Heilbrigðisnefnd
Borgarstjórn kaus í heilbrigðisnefnd 18. janúar 2011:
| Kjörnir: |
Til vara: |
| Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður |
Sigurður Eggertsson |
| Hjördís Sjafnar Ingimarsdóttir |
Karl Sigurðsson |
| Páll Hjaltason |
Kristín Erna Arnardóttir |
| Marta Guðjónsdóttir |
Óskar Örn Guðbrandsson |
| Garðar Mýrdal |
Sigurbjörg Gísladóttir |
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar starfar á vegum borgarstjórnar skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með þeim hætti sem nánar er kveðið á um í samþykkt þessari, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um.
Um verkefni heilbrigðisnefndar fer eftir II. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Þá eru heilbrigðisnefnd falin ýmis verkefni í öðrum lögum, s.s. lögum um matvæli nr. 93/1995, sbr. 13. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Heilbrigðisnefnd hefur eftirlit með að framfylgt sé ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og reglugerða settra samkvæmt þeim og samþykktum Reykjavíkurborgar á verksviði nefndarinnar.
Heilbrigðisnefnd tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið hennar. Jafnframt hefur nefndin eftirlit með því að samþykktum og stefnumörkun hennar sé fylgt.
Heilbrigðisnefnd hefur eftirlit með og stuðlar að bættri framkvæmd mengunar-, dýra- og heilbrigðiseftirlits í Reykjavík, fylgist með framkvæmd sorphirðu og vinnur að fræðslu um hollustuhætti og umhverfismál. Jafnframt gerir nefndin tillögur til borgarráðs um sérstakar heilbrigðissamþykktir, s.s. samþykktir um hundahald og kattahald, hefur eftirlit með framkvæmd þeirra og gerir tillögur til borgarráðs að gjaldskrám fyrir mengunar- og heilbrigðiseftirlit og dýrahald skv. ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Heilbrigðisnefnd er skipuð sex fulltrúum, fimm kjörnum af borgarstjórn og einum tilnefndum af samtökum atvinnurekenda í Reykjavík. Varamenn eru kjörnir/tilnefndir með sama hætti. Borgarstjórn kýs formann heilbrigðisnefndar. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jafnt í nefndinni. Kjörtímabil heilbrigðisnefndar er hið sama og borgarstjórnar.
Aðsetur heilbrigðisnefndar er að Borgartúni 12-14 og heldur nefndin að jafnaði þar fundi fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Fella má niður fundi nefndarinnar í allt að tvo mánuði að sumarlagi.