Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Orkuveita Reykjavíkur

Borgarstjórn kaus í stjórnina 21. júní 2011 til eins árs: 

Kjörnir: Til vara:

Haraldur Flosi Tryggvason, formaður

Ingrid Kuhlman

Brynhildur Davíðsdóttir, varaformaður

Elín Blöndal

Gylfi Magnússon

Regin Freyr Mogensen

Kjartan Magnússon

Júlíus Vífill Ingvarsson

Sóley Tómasdóttir

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Orkuveita Reykjavíkur sf. starfar skv. lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur nr. 139/2001, sbr. einnig reglugerð nr. 297/2006, en þann 12. desember 2001 var undirritaður sameignarsamningur eignaraðila. Núverandi eignaraðilar eru Reykjavíkurborg, Akranesbær og Borgarbyggð.

Tilgangur Orkuveitu Reykjavíkur er vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns, dreifing og sala afurða fyrirtækisins, gerð og rekstur fráveitukerfa ásamt hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur rannsóknir og þekkingu eða búnað fyrirtækisins, sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi, skv. ákvörðun stjórnar hverju sinni. Heimilt er Orkuveitu Reykjavíkur að reka dótturfélög og eiga hlut í öðrum félögum, sbr. 2. gr. laganna.

Stjórn fyrirtækisins er skipuð sex mönnum, fimm kjörnum af Borgarstjórn Reykjavíkur og einum kjörnum af Bæjarstjórn Akraness. Borgarstjórn Reykjavíkur kýs formann og varaformann stjórnarinnar úr hópi fulltrúa Reykjavíkurborgar. Á stjórnarfundum vegur atkvæði formanns tvöfalt. Aðsetur stjórnarinnar er í húsi Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1.

Kjörtímabil stjórnar er eitt ár m.v. aðalfund.