína í stjórnina 17. maí 2011:

Kjörnir: Til vara:
Hjálmar Sveinsson, formaður

S. Björn Blöndal 

Björk Vilhelmsdóttir 

Arna Garðarsdóttir

Páll Hjaltason Dagur B. Eggertsson
Júlíus Vífill Ingvarsson

Gísli Marteinn Baldursson (frá 18.10.'11)

Hanna Birna Kristjánsdóttir Kjartan Magnússon

Fulltrúi Akraneskaupstaðar: Til vara:
Garðar G. Norðdahl Þröstur Þór Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi Akranesskaupstaðar Til vara:
Gunnar Sigurðsson Einar Brandsson
Fulltrúi Borgarbyggðar: Til vara:
Páll Brynjarsson Geirlaug Jóhannsdóttir 
Fulltrúi Hvalfjarðarsveitar: Til vara:
Sigurður Sverrir Jónsson Ása Helgadóttir 
Fulltrúi starfsmanna Til vara:
Karl Lárus Hjeltested Gunnbjörn Marinósson